Morgunblaðið - 05.12.2000, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Spurt og svarað um neytendamál
Bílaþvottur dýrari á veturna
Farið varlega
með jólaljósin
Tími jólaljósa er genginn í garð. Raf-
magnsöryggisdeild Löggildingar-
stofu vill af því tilefni benda á helstu
varúðarráðstafanir vegna notkunar
jólaljósa, til að draga úr líkum á
bruna og slysum.
„Rafmagnið er einn stórvirkasti
brennuvargur nútímans. Algengasta
orsök slysa og bruna af völdum raf-
magns er gáleysi. Því er brýnt að
fólk sýni mikla aðgát nú þegar verið
er að setja upp margvíslegan ljósa-
búnað til viðbótar við það sem fyrir
er. Þó að jólaljós séu sett upp tíma-
bundið þarf ekkert minni aðgæslu en
við annan rafbúnað. Hluti af undir-
búningi jólanna á að vera að ganga
úr skugga um að þau ljós sem nota á
séu í góðu lagi. Óvandaður, skemmd-
ur og rangt notaður ljósabúnaður
getur valdið bruna og slysum. Einn-
ig er góður siður að skipta um raf-
hlöður í reykskynjurum fyrir hver
jól.“
• Helstu atriði sem hafa ber í
huga:
► Henda gömlum jólaljós-
um sem eru úr sér gengin.
► Láta aldrei loga á ljósun-
um á jólatrénu yfir nótt eða
þegar enginn er heima.
Nota ætið ljósaperur af
réttri gerð, stærð og styrk-
leika.
► Gæta þess að brennanleg
efni séu ekki nálægt jólaljós-
um.
► Nota aldrei inniljós utan-
dyra.
► Gæta að því að óvarinn
rafbúnaður getur valdið raf-
losti.
► Hafa í huga að óvönduð
jólaljós geta verið varasöm.
► Láta aldrei logandi kerti
standa ofan á raftæki.
Bílaþvottur hjá Olíufélaginu hf.
kostar 590 krónur á sumrin en 890
krónur á veturna. Hvað skýrir
þennan verðmun?
„Vegna tjörunnar sem kemur á
bílana á veturna notum við dýrari
hreinsiefni og meira af heitu vatni og
það skýrir þennan verðmun að
mestu,“ segir Heimir Sigurðsson,
framkvæmdastjóri markaðssviðs
þjónustustöðva Olíufélagsins hf. „Á
vetuma er meiri umsýsla starfsfólks
í kringum bílaþvottastöðvarnar og
það þýðir aukinn launakostnað."
Að sögn Heimis var verðið 890
krónur í fyrravetur og hann býst
ekki við verðhækkun.
Ensk jólakaka
Hvenær er gott að baka fyrir jól-
in enska jólaköku?
„Flestir baka ensku jólakökuna 6
til 8 vikum fyrir jól svo líklega eru
síðustu forvöð núna. Aðrar kökuteg-
undir má auðvitað baka seinna og
jafnvel rétt fyrir jól,“ segja Hjördís
Edda Broddadóttir og Guðrún Þóra
Hjaltadóttir, framkvæmdastjórar
Leiðbeiningarstöðvar heimilanna.
Að sögn þeirra er mikilvægt að
kæla allan bakstur vel fyrir fryst-
ingu og best er að frysta bakkelsi
nýbakað.
Ensk jólakaka fró
Guðrúnu Þóru og
Hjördísi Eddu
225 g smjör
2 dlsykur
4 egg
4V2 dl hveiti
______________'/2 tsk sdt____________
1 tsk lyftiduft
u.þ.b. 120 g kirsuber í krukku
u.þ.b. 250 g rúsínur
u.þ.b. 180 g kúrennur
u.þ.b.50 g súkkat (mó sleppa)
15 döðlur
100 g súkkulaði
1V2 dl mglaðar hesli- eða volhnetur
(best úr dós)
__________Vfrdl kirsuberjasafi
Vidl koníak (til að hella yfir)
Brytjið kirsuber, súkkat og döðlur
og blandið saman öllum ávöxtunum.
Hellið kirsuberjasafa og koníaki yfir.
Hitið ofninn í 150 gráður á Cels-
íus. Smyrjið og stráið brauðmýlsnu í
kringlótt formkökumót eða í tvö
minni jólakökumót.
Hrærið smjör og sykur þar til það
er létt og ljóst. Bætið eggjum út í,
einu í einu, og hrærið vel á milli.
Blandið örlitlu af hveitinu saman við
ávextina. Setjið afganginn af hveit-
inu ásamt salti og lyftidufti í smjör-
hræruna og að síðustu ávextina.
Baksturstími er ein til ein og hálf
klukkustund en ef kakan ætlar að
verða of dökk má leggja álþynnu yfir
mótið.
Eftir bakstur er kakan annað-
hvort kæld í mótinu eða tekin úr
mótinu og látin kólna á kökurist.
Setjið álpappír þétt utan um kök-
una og þrýstið vel að.
Geymið í kökuboxi á köldum stað
eða í plastpoka. Víni er hellt yfir kök-
una öðru hverju.
Er hægt að nota mismunandi feiti
til steikingar á laufabrauði?
„Já, hægt er að nota ýmisskonar
fitu til steikingar en bragð laufa-
brauðsins fer mikið eftir því hvaða
fita er notuð,“ segir Guðrún Þóra
Hjaltadóttir, annar tveggja fram-
kvæmdastjóra Leiðbeiningarstöðv-
ar heimilanna.
,Á-ður fyrr var notuð tólg og trú-
lega er það bragðið sem flestir
þekkja. Einhverjir nota Palm-
ín-jurtafeiti en sjálfri finnst mér
laufabrauðið verða fitugra að utan ef
það er steikt í olíu,“ segir Guðrún
Þóra.
Hjördís Edda Broddadóttir, sem
jafnframt er framkvæmdastjóri
Leiðbeiningarstöðvar heimilanna,
segir að einnig megi blanda saman
Palmín-jurtafeiti og sólblómaolíu og
hafa þá hlutföllin jöfn. „Þetta hef ég
prófað sjálf og hef góða reynslu af,“
segir hún og bætir við að eitt þurfi
alltaf að hafa í huga við laufabrauð-
steikingu en það er að hita feitina við
hægan hita og passa að hitastigið sé
rétt.
meö innbyggðum prentara
Les allar tegundir greiöslukorta sem notuð eru á Islandi
Er með lesara fyrir snjallkort og segulrandarkort
Point Transaction Systems ehf
Hlíðasmára 10 • Kópavogi
Sími 544 5060 • Fax 544 5061
Hraðvirkur hljóðlátur prentari
Tekur einnig Diners og VN kort
Matvöruverslun
Hagkaups á Netinu
Matvara nú
heimsend á allt
höfuðborg’ar-
svæðið
Verslun Hagkaups á Netinu, Hag-
kaup.is býður nú heimsendingu allra
matvara á öllu höfuðborgarsvæðinu
en fram að þessu hefur þjónustan
staðið íbúum í Kópavogi til boða.
Sent er heim með sérstökum kæli-
bílum sem á að tryggja gæði og
ferskleika vörunnar. Heimsendingin
kostar 480 krónur og er vöruverðið í
netversluninni það sama og i öðrum
verslunum Hagkaups.
I netversluninni eru rúmlega
5.000 vörutegundir og ef pantað er
fyrir kl. 10 að morgni býðst heim-
sending samdægurs.
Nýtt
Góðar fréttir fyrir
þreytta fætur!
SEGULINNLEGG
ÍSKÓ
Nú eru BIOFLEX
segulþynnurnar
r - ' fónlegar I skóinn-
leggjum. Innlegg-
in henta afar vel
þeim sem þjóst
af fótkulda,
þreytu og blóðflæðisvanda i fótum.
BIOFLEX er skilgreint sem lækninga-
búnaður og hafa segluþynnurnar
öflugt segulsvið sem dregur úr sórs-
auka i fótum. Innleggin eru fóanleg
í 6 stærðum og eru seld í flestum
apótekum, lyfja- og heilsu-
búðum. Greinagóðar upplýsingar
ó íslensku fylgja