Morgunblaðið - 05.12.2000, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBI/AÐIÐ
Mexíkóforseti vill semja við skæruliða í Chiapas
Marcos hyggst fara
til Mexfkóborgar
Oaxaca, La Realidad. AP, AFP.
NYR forseti í Mexíkó, Vicente Fox,
notaði fyrsta starfsdaginn til að biðla
til vinstrisinnaðra skæruliða indíána í
Chiapas-héraði í suðui'hluta landsins.
Undanfarin ár hefur oft ólgað og
kraumað í héraðinu og hafa hermenn
stjómvalda barist við liðsmenn
Zapatista-hreyfingarinnar er nýtur
forystu stjórnanda er nefnir sig
Marcos undirforingja. Er hann fyrr-
verandi háskólaprófessor í graffk-
fræðum og krefst þess að um 11 millj-
ónir indíána í Mexíkó fái aukin
réttindi. Marcos lýsti sig um helgina
reiðubúinn að fara til Mexíkóborgar
til að fá þingið til að samþykkja ný lög
um málefni indíána.
Með valdatöku Fox lauk rúmlega
sjötíu ára einræði Byltingarflokksins,
PRI, í landinu og hefur forsetinn heit-
ið að rétta hlut indíána. „Þjáningar
indíána í Mexíkó eru óviðunandi,"
sagði Fox á fundi með um 4.000 full-
trúum á laugardag í grannhéraði
Chiapas, Oaxaca. „Þörfin fyrir
breytta stefnu í málum þessa fólks er
augljós. Menningarleg og þjóðemis-
leg fjölbreytni, hin mörgu andlit þjóð-
arinnar, er mesti ijársjóður okkar.“
A fostudag lagði forsetinn fram
lagafrumvarp sem skæruliðahreyf-
ingin hefur mælt með en þar er kveðið
á um aukin réttindi innfæddra ind-
íánaþjóða og meðal annars tryggt að
þeir geti eignast jarðnæði. Sveitarfé-
lög indíána munu fá meira vald til að
ráðstafa jarðnæði, einnig rétt til að
setja eigin lög og kjósa sér embættis-
menn í samræmi við gamlar hefðir
þeirra sem oft em mjög ólíkar því
Reuters
Marcos undirforingi á blaða-
mannafundinum í gær.
sem almennt gerist í Mexíkó.
Skæmliðar krefjast þess enn frem-
ur að fangar úr röðum þeirra verði
leystir úr haldi og vopnaðar sveitir ut-
an hersins, er beijast með honum,
verði bannaðar.
Gagnrýninn á
efnahagsstefnu Fox
Stjómvöld hafa sent tugþúsundir
hermanna til Chiapas og hefur öðm
hveiju komið tO mannskæðra átaka.
Vopnahlé hefur þó oftast verið við lýði
frá 1994. Fox hefur þegar boðað
breytta tíma innan hersins og skýrði á
föstudag frá því að herinn yrði dreg-
inn á brott frá Chiapas og vegatálmar
fjarlægðir. Vora sýndar sjónvarps-
myndir af brottför hersins um helgina
en að sögn fréttamanna vom í gær
enn margir hermenn í varðstöðvum
við helstu vegi í héraðinu.
Marcos heitir réttu nafni Rafael
Sebastian GuOlen Vicente. Hann hef-
ur áður gagnrýnt hugmyndir Fox og
minnt á að síðasti forseti landsins,
Emesto ZedOlo, hafi einnig heitið við-
ræðum en sent þess í stað herlið á
vettvang. Einnig líst skæraliðafor-
ingjanum Ola á stefnu forsetans nýja í
efnahagsmálum en hann er mikill
markaðshyggjumaður. Segist Marcos
ekki viija að forsetinn fái að breyta
„Mexi'kó í ofur-stórmarkað... þar sem
verslað er með mannslíf og náttúra-
auðlindir í samræmi við þarfir mark-
aðarins".
Marcos heldur sig að jafnaði í búð-
um sínum langt inni í Lacandon-
frumskóginum en hélt blaðamanna-
fund í borginni La Realidad á laugar-
dag. Sagðist hann ætla að fara til
Mexflíóborgar í febrúar ásamt fleiri
leiðtogum hreyfingarinnar tfl að
vinna að því að þingið samþykkti lögin
áðumefndu um réttindi indíána.
Marcos hefur undanfarin 15 ár dvalist
í framskóginum með mönnum sínum.
Hann huldi að venju andlitið með
skíðagrímu, reykti pípu á fundinum
og á bakinu var hann með AR-15 riffil.
Marcos sagði að fyrstu aðgerðir
Fox lofiiðu góðu. „Við munum fara og
sjá hvað gerist. Við fóram tO að gera
það sem félagar okkar treysta að við
komum í verk; að binda enda á stríð-
ið.“ Fox fagnaði þegar í stað þessum
ummælum Marcos og sagði að við-
horfin hefðu þegar breyst, zapatistar
vOdu nú ræða málin.
Ymsar blikur á lofti í ísraelskum stjórnmálum
Netanyahu tekur senn
ákvörðun um framboð
Reuters
Ehud Barak (t.v.) á fundi með Shimon Peres, friðarverðlaunahafa
Nóbels, í Jerúsalem í gær.
Jerúsalem. AFP, The Daily Telegnraph.
BENJAMIN Netanyahu, fyrrver-
andi forsætisráðherra ísraels, sagði í
gær að hann myndi senn taka ákvörð-
un um hvort hann gæfi kost á sér
gegn Ehud Barak, núverandi forsæt-
isráðherra, í kosningunum sem búist
er við að verði haldnar næsta vor.
Samkvæmt skoðanakönnunum
myndi Netanyahu vinna sigur á Bar-
ak ef kosið væri nú, og hann nýtur
einnig meiri vinsælda en harðlínu-
maðurinn Ariel Sharon, sem tók við af
honum sem leiðtogi Likud-flokksins.
„Eg hef ekki enn tekið ákvörðun,
en það styttist í það og ég mun til-
kynna hana mjög fljótlega, því
ástandið í landinu kallar á það,“ sagði
Netanyahu við fréttamenn á Ben
Gurion-flugvellinum í Jerúsalem, þar
sem hann var að koma heim eftir fyr-
irlestraferð í Bandaríkjunum. Hann
kvaðst myndu ráðfæra sig við fjöl-
skyldu sína og nánustu ráðgjafa áður
en hann gerði upp hug sinn.
Netanyahu beið ósigur fyrir Barak
í kosningunum fyrir einu og hálfu ári,
en síðan ákæravaldið féll í september
frá því að ákæra hann og konu hans
fyrir spOlingu, hefur orðrómur verið á
kreOci um að hann hyggi á endurkomu
í framlínu stjórnmálanna. Sá orðróm-
ur fékk byr undir báða vængi eftir að
þingið samþykkti í síðustu viku tO að
boða tfl kosninga í vor.
Bakþankar vegna kosninga
Ýmsir ísraelskir stjómmálamenn
virðast reyndar vera að fá bakþanka
um ágæti þess að halda kosningar svo
löngu áður en kjörtímabflið rennur út.
„Nú, þegar Likud-flokkurinn og
Verkamannaflokkurinn nálgast sam-
komulag um hvenær gengið skuli til
kosninga, era efasemdir að aukast
meðal stjómmálamanna um hvort
það þjóni raunveralega hagsmunum
þeirra að leysa upp þingið,“ sagði í
forystugrein hins víðlesna dagblaðs
YediotAharonot.
Sumir hafa látið að því liggja að
auknar líkur á að mynduð verði þjóð-
stjóm með þátttöku bæði Verka-
mannaflokksins og Likud-flokksins
geri kosningar óþarfar. En Sharon,
sem slegið hefur úr og í varðandi
myndun þjóðstjómar, sagði í gær að
útséð væri um að Likud-flokkurinn
gæti gengið tO samstarfs við Verka-
mannaflokkinn. „Eg hef aUtaf talið
samvinnu mikflvæga, en Barak hefur
því miður gert út af við þessa hug-
mynd og hún er ekki lengur til um-
ræðu,“ sagði Sharon í viðtali við út-
varpsstöð ísraelska hersins. í síðustu
viku hafði hann sagt að myndun þjóð-
stjómar væri ekki útílokuð.
Framvarp, sem Likud-flokkurinn
lagði fram í síðustu viku um að þingið
skyldi leyst upp og að boðað yrði til
kosninga, var samþykkt eftir fyrstu
umræðu, en að minnsta kosti tveir
flokkar, Shas og Shinui, hafa gefið tfl
kynna að þeir muni ef til vfll hafna
framvarpinu við aðra eða þriðju um-
ræðu. Báðir flokkamir hafa ástæðu til
að óttast fylgistap ef gengið verður tfl
kosninga fljótlega, og þeir hafa mfldar
áhyggjur af áformum nokkurra
stjómarandstöðuflokka um að beita
sér fyrir því að ekki fari þá fram bein
kosning forsætisráðherra, en það
myndi minnka áhrif minni flokka.
Stjómarandstöðuflokkamir, sem
höfðu sammælst um að leggja fram
frumvarp um afnám beinnar kosning-
ar forsætisráðherra, hafa þó verið að
draga í land, og nú er ekki ljóst hvort
afþvíverður.
Reuters
Lögreglumaður á verði í stigagangi í London þar sem drengurinn
Damilola Taylor lést af völdum stungusárs í vikunni sem leið.
Morð á tíu ára dreng í London
vekur mikinn óhug í Bretlandi
Vekur umræðu
um vaxandi of-
beldi meðal barna
London. Reuters, AFP, AP.
MORÐ á tíu ára nígerískum
dreng í London hefur vakið um-
ræðu um vaxandi ofbeldi meðal
bama og slæman aðbúnað inn-
flytjenda í stórborgum Bretlands.
Lögreglan leysti tvo blökku-
drengi á aldrinum 12 og 13 ára og
39 ára konu úr haldi gegn trygg-
ingu á laugardag eftir að þau
vora tekin til yfirheyrslu vegna
rannsóknar á dauða nígeríska
drengsins Damilola Taylor. Hann
lést af völdum stungusárs sem
hann fékk þegar hann var á leið-
inni heim til sín úr skóla fyrir
viku. Lögreglan sá 100 m blóð-
slóð á götunni og fann drenginn í
stigagangi nálægt heimili hans í
Peckham, illræmdu hverfi í suð-
urhluta London. Hann hafði verið
stunginn í annan fótinn, hugsan-
lega með brotinni flösku, og við
það slitnaði slagæð. Sjúkrabíll
var kallaður út en drengnum
blæddi út áður en hann komst á
sjúkrahús.
Var lagður í einelti
Lögreglan hefur yfii-heyrt tugi
fyrrverandi skólafélaga drengs-
ins en leggur áherslu á að ekkert
bendi til þess að einhverjir þeirra
hafi orðið honum að bana. Móðir
drengsins hefur sakað kennara
skólans um að hafa gert lítið úr
því að hann hefði verið lagður í
einelti í skólanum. Hún sagði að
nemendur hefðu sakað son henn-
ar um að vera „hommi“ og barið
hann þremur dögum áður en
hann var myrtur. „Ég fór til
yfírkennarans og sagði að sonur
minn væri lagður í einelti. Hann
svaraði að einelti væri algengt
meðal drengja og þeir gerðu
þetta við nýja nemendur til að
auðmýkja þá.“
Aðrir foreldrar og fyrrverandi
skólafélagar drengsins staðfestu
að hann hefði verið lagður í ein-
elti. Mark Parsons, yfirkennari
skólans, neitaði því að skólinn
hefði ekki tekið kvartanir um ein-
elti alvarlega. „Ég rannsaka nán-
ast öll slík tilvik. Ég er mjög
stoltur af því hvemig við tökum á
einelti í skólanum," sagði hann.
Breskar barnavemdarstofnan-
ir segjast hafa áhyggjur af vax-
andi ofbeldi meðal bama og segja
að mörg börn líði miklar þjáning-
ar vegna eineltis. „Þetta er þriðja
árið í röð sem einelti er efst á
lista yfir umkvörtunarefni angist-
arfullra bama sem hringja til
okkar, með 22.332 hringingar um
þetta efna,“ sagði bamaverndar-
stofnunin ChildLine. „Sum þeirra
íhuguðu að svipta sig lífi eða
höfðu reynt það.“
„Við vitum að einelti er mesta
áhyggjuefni barna nú til dags,“
sagði Barry Graham, fram-
kvæmdastjóri breskra samtaka
sem beijast gegn ofbeldi gegn
bömum.
Allt að 90 lögreglumenn
rannsaka málið
Lögreglan birti í gær
myndbandsupptöku þar sem
Damilola sést ganga yfir torg í
London nokkram mínútum áður
en ráðist var á hann. Hún kvaðst
vona að upptakan yrði til þess að
nýjar vísbendingar kæmu fram.
Allt að 90 lögreglumenn taka
þátt í rannsókn málsins og er
þetta viðamesta morðrannsókn í
London frá rannsókninni á dauða
sjónvarpskonunnar Jill Dando í
fyrra.
Damilola fluttist með móður
sinni til London fyrir fjóram
mánuðum til að systir hans gæti
gengist undir meðferð við floga-
veiki. Þau bjuggu í leiguhúsnæði í
niðumíddu hverfi sem hefur verið
lýst sem gettói atvinnulausra inn-
flytjenda sem lifi í stöðugum ótta
við ofbeldisglæpi. Hefur málið
vakið umræðu um slæman aðbún-
að innflytjenda í borginni og lög-
reglan hefur verið sökuð um að
láta hjá líða að stemma stigu við
ofbeldinu.
„Um leið og skýrt var frá
dauða hans virtist sem allir vildu
eigna sér Damilola litla og keppt-
ust um að nota hann í þágu eftir-
lætis málstaðar síns,“ skrifaði
Mick Hume í The Times.
Jack Straw innanríkisráðherra
sagði málið endurspegla siðferði-
lega hnignun í þjóðfélaginu sem
lýsti sér í því að fólk léti sem það
sæi ekki ofbeldi á götunum af
ótta við að þurfa að bera vitni.
Vinstrimenn rekja þessa
hnignun til „sjálfselsku og
græðgi", sem þeir segja að
hægrimenn hafi kynt undir á
valdatíma Margaret Thatcher.
Hægrimenn kenna hins vegar
stjórn Verkamannaflokksins um
og segja að hún hafi látið hjá líða
að taka á glæpum og öðram þjóð-
félagsmeinum.