Morgunblaðið - 05.12.2000, Síða 38

Morgunblaðið - 05.12.2000, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Fyrsta íslenska píanókeppnin var haldin um síðustu helgi og var hún á vegum EPTA - Evrópusambands píanó- kennara. Keppt var í þremur flokkum, 1. flokki, miðflokki og framhaldsnámi, auk þess sem veitt var sérstök við- urkenning fyrir flutning á nýju íslensku tónverki. Súsanna Svavarsdóttir ræddi við sigurvegarana fjóra, Hákon Bjarnason, Kristján Karl Bragason, Víking Heiðar Olafsson og Arna Björn Arnason. Getur munað smá- atriðum hvort maður lendir í 1. eða 2. sæti Gott veganesti fyrir fram- haldsnám SIGURVEGARINN í fram- haldsflokki var hinn efnilegi Víkingur Heiðar Ólafsson, sextán ára nemi á 1. ári í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Víkingur var aðeins íimm ára gamall þegar hann hóf nám í píanóleik í Tónmennta- skólanum í Reykjavík, hjá Erlu Stefánsdóttur sem hann segir móður sína hafa valið - í samráði við sig. „Mamma vissi hvað hún var hlý og góð við krakkana sem voru hjá henni í námi og ég var alveg hæstánægður með að fara í tíma til hennar. Ég hefði hitt hana á göngunum í skólanum þegar við mamma vorum að sækja eldri systur mína sem var að læra á íiðlu og Erla var alltaf svo vilj- ug að ræða við mig um gildi lífsins og ýmsa aðra skemmtilega heimspeki," segir Víkingur sem var í námi hjá Erlu írá fimm til tíu ára aldurs, eða þar til hann hafði lokið 4. stiginu. En hver valdi hljóðfærið fyrir hann? „Ég valdi það sjálfur. Ég var farinn að pikka línur á píanóið þegar ég var þriggja ára og langaði til þess að læra á það.“ Eftir Tónmenntaskólann lá leið Víkings í Tónlistarskólann í Reykja- vík þar sem Pétur Maté tók við hon- um. Þegar Víkingur er spurður hver sé sérstaða Péturs sem píanókenn- ara, segir hann: „Það hefur hver kennari sínar að- ferðir til að þjálfa nemendur. Pétur kennir dálítið eftir sovésku hefðinni sem hann lærði, eins og aðrir hérlend- ir kennarar sem koma frá fyrrum Sovétlýðveldunum. Hann hefur mjög gott formskyn og afburða tækni og leggur áherslu á alla þætti jafnt, það er að segja, tækni, túlkun og form- skyn. En það sem hefur líka hjálpað mér er að mamma er píanókennari. Hún hefur alveg frá byijun verið aðstoðar- leiðbeinandi minn og fylgst vel með öllum mínum æfing- um heima.“ Hvað æfirðu mik- ið? , „Ég æfi mig í um það bil fjóra til sex tíma á dag en það er bara síðasta eitt og hálfa árið sem ég geri það. Þetta var dálítið flöktandi hjá mér áður, gat verið allt frá hálfri klukku- stund og upp í þijár ádag. Ég fór ekki að æfa mig að einhveiju marki fyrr en ég var orðinn þrettán, fjórtán ára. Þá fór ég á námskeið hjá gömlum ungverskum meistara, Sebök. Hann kveikti neistann til þess að ég færi að taka píanónámið mun al- varlegar en áður. Þá varð mér ljóst að þetta var eitthvað sem ég vildi starfa við. Síðan hef ég stefnt að því einu að verða píanóleikari.“ Víkingur lýkur einleikaraprófi í febrúar og mars á næsta ári og þegar hann er spurður hvað taki þá við, seg- ist hann ekki vera alveg viss. Eins og áður segir er hann á 1. ári í Mennta- skólanum við Hamrahh'ð og veit að hann þarf að Ijúka stúdentsprófi áður en hann kemst í framhaldsnám í píanóleik erlendis. „Ég hef velt mögu- leikunum mikið fyrir mér. Helst af öllu vildi ég fara út sem fyrst. Einn möguleikinn er að vera í íjarnámi við Menntaskólann á Akui’eyri sem er eini menntaskólinn á landinu sem býður upp á slíkt nám. Ég er að skoða möguleikana og hef ekki tekið neina ákvörðun enn.“ Hvemig fannst þér að taka þátt í píanókeppninni? „Mér fannst það mjög hvetjandi. Fyrir utan það hvað var gott að hafa hana sem markmið í kennaraverkfall- inu, það er mjög hvetjandi fyrir tón- listamemendur að undirbúa sig fyrir keppni af þessu tagi og því að koma fram fyrir dómnefnd. Það er mikið álag. Það er líka gott að fá að æfa sig hér á íslandi í vinsamlegu umhverfi, heldur en að þurfa að byrja í grimm- um keppnum erlendis þar sem jafnvel er verið að koma rakvélarblöðum fyr- ir á milli nótnanna til þess að klekkja á öðmm keppendum." Hvaða verk spilaðir þú í keppninni? „í forkeppninni spilaði ég prelúdíu og fúgu eftir Bach, sónötu eftir Mozart, etýðu eftir Chopin op. 25 nr. 11 og Mephistovals eftir Tsjækofskí." En í úrslitunum? „Þar spilaði ég skylduverkið Sind- ur eftir Þorkel Sigui’bjömsson, píanó- konsert eftir Tsjækofskí og Chopin etýðu op. 25 nr. 12.“ Varstu stressaður? „Já, einkum vegna þess að við þurftum að bíða í heilan sólarhring frá því að keppninni lauk og þar til úr- slitinvorukynnt. Það er í rauninni mjög gaman að taka þátt í svona keppni og sigra. Það getur líka komið sér vel upp á að sækja um styrki og skóla erlendis, einkum vegna þess að keppnin er við- urkennd af Evrópusambandi píanó- kennara." Ætlarðu að taka þátt í fleiri keppn- um á næstunni? „Það er alveg inni í myndinni hjá okkur Ama Bimi að taka þátt í nor- rænni keppni sem verður í Danmörku í sumar. Að öðm leyti er ég ekki að velta keppni fyrir mér í bili. Ég er kannski frekar að hugsa um að sækja ýmis námskeið í píanóleik, áður en ég fer að taka þátt í keppni erlendis - til að þroskast aðeins rneira." Én er ekki þroskandi að taka þátt í keppni sem þessari? „Jú, það er mjög nýtt að standa frammi fyrir dómnefnd þar sem getur munað svo ótrúlega miklum smáat- riðum hvort maður lendir í fyrsta eða öðm sæti. Það em nokkrir einstakl- ingar í dómnefndinni og það getur gert gæfumuninn að aðeins einn þehra gefi mér 8,8 en næsta manni 8,7-eðaöfugt.“ SIGURVEGARINN í miðflokki varð Krist- ján Karl Bragason. Hann var orðinn tólf ára þegar hann byrjaði að læra á píanó - af einhverri alvöru. „Ég hafði að vísu byijað sjö ára gamall á Dalvík, hjá Nigel Lille- crap en ég hef líklega verið of ungur vegna þess að ég nennti ekk- ert að æfa mig og hætti eftir eina önn.“ En aftur var tekið til við píandnámið fimm árum seinna og þá hjá pdlskum kennara sem kenndi á Dalvík, Lydiu Kolosowska. Hjá henni lærði Kristján frá 1994- 1998 en þá settist hann í Mennta- skdlann á Akureyri og hóf píand- nám hjá Marek Podhajski sem er pdlskur. Þegar Kristján er spurður hvort áhuginn hafi strax vaknað eftir að hann fdr að læra hjá Lydiu, segir hann: „Nei, ekki alveg strax. Ég var frekar latur fyrst til að byrja með en sfðan fdr mér að þykja þetta mjög skemrntilegt. Ég fór að hlusta meira á tdnlist og í kjölfarið að fá meiri áhuga. Sá áhugi er er siðan stöðugt að aukast.“ Kristján kemur til með að ljúka 8. stigsprdfi á næsta ári og þegar hann er spurður hvers vegna hann hafi ákveðið að taka þátt í keppn- inni, segir hann kennarann sinn hafa sagt sér frá henni. „Hann mælti með þvf að ég tæki þátt í keppninni. Mér fannst það mjög spennandi og í sumar fdrum við, þrfr nemendur í píandleik, til Varsjár í Pdllandi til þess að fylgj- ast með Chopin-píandkeppninni sem er ein virtasta og frægasta píandkeppni í heimi. Við fdrum sem áhorfendur til að sjá hvemig við ættum að bera okkur að og hvað slík keppni úthcimti." Fannst þér það gdð reynsla að taka þátt í keppninni hér á Islandi? „Já, einhvem veginn var ég ekki eins stress- aður og ég hélt að ég myndi verða. Yfirleitt er ég taugadstyrkur fyrir tdnleika en þetta var líkara því að spila á stigsprdfi, nema það vom fleiri áheyrendur í sjálfri úrslitakeppn- inni.“ Hvað er það við píandið sem heillar þig? „Það era fyrst og fremst möguleikarnir sem það hefur upp á að bjdða. Mér finnst þetta skemmtileg- asta hljóðfærið.“ Gætirðu hugsað þér að leggja píanóleik fyrir þig? „Ég gæti vel hugsað mér að vinna sem konsertpíanisti en ég held að það sé mjög erfitt nema að stunda kennslu í leiðinni og ég held að mig langi ekki til að kcnna - að minnsta kosti ekki enn sem komið er. Ég hef hugsað mér að fara í framhaldsnám erlendis - en það er þd ekki endan- lega ákveðið. Ég hef tvö til þijú ár til að velta því betur fyrir mér.“ Hvemig undirbjdstu þig fyrir keppnina? „Bara eins og fyrir stigsprdf og tdnleika. Kennaraverkfallið kom sér mjög vel og ég gat æft mig vel fyrir kcppnina. Við vorum fjögur frá Akureyri sem tdkum þátt í keppninni og héldum tdnleika á Ak- ureyri og Dalvík þar sem við spiluð- um verkin sem við höfðum æft fyrir liana. Það var mjög gdður undir- búningur." Hvað finnst þér þú hafa fengið út úr þessari keppni? „Ég held að það sé nú alltaf þann- ig að fyrir framtíðina búi vel að því að liafa unnið keppni sem þessa. Það er mikil hvatning. Ég veit líka betur hvar ég stend miðað við aðra Víkingur Heiðar Ólafsson Kristján Karl Bragason HÁKON Bjarnason keppti til sig- urs í 1. flokki, það er að segja í yngsta aldursflokkinum. Hákon er þrettán ára, en er ári á undan jafnöldrum sínum í skóla, í 9. bekk í Árbæjarskóla, eftir að hafa hoppað yfir 3. bekk. Hákon byrjaði átta ára gamall að læra á píanó og kom dálítið óhefðbundna leið að hljóðfærinu. „Ég byrjaði á því að læra á hljómborð hjá Eddu Borg eina önn,“ segir hann. „Ég byrjaði í september og var fram að jólum. Svo var það ekki fyrr en í sept- ember árið eftir að ég fór í einka- kennslu til Elínar Dungal. Þar var ég í eitt ár en seinni hluta þess árs fór ég jafnframt í tíma til Ragnars Björnssonar sem þá var skólastjóri Nýja tónlistarskól- ans. Eftir þennan vetur fór ég í fullt píanónám hjá Ragnari. Hann lést að vísu stut.tu seinna og þá fór ég til Jónasar Sen - og hef verið hjá honum síðan.“ Hvers vegna fórstu að læra á píanó? „Pabbi gaf mér lítið hljómborð sem frændi minn kenndi mér að- eins á og sendi mig síðan til Eddu Borg, á lítið námskeið til að at- huga hvað ég gæti.“ Kom á óvart að sigra Hákon segist strax hafa fengið tilfinningu fyrir því að píanónám væri eitthvað sem hann vildi leggja stund á. Hann er nú á 5. stigi eftir að hafa tekið 4. stigið síðastliðið vor - en það var í rauninni fyrsta stigsprófið sem hann gekkst undir, því hann tók aldrei fyrstu þrjú stigin. Þegar hann er spurður hversu mikið hann æfi sig segist hann reyna að æfa sig eitthvað á hverjum degi. „Fyrir keppnina þurfti ég að æfa mig í að minnsta kosti tvo tíma á dag í sex mánuði,“ segir Hákon og bætir því við að þess vegna hafi mikið af sumrinu farið í æf- ingar - að vísu með smáhléum inn á milli til að fara til útlanda og í sveit. Nú er nokkuð algengt að krakkar leggi tónlistarnám á hill- una á unglingsárunum vegna þess að þá verða önnur áhugamál ofan á. Finnst þér þú aldrei vera að missa af neinu, til dæmis félags- lífmu, vegna hljóðfærisins? „Nei, aldrei. Það er svo gaman að spila.“ Gætirðu hugsað þér að leggja píanó- leik fyrir þig? „Já, það gæti ég - að minnsta kosti enn sem komið er. Ég hef velt þessari spurn- ingu mikið fyrir mér en hef auðvitað ekki tekið neina ákvörðun. Ég hef alveg ágætis tíma fyrir mér.“ Hvers vegna tókstu þátt í keppninni? „Kennarinn minn, Jónas Sen, bauð mér það snemma í vor.“ Fannst þér þetta ekkert stórt skref? „Jú, en ég treysti honum alveg til að leiða mig í gegnum hana.“ Skipta kennarar miklu máli í tónlistarnámi? „Já, góður kennari veit alltaf hvenær á að bæta nýjum hlutum á nemandann. Hann sér líka glöggt hvað þarf að bæta. Mér finnst skipta miklu máli að kenn- ari hafi slíkt næmi.“ En hvað með svona keppni? Finnst þér hún skipta máli? „Já. Eg hef æft mig miklu meira vegna keppninnar og það má segja að í því ferli hafi æfíngarnar orðið eðli- legri hluti af minni daglegu rútínu en áður var. Síðan er það tölu- vert mikið álag að koma fram í svona keppni. Það er allt öðruvísi en að koma fram á tónleikum. Þá eru alls konar áheyr- endur í salnum, bæði fólk sem vinnur við tónlist og fólk sem hefur ekkert vit á henni. En í keppni sem þess- ari veit maður að maður er að koma fram fyrir dómnefnd sem gerþekkir hljóðfærið og þau verk sem verið er að spila - og tekur því eftir öllum smáatriðum - bæði góðum og slæmum." Hvaða verk lékstu í keppninni? „I forkeppninni spilaði ég Bach, Hákon Bjarnason Clementi og Prokofieff en í úr- slitakeppninni spilaði ég Jón Leifs og Scarlatti." Kom þér á óvart að vinna? „Já,“ svarar Hákon - og virðist enn hálfundrandi. Hvers vegna? „Jónas sagði í úrslitakeppninni að þetta væri aðallega keppni milli mín og annars stráks. Mér fannst hann spila svo vel í gegn- um prógrammið að ég var viss um að ég fengi annað sætið. Mér brá mjög mikið þegar tilkynnt var að ég hefði unnið.“ Finnst þér keppnin hafa styrkt þig? „Já, ég er öruggari í þeirri vissu að þetta sé það sem ég vil - og sterkari að því leyti að núna veit ég að ég brotna ekki undir álagi. Eg fékk líka staðfestingu á því að ég geti þjálfað mig upp í að gera píanóleikinn að ævistarfi - ef ég vil það. I mínum flokki voru sex keppendur og það er ekkert verið að senda bara einhverja í þessa keppni, heldur þá bestu.“ Hefðirðu samt orðið sáttur ef þú hefðir ekki unnið? „Já, ég hefði alltaf vitað að ég var að keppa við þá bestu - og að ég stóðst álagið."
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.