Morgunblaðið - 05.12.2000, Side 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
MORGUNBUAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 45
fMttgisiiMiifeÍfe
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson.
Ritstjórar: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
JÁKVÆÐ NIÐURSTAÐA
í BRUSSEL
NIÐURSTAÐA ráðherraráðs
Evrópusambandsins í
Brussel varðandi fiskimjölið
er mikill léttir fyrir okkur íslend-
inga. Landbúnaðarráðherrar ESB
ákváðu í gær að undanskilja fiski-
mjöl frá banni við dýramjöli í
skepnufóðri. Afstaða þeirra byggist
á því, að fiskimjöl sé ekki hættulegt
og að einfalt sé að greina það, sem
ekki á við um dýramjöl.
Þessi niðurstaða er mikið fagnað-
arefni fyrir okkur. Bann við notkun
fiskimjöls í ESB-löndunum hefði
verið reiðarslag fyrir sjávarútveginn
og þau fyrirtæki sérstaklega, sem
stunda loðnuveiðar og loðnuvinnslu.
Því áfalli hefur nú verið afstýrt.
íslenzka stjórnkerfið hefur staðið
sig vel í þessu máli. Framganga
embættismanna utanríkisráðuneyt-
isins og þeirra ráðherra, sem að
málinu hafa komið, hefur verið til
fyrirmyndar. í málum sem þessum
er aldrei hægt að fullyrða hvað hafi
ráðið úrslitum. En ekki fer á milli
mála, að sjónarmiðum íslendinga
hefur verið komið rækilega til skila.
Við höfum átt áhrifamikla banda-
menn,í þessu máli, sem áttu líka
mikilla hagsmuna að gæta. Þar hafa
Danir augljóslega verið fremstir í
flokki enda mikið í húfí fyrir þá.
Ritt Bjerregaard, matvælaráð-
herra Dana og fyrrum meðlimur
framkvæmdastjórnarinnar, sagði
um niðurstöðu málsins í gær: „Eg
þakka samstarfsmönnum mínum og
þá einkum stuðningi Frakka það að
fiskimjölið skyldi tekið út en þeir
sem forsætisþjóð ESB lögðu fram
breytingartillöguna, þar sem fiski-
mjöl er undanþegið. Ég hef rætt við
fjölmarga vegna þessa máls en þetta
er ekki aðeins danskur sigur, við
höfum notið stuðnings þjóða á borð
við írland, Portúgal, Grikkland og
Frakka í þessu máli.“
Ljóst er að Ritt Bjerregaard hef-
ur fylgt fast eftir þeim fyrirheitum,
sem hún gaf Halldóri Asgrímssyni
utanríkisráðherra í samtali þeirra í
milli sl. föstudag.
Gunnar Snorri Gunnarsson, sendi-
herra íslands í Brussel, segir um af-
greiðslu málsins í samtali við Morg-
unblaðið í dag: „Það var greinilegt
að Portúgalir og Spánverjar höfðu
ekki íhugað þetta til fullnustu og
þeir voru afar jákvæðir. Hins vegar
var það áberandi að sumar þjóðir
greiddu atkvæði með upprunalegu
tillögunni, þótt þær hefðu alvarlegar
athugasemdir við einstök atriði
hennar. Það er greinilegt að svig-
rúm fulltrúanna var ekkert. ... Við
notuðum þau tæki, sem við höfðum.
ísland var ekki eina landið utan
ESB, sem beitti sér í málinu. Norð-
menn eiga einnig hagsmuna að gæta
og ýttu á embættis- og stjórnmála-
menn, svo og Perú- og Chile-búar,
sem höfðu miklar áhyggjur af bann-
inu. Niðurstaðan var sú, að allar
ESB-þjóðirnar vissu hver afstaða
okkar var, hún komst skýrt til skila.
Þetta mál er óvenjulegt vegna þess
hve skyndilega það kom upp og sú
skelfing, sem greip um sig. Það var
afsökunartónn hjá mörgum þjóðum
vegna þessa.“
Þótt betur hafi farið en á horfðist í
þessu máli, sýnir þessi óvænta
atburðarás, að lítið má út af bera til
þess að atvinnuvegir okkar og af-
koma verði fyrir verulegu áfalli.
ESB OG FISKKVOTAR
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins hefur lagt til
gífurlegan niðurskurð á fískkvótum í
Norðursjó, við Vestur-Skotland og
írland og í Biskajaflóa. Talsmenn
sjávarútvegsins á þessum svæðum
telja tillögu framkvæmdastjórnarinn-
ar jafngilda dauðadómi yfir útgerð og
fiskvinnslu komi hún til framkvæmda
í óbreyttri mynd. Lokaákvörðun í
málinu verður tekin 14. desember nk.
á fundi landbúnaðar- og sjávarút-
vegsráðherra ESB.
Astæðan fyrir þessum róttæku til-
lögum framkvæmdastjórnarinnar er
yfirvofandi hrun í fiskistofnum í
Norðursjó og á vestursvæðunum við
Skotland og Irland, svo og í Biskaja-
flóa. Fiskifræðingar áætla, að hrygn-
ingarstofn þorsks í Norðursjó sé nú
um 70 þúsund tonn, en líffræðileg
hættumörk eru talin vera um 150 þús-
und tonn að þeirra mati. Þetta undir-
strikar hversu alvarlegt ástand
þorskstofnins er, en árið 1970 var
hrygningarstofninn um 250 þúsund
tonn.
Þorskkvótinn er 80 þúsund tonn á
þessu ári, en tillögurnar gera ráð fyr-
ir, að hann verði á bilinu 40-50 þús-
und tonn á næsta ári í Norðursjó og
sami niðurskurður verði á vestur-
svæðunum við Skotland og Irland.
Verulegur niðurskurður verður einn-
ig á ýsu- og skarkolastofninum þar og
síldveiði á vestursvæðinu verður auk
þess skorin niður um 27%. Lýsings-
kvótinn í Biskajaflóa verður skorinn
niður úr 42 þúsund tonnum í ár og nið-
ur í 11 þúsund tonn á næsta ári verði
tillögurnar samþykktar.
Það segir sig sjálft, að tillögur
framkvæmdastjórnarinnar eru mikið
áfall fyrir veiðar og vinnslu innan
Evrópusambandsins. En þær eru líka
mikið áfall fyrir sjávarútvegsstefnu
ESB. Það er með ólíkindum, að fram-
kvæmdastjórnin skuli ekki hafa grip-
ið harkalegar í taumana fyrr og að
hún hafi ekki meiri stjórn á fiskveið-
unum en nú er komið á daginn. Það er
meira en lítið undarlegt, að stærð
hrygningarstofns þorsks í Norðursjó
nær ekki helmingi af því, sem talin
eru líffræðileg hættumörk.
Hagsmunasamtök í sjávarútvegi í
Evrópusambandinu munu vafalaust
reyna að milda þessar síðbúnu að-
gerðir, sem fyrirhugaðar eru nú. En
hvorki yfírstjórn ESB né hagsmuna-
aðilar í sjávarútvegi geta fram hjá því
litið, að hrun fiskistofnanna blasirvið.
Launanefnd sveitarfélaga og grunnskólakennarar kynna stefnuyfírlýsingu
Kerfísbreytingar veiti
svigriim til kjarabóta
LAUNANEFND sveitarfé-
laga og samninganefndir
Félags grunnskólakenn-
ara og Skólastjórafélags
íslands hafa náð samkomulagi um
sameiginlega stefnuyfirlýsingu í
tengslum við gerð nýrra kjarasamn-
inga. Var yfirlýsingin kynnt á
fréttamannafundi í gær. Er hug-
mynd samningsaðila sú að væntan-
legur kjarasamningur verði notaður
sem tæki til að endurskoða skóla-
starf en meðal áhersluþátta í yfir-
lýsingunni er að komið verði á kerf-
isbreytingu í grunnskólum, m.a.
með nýjum áherslum í störfum
kennara og skólastjómenda og að
skapa svigrúm til kjarabreytinga.
Stefnt að því að ljúka
samningum fyrir jól
Samningsaðilar hafa jafn-
framt sammælst um endur-
skoðaða viðræðuáætlun og
stefna ákveðið að því að ljúka
kjarasamningi fyrir grunn-
skólann fyrir jól, án aðstoðar
ríkissáttasemjara, að sögn
forsvarsmanna samninga-
nefndanna.
Þrátt fyrir þetta sam-
komulag er enn ósamið um
launabreytingar í væntanleg-
um samningi og um fjöl-
marga þætti sem ágreiningur
hefur verið um s.s. um fjölg-
un kennsludaga og lengingu
á starfstíma í skólum. Grund-
vallarágreiningur hefur einn-
ig verið um afnám kennsluaf-
sláttar kennara sem náð hafa
55 og 60 ára aldri, en þetta
mál er enn óútkljáð, að sögn
talsmanna samningsaðila.
Forsvarsmenn samning-
anefndanna leggja áherslu á
að rætt verði um einstök at-
riði sem enn er ósamið um út
frá stefnuyfirlýsingunni í
öðrum áfanga viðræðnanna,
sem ætlað er að standi til 15. desem-
ber. Samningsaðilar stefna að því að
ná samkomulagi um meginmarmið-
in í kjarasamningum fyrir miðjan
mánuðinn. í þriðja og síðast áfanga
viðræðnanna verður svo tekist á um
hvaða brejdingar verða gerðar á
grunnskólanum og á kjörum kenn-
ara og skólastjómenda, þ.e. frá 16.
desember, gangi viðræðuáætlunin
eftir. Þá á textavinna við nýjan
samninga að hefjast og er reiknað
með að henni verði lokið fyrir 23.
desember.
Dregið verði úr miðstýringu
Meginmarkmið stefnuyfirlýsing-
ar launanefndar sveitarfélaga og
Kennarasambandsins er að bæta
skólann og að skólastarf verði ár-
angursríkara. „Til þess að ná þess-
um markmiðum verða völd og
ábyrgð að fara saman. Þess vegna
verður fagfólkið í skólanum - kenn-
arar og skólastjórnendur - að hafa
meira að segja um hvernig það
skipuleggur störf sín og ber ábyrgð
á þeim. Virkt samstarf foreldra og
skóla er einnig forsenda árangurs-
ríkara skólastarfs. Markmiðið er að
tryggja hag nemenda. Þannig mun
skólinn þróast best.
Stefnt er að því að draga úr mið-
stýringu og auka möguleika sveitar-
félags, skólastjórnenda og kennara,
á því að skipuleggja skólastarfið eft-
ir þörfum nemendanna. Lágmarks-
kennslustundafjöldi nemenda og ár-
legur vinnutími kennara setja ytri
ramma þessa verkefnis.
Samningsaðilar hafa ákveðið að
ráðast í að bæta skólastarf með
kerfisbreytingu sem skapar ákveðið
svigrúm til kjarabreytinga og getur
gert skólann samkeppnisfæran og
kennarastarfið eftirsóknarvert.
Gert verði ennfremur ráð fyrir að
breyta vinnutímaskilgreiningu
kennara. Þannig öðlast skólarnir
aukið svigrúm til að taka upp nýja
Samninganefndir launanefndar sveitarfé-
laga, grunnskólakennara og skólastjórn-
enda stefna að því ljúka gerð kjarasamn-
ings vegna grunnskólans fyrir jól.
Samningsaðilar kynntu í gær sameigin-
lega stefnuyfírlýsingu um bætt skólastarf
með kerfisbreytingum sem skapi
svigrúm til kjarabreytinga, geri skólann
samkeppnisfæran og kennarastarfíð
eftirsóknarvert.
Morgunblaðið/Golli
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, Birgir Björn Sigur-
jónsson, formaður samninganefndar Launanefndar sveitarfélaga, og Þorsteinn
Sæberg, formaður Skólastjórafélags íslands, kynna stefnuyfirlýsingu vegna kjara-
samninga á fréttamannafundi.
starfshætti og breytt skipulag,“
segir í stefnuyfirlýsingunni.
Einsdæmi í kjaradeilu?
Birgir Bjöm Sigurjónsson, for-
maður samninganefndar launa-
nefndar sveitarfélaga, Guðrún
Ebba Ólafsdóttir, formaður Félags
grunnskólakennara og Þorsteinn
Sæberg, formaður Skólastjórafé-
lags íslands, kynntu stefnuyfirlýs-
inguna á fréttamannafundinum í
gær. Þau voru sammála um að um
merkan áfanga væri að ræða og
sögðust telja það einsdæmi að
samningsaðilar setji í miðjum samn-
ingaviðræðum fram sameiginlega
stefnuyfirlýsingu vegna samninga
með þessum hætti.
„Við ákváðum í upphafi þessara
viðræðna að við myndum leitast við
að skoða hvaða framtíðarsýn við
hefðum um grunnskólann. Grunn-
skólinn er ein af mikilvægustu
stofnunum samfélagsins og stærsta
stofnunin sem sveitarfélögin reka
og árangursríkt starf í grunnskól-
anum er auðvitað lykilatriði fyrir
sveitarfélögin,“ sagði Birgir Björn.
Sagðist hann líta svo á að um væri
að ræða tímamótayfirlýsingu af
hálfu 124 sveitarfélaga landsins og
Kennarasambandsins vegna grunn-
skólakennara og stjórnenda í
grunnskólunum.
„Við viljum kynna fyrir sveitar-
félögunum af hálfu launanefndar-
innar að við séum að vinna okkar
verk, faglega og með langtímahags-
muni þeirra í huga. En við viljum
líka setja þau í viðbragðsstöðu um
hvað er framundan, því innan mjög
skamms tíma, fyrir áramót eða jól,
gæti þurft að taka afstöðu nýs
kjarasamnings við Félag grunn-
skólakennara og Skólastjórafélag-
ið,“ sagði Birgir Björn.
Guðrún Ebba sagði að samnings-
aðilar litu ekki á viðræðumar sem
kjaradeilu. Aðspurð sagði hún að
ekki lægi fyrir niðurstaða í viðræð-
unum um þau atriði sem reynt verð-
ur að ná samkomulagi um fyrir 15.
desember, „en það er einlægur vilji
Rætt um lengri
starfstíma skóla
Samninganefndir grunnskólakenn-
ara og sveitarfélaganna ætla að
reyna að ná samkomulagi um eftir-
talin atriði fyrir 15. desember:
• Lenging á starfstíma skóla.
• Aukinn sveigjanleiki varðandi
upphaf og lok á starfstíma skóla.
• Fjölgun nemendadaga.
• Aukin verkstjóm skólastjórn-
enda á skólastarfi.
• Aukið samstarf og samábyrgð
kennara á námi nemenda.
• Endurskoðun á hlutverki um-
sjónarkennara.
• Endurskilgreining á vinnutíma/
vinnuskyldu kennara.
• Endurskoðun á símenntun kenn-
ara og skólastjómenda.
• Handleiðsla fyrir kennara.
• Athugun á hugmyndum um hám-
arksfjölda „nemendagilda".
• Skoðun á málefnum annarra
hópa kennara og námsráðgjafa.
• Endurskoðun á launum og öðrum
kjömm kennara og skóla-
stjómenda í Ijósi þeirra breytinga
sem aðilar em ásáttir um og ósk-
ir kennara um að gera laun og
starfslgör þeirra samkeppnisfær
við aðra háskólamenntaða hópa.
til þess að reyna að leysa vandamál
sem upp kunna að koma í tengslum
við kjarasamninga um öll þessi at-
riði,“ sagði hún. „Við stefnum að því,
og við meinum það, að ljúka samn-
ingagerðinni fyrir áramót og fyrir
jól,“ sagði hún.
Þorsteinn lýsti ánægju með
hvernig staðið hefði verið að undir-
búningi kjaraviðræðnanna og sagð-
ist vilja undirstrika þann vilja og
áhuga sem sveitarfélögin hefðu sýnt
grunnskólanum með því að koma
með þessum hætti að viðræðunum
og að líta á grunnskólastarfið í nýju
ljósi.
Hagsmunaaðilum boðin
þátttaka í grunnskólaráði
Stefnuyfirlýsingin er í 15 liðum.
Þar kemur m.a. fram sam-
komulag um stofnun grunn-
skólaráðs sem hafi það hlut-
verk að stuðla að stöðugri
þróun grunnskólans og efla
hlutverk hans í samfélags-
þróuninni í takt við vaxandi
mikilvægi þekkingar og
hæfni. „Samband íslenskra
sveitarfélaga býður eftir-
töldum hagsmunaaðilum að
taka þátt í stofnun grunn-
skólaráðs: menntamálaráð-
herra og fulltrúum atvinnu-
lífs, háskóla, framhalds-
skóla, leikskóla, foreldra,
kennara, skólastjórnenda og
nemenda,“ segir í stefnuyfir-
lýsingunni.
Birgir Björn sagði að með
þessu nýmæli sé ætlunin að
kalla allar helstu stofnanir
samfélagsins til samábyrgð-
ar um grunnskólann.
Lögð er áhersla á það í yf-
irlýsingunni að rannsóknir á
skólastarfí verði efldar og
þróaðir veðri mælikvarðar á
frammistöðu skóla. Samn-
ingsaðilar eru sammála um
að auka gæði starfs í grunnskólum
með kerfisbundinni skólaþróun.
Einnig koma fram nýjar áherslu í
starfi kennara og skólastjóra í yfir-
lýsingunni. „Skólinn hefur verið að
þróast frá kennslustofnun í lærdóm-
stofnun þannig að nemandinn beri
meiri ábyrgð á námi sínu; að hann
læri að læra. Nýjar áherslur í skóla-
starfi, breytt skipulag skólastarfs
og lögboðnar skyldur kalla á breyt-
ingar á störfum kennara og heildar-
skilgreiningum á vinnutíma yfir
skólaárið," segir þar ennfremur.
Jafnframt kemur þar fram að
breytt viðhorf og ný sýn á skóla-
starfið, sem feli m.a. í sér sveigjan-
legt vinnuskipulag, krefjist aukinn-
ar starfsmannastjórnunar og með
auknu sjálfstæði skóla aukist
rekstrarleg ábyrgð skólastjóra.
Aukin verkaskipting
í tíunda lið yfirlýsingarinnar seg-
ir að meginhlutverk kennara sé
kennslu- og uppeldisfræðilegt starf
með nemendum. „Þessu hlutverki
má einnig lýsa sem forystuhlut-
verki; að vera leiðtogi í námi nem-
andans. Þetta felur í sér að færa
áherslu frá hefðbundinni kennslu í
þá átt að skapa nemendum ftjóar
námsaðstæður. Verkefni kennarans
og hlutverk hans verður fjölbreytt-
ara og sveigjanlegra. Með aukinni
verkaskiptingu milli kennara gefast
betri tækifæri til að hagnýta bæði
getu einstakra kennara og alls
kennarahópsins. Með minni mið-
stýringu bera kennaramir bæði
hver fyrir sig og sameiginlega meiri
ábyi-gð á starfi skólans og skólaþró-
un á hverjum stað. Samstarf við
skipulagningu, útfærslu og eftir-
fylgni í skólastarfinu verður þar
með eðlilegur hluti af starfi kenna-
rans. Þetta gefur einnig tækifæri til
framgangsmöguleika og starfsþró-
unar í grunnskólanum," segir í
stefnuyfirlýsingunni.
+
Nadeza frá Lettlandi, Tom frá ísrael og Oksana frá Eistlandi.
Morgnnblaðið/Þorkell
Námskeið í íslensku fyrir útlendinga hjá Námsflokkum Reykjavíkur
Nemendur
eru frá 66
löndum
Nemendum á námskeiðum í íslensku fyrir
útlendinga fjölgar stöðugt. Nú sitja á
sjötta hundrað manns frá 66 löndum slík
námskeið hjá Námsflokkum Reykjavíkur
en á árinu hafa alls um 1.300 manns
setið þessi námskeið.
ASJÖTTA hundrað manns
frá 66 löndum stunda nú
nám í íslensku fyrir út-
lendinga hjá Námsflokk-
um Reykjavíkur, „en á þessu ári, að
meðtöldum sumarnámskeiðum,
hafa alls um 1.300 manns verið á
þessum námskeiðum hjá okkur,“
segir Guðrún Halldórsdóttir, for-
stöðumaður Námsflokkanna.
„Stærsti hluti þeirra sem sækja
námskeið hjá okkur er fólk sem
ætlar að setjast hér að en svo eru
líka margir sem ætla að vera hér
tímabundið en vilja læra málið og
svo eru enn aðrir sem koma hingað
gagngert til að læra íslensku," seg-
ir Guðrún. Hún segir greinilegt að
þeir sem ekki tala ensku finni sig
knúnari til að læra íslensku og eins
segir hún að sumir sem ekki eru
enskumælandi taki enskunámskeið
hjá Námsflokkunum samhliða ís-
lenskunáminu.
Boðið er upp á fimm stig í
íslenskukennslunni auk þess sem
haldin eru talnámskeið, skrifnám-
skeið og sérstök námskeið fyrir þá
sem ekki eru læsir á latneskt staf-
róf. Hvert námskeið tekur tæplega
þrjá mánuði, eða eina önn og eru
haldin námskeið á haust- og vorönn
og á sumrin. Guðrún segir að nokk-
uð sé um að börn og unglingar sæki
hjá þeim sumarnámskeið, en á vet-
urna fái þau jafnan þá íslensku-
kennslu sem þau þurfa í skólanum.
Hins vegar sé nokkuð um að börn
og unglingar sæki hjá þeim nám-
skeið í sínu eigin móðurmáli á vet-
uma.
Námskeið á vinnustððum sem
sniðin eru að starfsgreinum
„Svo erum við einnig farin af stað
með námskeið sem helguð eru viss-
um starfsstéttum," segir Guðrún,
„þar er kjarninn náttúrlega ís-
lenskan en svo er tekið mið af því
við hvað fólkið er að vinna og kennd
orð og frasar sem er gagnlegt að
kunna í ákveðnum störfum." Hún
segir að námskeið þessi séu haldin
á viðkomandi vinnustöðum og að
þau séu þá haldin á vinnutíma
starfsmanna og ýmist greidd af
vinnustaðnum, starfsmannafélög-
um eða með styrkjum frá hinu op-
inbera. Námskeið sem þessi séu til
dæmis haldin á sjúkrahúsum, í
verksmiðjum fiskvinnslustöðvum
og áveitingastöðum.
„Á þeim vinnustöðum sem þessi
námskeið hafa verið haldin, segir
fólk að gjörbreyting hafi orðið á
andrúmsloftinu og samskipta-
mynstrinu. Fólkið þori að tala
meira saman, það tali við íslending-
ana og íslendingarnir við það,“ seg-
ir Guðrún.
Ánægðir með að hafa fengið
íslenskukennslu strax
Blaðamaður og ljósmyndari litu
inn í kennslustofur hjá tveimur
hópum sem sátu kennslustundir
hjá Námsflokkunum nú í vikunni.
Annars vegar hjá hópi sem saman-
Morgunblaðið/Þorkell
Masood frá Afganistan, Fadil frá Kosovó og Henry frá Burma.
stendur af flóttamönnum frá ýms-
um löndum sem hafa verið hér frá
því í sumar eða haust og bíða þess
að fá svar við umsóknum sínum um
pólitískt hæli hér á landi. Masood
Kharotí frá Afganistan, Fadil
Thaqi frá Kosovó og Henry Young
frá Burma eiga heima í Kópavogi
en koma fótgangandi niður í Mið-
bæjarskóla þrisvar í viku til að
sækja íslenskutíma.
Þeir segjast ánægðir með að hafa
fengið íslenskukennslu strax og
þeir komu til landsins og að sá
orðaforði sem þeir hafi tileinkað sér
á síðustu vikum, þótt takmarkaður
sé, komi sér afar vel og auðveldi
þeim samskipti við fólk hér á landi.
Lærði íslensku með því að
skoða íslenskar heimasíður
Nadeza Tarvida frá Lettlandi,
Tom Brenner frá ísrael og Oksana
Shalabai frá Eistlandi komu öll til
íslands fyrr á þessu ári og eru sam-
an á talnámskeiði hjá Námsflokk-
unum. Tom hafði reyndar komið
hingað einu sinni áður en hann seg-
ist hafa brennandi áhuga á íslandi
og íslensku og langar til að setjast
hér að.
„Mig langar að læra læknisfræði
hér og ætla að byrja í Háskólanum
hér næsta haust,“ segir Tom. „Eg
fékk áhuga á því að koma til íslands
þegar ég las um ísland og Háskól-
ann á Netinu. Ég lærði líka smá-
vegis í íslensku með því að skoða ís-
lenskar heimasíður á Netinu. Mér
finnst gott að vera hér, það er svo
kyrrt og hljótt og svo finnst mér
veðrið líka gott,“ segir hann og
bætir því við að fólk hér brosi
gjarnan að því að hann skuli nefna
veðrið sem eina af ástæðum þess að
honum líki svona vel við landið.
Nadeza er að þjálfa fimleika hjá
Gerplu og segist kunna vel við sig
hér og að hún geti vel hugsað sér að .
setjast að, þótt hún hafi ekkert
ákveðið í þeim efnum enn sem kom-
ið er. Hún segist jafnframt hafa
fundið sig knúna til að læra ís-
lensku því hún vinni mikið með
bömum sem ekki tali ensku.
Erfítt að læra íslensku, sér-
staklega ef maður kann ensku
„Börnin eru mjög hjálpleg. Þau
útskýra fyrir mér hvað orðin þýða
og leiðrétta mig þegar ég segi eitt-
hvað rangt og mér finnst það mjög
gott. Þau eru mjög þolinmóð við
mig,“ segir Nadeza.
Oksana er gift íslenskum manni
og hefur hugsað sér að setjast hér
að og segist tvímælalaust vilja læra
íslensku þó að hún finni að það sé
ekki nauðsynlegt þar sem hún talar
góða ensku. Hún segir að hún geti
talað við alla sem hún þurfi að hafa
samskipti við á ensku, „en mér
finnst miklu betra að læra íslensku
líka. Það er samt mjög erfitt að
læra þetta mál og örugglega erfið-
ara ef maður talar ensku því þá
neyðist maður ekki til að tala ís-
lensku og getur þannig séð komist
hjá því að læra hana,“ segir Oks-
ana.
Nadezaog Oksana segjast báðar
telja að íslendingar séu almennt
mjög hjálplegir og þolinmóðir þeg-
ar kemur að því að hlusta á og
reyna að skilja þeirra „takmörkuðu
og björguðu íslensku“, eins og þær
orða það.
„Aðrir útlendingar sem við
þekkjum hér segja það sama. Að ef
þeir skilji ekki þá sé fólk yfirleitt
tilbúið að útskýra og aðstoða eftir
þörfum," segir Oksana.