Morgunblaðið - 05.12.2000, Page 49

Morgunblaðið - 05.12.2000, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 49 Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson Islenski kórinn í London syngur í Þúsaldarhvelfingunni. Þorsteinn Pálsson, sendiherra í London, og framkvæmdastjóri Þúsaldarhvelfíngarinnar, Pierre Yves Gebau. landi en hann hefur einnig j haldið tónleika á meginlandi Evrópu, Norðurlöndum, Am- eríku, á Islandi og á Kanarí- eyjum. Kórfélagar skörtuðu margir hverjir íslenskum búningi og vakti það óneitanlega athygli gesta, sem voru tæplega þrjá- tíu þúsund talsins þegar best lét. Sem mannvirki orkar Dómurinn óneitanlega sterkt á mann og þó að hann hafi feng- j ið slæma umfjöllun breskra | fjölmiðla og fjármálin séu öll í hönk virðast flestir sem heim- sækja hann í eigin persónu hafa gaman af. Framkvæmda- stjórinn, Pierre Yves Gebau, var mættur til að fylgjast með íslensku hátíðahöldunum og lýsti hann ánægju sinni með Islandsdaginn. Veður var fremur napurt og svalt þennan sunnudag og taldi Pierre það bara vera hið besta mál þar j sem það minnti enn frekar á Island. Hann sagði Þúsaldarhvelfinguna næstmest sótta skemmtistað í Evrópu, aðeins Disneyland í París sæktu fleiri gestir, en þar starfaði Gebau þegar hann var fenginn fyrr á árinu til að bjarga rekstri Þús- aldarhvelfingarinnar í London. „Fimm og hálf milljón gesta hefur komið hingað það sem af er árinu og reksturinn stendur vel að vígi, það voru mistök að áætla að tólf milljónir myndu koma, eins og upp- haflega var gert, og það voru mis- tök að láta stjórnmálamenn skipta sér of mikið af rekstrinum," sagði Gebau. Og þegar hið mislukkaða demantarán barst í tal hryllti hann sig og sagði að það hefði ekki verið neinn James Bond-bragur á því og það hefði ekki verið huggulegt að vita til þess að menn voru hlaupandi þarna um með hlaðnar byssur. „Starfsfólkið hér var í sjokki á eft- ir.“ Sem stendur eru eftirlíkingar af demöntunum til sýnis og ekki lík- legt að það verði hægt að sýna hina ósviknu gimsteina og er það vegna vandkvæða í tengslum við trygg- ingamál. Það er verið að skrifa handrit að tveimur kvikmyndum sem byggjast á demantaráni, en Pierre Yves Gebau sagðist ekki hafa fengið nein tilboð um hlut- verk. Til hliðar við sviðið var lít- ið sýningarsvæði tileinkað Islandi, þar voru til sýnis fjórar höggmyndir eftir Guð- rúnu Nielsen myndhöggvara sem er búsett í London. f bakgrunninn voru stórar landslagsmyndir frá íslandi og bæklingar frá Ferðamála- ráði lágu frammi og ferða- skrifstofurnar Aretic Exper- ience og Northern Lights, sem sérhæfa sig í ferðum til íslands, voru með kynningu á sinni starf- semi. Þetta framtak var styrkt af Ferðamálaráði, Arctic Experience, Northern Lights og Egilssjóði Skalla-Grímssonar, en það er sjóður sem var stofnaður af íslenskum fyr- irtækjum sem starfa á Bretlandi. Flugleiðum var ekki leyft að koma nærrí íslandsdeginum því Þúsaldar- hvelfingin er með styrktarsamning við British Airways. Það var sendiráðspresturinn Jón A. Baldvinsson sem stóð að skipu- lagningu íslandsdagsins og var hann ánægður með daginn og taldi að hann hefði tekist vel í alla staði. Elínborg segir að þetta hafi alltaf búið í henni. „Ég var svo heppin að þegar ég var stelpa var stofnuð barnadeild við Handíða- og mynd- listarskólann, eins og hann hét þá. Kurt Zier var þá skólastjóri og þetta var mjög góð deild. Benedikt Gunn- arsson listmálari var kennari minn, alveg frábær og hugmyndaríkur kennari. Ég hringdi til hans þegar ég bjó heima og hann mundi strax eftir mér eftir 30 ár.“ Benedikt kveðst vel muna eftir því að hann fór með krakkana í leikhús og á sýningar og lét þau svo vinna úr því sem þau höfðu séð, var að prófa minni þeirra á liti og form. Þau unnu svo saman stór verk í hópvinnu. Hann segir að Elínborg hafi þá strax sýnt hæfileika og haft forustu í hópnum. Elínborg segir að í menntaskóla hafi þessi áhugi þó dofnað, enda þá ekki kenn- ari sem hvatti hana. Þetta lá því í lág- inni þar til 1986 að hún fór að fara á námskeið hjá austurrískum kennur- um. Sótti tíma hjá þremur þekktustu vatnslitamálurum Austurríkis og hefur einbeitt sér að vatnslitunum síðan. Hún kveðst á sínum tíma hafa byrjað á vatnslitum vegna þess hve auðvelt sé að taka þá upp og komast í gang eftir vinnu. Og heillaðist svo af því að hún notar hverja stund og öll frí til að ferðast og mála. Vatnslita- myndirnar eru svo spennandi af því að þar verða svo óvæntar uppákom- | ur. Ekkert er hægt að leiðrétta. Myndin verður því svo spontant, út- skýrir hún. Hefur Elínborg ekki áform um að sýna verk sín heima á íslandi? Hún kveðst alltaf fara út með litina sína og mála þegar hún er heima á í slandi og langa til þess að halda í þær myndir og safna þeim á sýningu. Þetta ár sem hún vann heima kveðst hún þó ekki hafa verið nógu dugleg, enda var hún þá að vinna svo mikið og endurnýja tengslin. En hugmynd- in lifir enn. Ókeypis lögfræðiaðstoð öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012 _____Orator, félag laganema_ Loðhúfur Úrval af mjög vönduðum loðhúfum I Stökktu til Kanarí frá um jólin i kr. 49.985 Út 17. des. Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að HBÍIfl 26. deS. komast i sólina um jólin á verði sem ekki Síðustu sætin hefur sést fyrr. Um jólin er 20 - 25 stiga hiti —. á Kanarí, frábært veðurfar og þú getur notið jólanna á Kanarí og áramót- anna heima á íslandi. Þú bókar ferðina núna og tryggir þér síðustu sætin um jólin og 4 dögum fyrir brottför, hringjum við í þig og látum þig vita hvar þú gistir, og á meðan á dvölinni stendur nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann. Verðkr. 49.985 Verðkr. 59.930 M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, M.v. 2 í íbúð, gisting, skattar. flug og skattar. 17. desember, 9 nætur. 17. desember, 9 nætur. Heimsferðir Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Barnapía eða dyravörður i jolagiof Myndavélar sem sjó og þoð « sjónvnrpinu þmu. Verð 9.80U r* myndavélina þar sem * fjþ barnaherbergið' ■SÉpti/r -rS JSf' Við tengjum myndavélina /r ÆBfr við sjónvarpið, siðan stjórnar þú eftirliti með fjarstýringunni. Við bjóðum lika aðra myndavél með hreyfiskynjara og lit. Verði hreyfing, setur myndavélin sjónvarpið i gang. Verð kr. 14.800 Báðar gerðir sjá og heyra i myrkri (infrarautt Ijós) Einnig bjóðum við myndavél og lítinn skjá (12.5 cm) hentugt fyrir verslanir, heimili, barnapössun, verksmiðjur, spitala, skrifstofur, vöruhús, flutninga, bila, skip o.fl. Verð á myndavél og skjá kr. 22.300 Glói hf. - Dalbrekku 22 - Kóp. - sími 544 5770 AUGLÝSINGADEILD Sími: 569 1111. Bréfsími: 569 1110 Netfang: augl@mbl.is % mbl.is \LLTA/= eiTTHVAO NÝTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.