Morgunblaðið - 05.12.2000, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 51
HINN 23. nóvember var sam-
þykkt í Brussel ný kvikmynda-,
sjónvarps- og margmiðlunaráætl-
un Evrópusambandsins, MEDIA
Plús, sem tekur gildi l.janúar
2001 og stendur til 31.desember
2005. Þá var
samþykkt að til
hennar skyldu renna 400 milljón
evrur (tæpir 30 milljarðar ís-
lenskra króna). Hluti þeirrar upp-
hæðar, 50 milljón evrur (ríflega
3,5 milljarðar íslenskra króna),
rennur til framhaldsmenntunar
fagfólks (notkun stafrænnar
tækni, sala, handritagerð o.s.fr.)
og afgangurinn til þróunar verk-
efna, dreifmgar og kynningar.
Þetta er nokkur hækkun frá fjár-
hagsáætlun MEDIA 2 áætlunar-
innar (1996 - 2000) sem var 310
milljón evrur (tæpir 23 milljarðar
íslenskra króna).
Þau þrjú aðildarríki sem höfðu
óskað eftir lægri fjárhæð (Bret-
land, Holland og Þýskaland) sam-
þykktu á þessum síðasta ráð-
herraráðsfundi ársins uppá-
stungu framkvæmdastjómar
Evrópusambandsins um hækkun
í 400 milljón evrur. Sá hluti sem
snýr að framhaldsmenntun þarf
nú að fara aftur fyrir þingið til
samþykktar, áður en ráðherra-
ráðið samþykkir hann endanlega.
Hinn hlutinn, sem snýr að þróun,
dreifingu og kynningu, þarf ein-
ungis að fá formlega meðhöndlun.
Ráðherramir vom sammála
um að skipting milli liða yrði
væntanlega um 20% til þróunar
verkefna, 57,5% til dreifingar,
8,5% til kynningarmála og 5% til
nýrra verkefna. Þessi liður er nýr
og aðallega ætlaður til verkefna
sem miða að aukinni notkun staf-
rænnar tækni. Að lokum munu
9% renna tO reksturs áætlunar-
innar, m.a. til upplýsingaskrif-
stofa MEDIA, sem staðsettar eru
í öllum aðildaníkjum áætlunar-
innar.
Viviane Reding, menningarráð-
herra ESB fagnaði því að ráð-
herraráðið hefði samþykkt tillögu
framkvæmdastjórnarinnar sem
„túlkaði vilja Evrópusamban-
dsríkja til að aðstoða fagfólk við
að koma á framfæri samkeppnis-
hæfum evrópskum verkefnum. Þá
væri stafræn vinnsla miðill í mik-
illi framþróun, þar sem mikið af
störfum gæti skapast.“ Full-
vissaði Viviane Reding mennta-
málaráðherra aðildarríkja um
vilja framkvæmdarstjórnarinnar
til að veita sem gleggstar upplýs-
ingar um rekstur áætlunarinnar.
Hún tók sérstaklega fram að lagt
yrði fram nóg til reksturs
MEDIA upplýsingaskrifstofa að-
ildarríkjanna, sem eru andlit
áætlunarinnar út á við. Þær miðla
upplýsingum og aðstoða fagfólk
sem vill nýta sér áætlunina. Með
stuðningi MEDIA hefur hlutfall
evrópskra kvikmynda sem dreif-
ast utan heimalands aukist frá
tæpum 14% árið 1996 í rúmlega
22% árið 1999 og styrkir MEDIA
yfn- 60% þeirra kvikmynda.
Þá tilkynnti Viviane Reding að
viðræður framkvæmdastjórnai--
innar við Evrópska fjárfestingar-
bankann (La Banque européenne
dinvestissement), til að tryggja
eða styrkja aukna lánveitingu til
hljóðmyndrænna verkefna, væru
nú á lokastigi.
Starfsmenntaáætlun
ESB
Landsskrifstofa Leonardó á
íslandi lýsir eftir umsóknum um
styrki sem veitt-
ir eru af Leonar-
do da Vinci
starfsmennta-
áætlun Evrópu-
sambandsins.
Umsóknarfrest-
ur er til 19. janúar 2001. Lýst eftir
umsóknum í alla flokka áætlunar-
innar.
Umsækjendur þurfa að vera
lögðilar og nauðsynlegt er að
samstarfsaðilar séu frá þremur
löndum. Nánari upplýsingar um
Leonardo da Vinci og umsóknai'-
eyðublöð má nálgast á heimasíðu
Landsski-ifstofu Leonardó
www.leonai'do.hi.is og í síma 525
4900.
Evrópumiðstöð
Evrópumiðstöð Impru hefur
opnað nýja heimasíðu. Þai- er að
finna hundruð samstarfsóska frá
evrópskum fyrirtækjum. Á
heimasíðunni geta Islensk fyrh'-
tæki nálgast upplýsingar um
evópsk tækni- og nýsköpunar-
verkefni, sent inn upplýsingar um
eigin verkefni og leitað samstarf-
saðila í Evrópu. Einnig er boðið
upp á ókeypis áskrift að upplýs-
ingum um samstarfsóskir á sviði
ákveðinna atvinnugreina. Allar
nánari upplýsingar:
www.evropumidstod.is
www.hver eru
tækifæri þín í
netviðskiptum?
Öll nútíma fyrirtæki verða að íhuga stöðu sína gagnvart net-
viðskiptum; hvort og þá á hvaða hátt fyrirtækið á að nýta sér
netviðskipti. Iðntæknistofnun býður upp á námskeið sem
ætlað er stjórnendum og starfsmönnum sem þurfa að taka
ákvörðun um stefnu fyrirtækja í netviðskiptum.
Helstu efnisþættir eru:
• Samkeppnisgreining.
• Valkostir við rafræn viðskipti.
• Ávinningur og áherslur netviðskipta.
• Stefnumótun í netmálum.
• Samræming við núverandi starfsemi.
Næsta námskeið verður haldið á Iðntæknistofnun,
Keldnaholti, 112 Reykjavtk, fimmtudaginn 7. desember nk.
frá kl. 9.00-15.00. Verð kr. 14.500.
Skráning er í síma 570 7100,
á netfangið holmfridur@iti.is
eða á heimasíðu okkar www.iti.is
Iðntæknistofnun
Keldnaholti, 112 Reykjavík
LOKSINS
er jmatreiðslubólán
RETT MATREIDSLrA
FYRLR
PJNN BLÓÐFLOKK
komin út
Hún er fúllkominn förunautur metsölubókarinnar t
RÉTT MATARÆÐI FYRIR ÞINN BLÓÐFLOKK.!
í bókinni er meðal annars að finna:
* Þrjátíu daga matseðla fyrir hvern blóðflokk
* Hátt í 200 irábærar uppskriítir.
* Fæðulista og leiðbeiningar um innkaup.
* Fæðuáætlun sem auðvelt er að fylgja
ásamt nýjum upplýsingum frá Dr. D’Adamo
sem rannsóknir hans hafa leitt í ljós og eru þær frábær
viðauki við hinn greinargóða uppiýsingagrunn sem finna
má í BJÉTT MATARÆÐI FYRIR ÞINN BLÓÐFLOKK,
Dag Viljen Poleszynski er sjálfstæður rannsóknarmaður
með embættispróf í næringarfræði, félagsvísindum og
viðskiptum. Verk eftir hann hafa verið gefin út víða í
vinsælum vísindaritum og er oft leitað til hans sem
sérfræðings um heilsu og næringu af ýmsum fjölmiðlum.
Hann segir:, „þótt kenning Dr. D’Adamo hafi ekki verið prófuð
með hefðbundnu rannsóknarsniði, þá liggur fyrir næg
reynslusönnun og nægar iífefnafræðilegar rannsóknir og
dýrarannsóknir hafa átt sér stað tii þess að það væri siðfræðilega
rangt að uppiýsa ekki almenning um þann mögulega ábata sem
hann getur haft af því að aðlaga mataræði sitt að blóðflokk
sínum.“
ÞAÐ HEFUR SANNAST AÐ BLOÐFLOKKAMATARÆÐIÐ VIRKAR.
Dag Viljen
Poleszynski
Bókin
FYRIRGEFNINGIN -
Heimsins fremsti heilari er komin út.
Höflindur bókarinnar Gerald G. Jampolsky
M.D. er geðlæknir barna og fullorðinna.
Árið 1975 stofnaði hann fyrstu Miðstöð
viðhorfsheilunar. í dag eru til samtök í
kringum 120 slíkar stöðvar í 30 löndum.
Hann er alþjóðlega viðurkenndur á sviði
geðlækninga, heilsu, idðskipta og —nnoí
menntunar. Hann hefiir gefið út fiölmargar I ^erald G uh^u,ldl,r<>m
metsölubækur. 11 ' Jan>Polsky M.D.
„Sem læknir í rúmlega fjörutíu ár man ég eftir fólki
meö ýmsa sjúkdóma - fólki sem hefur þjáðst af öllu frá bakveiki til
magapínu, of háum blóðþrýstingi til krabbameins - sjúkdómum sem
hafa gengið niður þegar það lærði að fyrirgefa. Mér hefur hlýnað um
hjartarætur síðastliðin ár við að sjá niðurstöður úr rannsóknum sem
benda til tengsla milli heilbrigðis og fyrirgefningar. Ég er sannfærður
um óviðjafnanlegan mátt fyrirgefningarinnar.“
Gerald G. Jampolsky M.D.
„Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég las bókina var að hún
ætti að vera skyldulesning. í bókinni eru leiðbeiningar sem
koma okkur ölium að gagni bæði í lífi og starfi. I bókinni segir
einfaldiega að annað hvort fyrirgefi maður eða ekki.
Að fyrirgefa er alltaf betri kostur. Frábær bók.“
Gunnar Andri Þórisson, framkv.stj. SGA símennt.
„Að fyrirgefa sjálfum sér og öðrum er forsenda mannlegs
þroska." Stefán Jóhannsson M.A. fjölskylduráðgjafi.
ÞETTA ER BÓK SEM Á ERINDI TIL ALLRA
Sími 435 6810,698 3850,
fax 435 6801.