Morgunblaðið - 05.12.2000, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 05.12.2000, Qupperneq 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkaer eiginmaður minn, bróðir, faðir okk- ar, tengdafaðir, afi og langafi, ESRA S. PÉTURSSON læknir, lést á heimili sínu í Flórida föstudaginn 1. desem- ber sl. Edda Scheving, Pétur Kjartan Esrason, Einar Haraldur Esrason, Sigurður Ragnar Esrason, Karl Torfi Esrason, Jón Tómas Esrason, Finnbogi Þór Esrason, Vigdfs Esradóttir, Esra Jóhannes Esrason, Andrés Jón Esrason, barnabörn og María Pétursdóttir, Ásthildur Helgadóttir, Kristín Árnadóttir, Cheryl Ann Tilley, Helga Magnúsdóttir, Olga Morales, Hulda Sif Ásgeirsdóttir, Einar Unnsteinsson, Kristín Lilja Kjartansdóttir, barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, INGIBJÖRG GUTTORMSSON, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup- stað fimmtudaginn 30. nóvember, verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju fimmtudaginn 7. desember kl. 14.00. Sigríður Vigfúsdóttir, Elísabet Vigfúsdóttir, Samúelína Madsen, Guttormur Vigfússon, Áslaug Sigurðardóttir, Randíður Vigfúsdóttir, Sigurður G. Björnsson, Jakob Vigfússon, Vigfús Vigfússon, Jóhanna Gísladóttir, barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR frá Búrfelli, Furugrund 68, Kópavogi, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring- braut sunnudaginn 3. desember. Tryggvi Eiríksson, Guðmundur Eiríksson, Flosi Eiríksson, Jón Eiríksson, Þórunn Eiríksdóttir, Guðjón Eiríksson, Helga Eiríksdóttir, Guðjón Bjarnason Milla H. Kay, Anna Sigurðardóttir, Sigurbjörg Geirsdóttir, Þorgeir Gunnlaugsson, Harpa Jónsdóttir, Jósef Pálsson, og ömmubörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN GAMALÍELSSON rafmagnstæknifræðingur, Lautasmára 5, Kópavogi, lést á Grensásdeild Landspítalans föstudaginn 1. desember. Jóna Guðbergsdóttir, Svanhvít J. Jónsdóttir, Jón Ingi Hjálmarsson, Guðbergur Jónsson, María Jónsdóttir, Páll Þór Kristjánsson, Bragi Rúnar Jónsson, Davíð Jónsson, Elín S. Gunnsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, JÓNANNA SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR frá Staðarbjörgum, andaðist á Dvalarheimili aldraðra Sauðárkróki, sunnudaginn 3. desember. Bragi Jósafatsson, Guðrún Jósafatsdóttir, Ingibjörg Jósafatsdóttir. ÁGÚSTA ÞORSTEINSDÓTTIR + Ágústa Þor- steinsdóttir fæddist í Reylqavík 2. júlí 1928. Hún lést á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði 28. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þóra Valgerður Guðmundsdóttir, f. 29. ágúst 1904, d. 1. febrúar 2000 og Þor- steinn Jósepsson, f. 9. nóvember 1900, d. 1982. Systkini henn- ar eru Guðrún, f.1929, Guðmundur, f. 1930 og Sigrún fædd 1931. Ágústa giftist eftirlifandi eigin- manni sínum, Jóni Guðmundssyni, f. 19. maí 1924, hinn 26. desember 1948. Foreldrar hans voru Jóna Ólafsdóttir, f. 27. júlí 1899, d. 1972 og Guðmundur Jónsson, f. 22. mars 1879, d. 1963. Börn Ágústu og Jóns eru: 1) Þóra Valgerður, hjúkrunarfræð- ingur, f. 30. ágúst 1947, gift Einari Steingrímssyni verksfjóra f. 1947, þau eiga tvo syni og tvo sonarsyni. 2) Anna Björg, kennari, f. 6. maí 1952, gift Garðari Guðmundssyni, kennara, f. 1950, þau eiga þrjú börn. 3) Ólafur Helgi, húsgagna- smiður, f. 29. apríl 1954, kvæntur Ásdísi Geirsdóttur, hjúkr- unarfræðingi, f. 1955, þau eiga þrjú börn. 4) Jóna, ganga- vörður, f. 11. desem- ber 1955, gift Óskari Erni Oskarssyni, lagermanni, f. 1955, þau eiga þrjár dætur og tvö barnabörn. 5) Ágúst Haukur, sölu- maður, f. 10. mars 1962, kvæntur Þór- unni Þorsteinsdótt- ur, húsmóður, f. 1961, þau eiga fjóra syni. Ágústa ólst upp í Reykjavík. Að skóla loknum vann hún í ísafold- arprentsmiðju. En eftir að hún giftist helgaði hún börnum og heimili krafta sína. Þegar bömin voru komin á Iegg hóf hún störf á Fjölritunarstofu Daníels Halldórs- sonar og vann þar þangað til hún fór á eftirlaun. Ágústa tók í ára- tugi virkan þátt í skátastarfí og var til dauðadags meðlimur í Urt- unum sem er félagsskapur skáta- mæðra í Kópavogi. Útför Ágústu fer fram frá Garðakirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 10.30. Mig langar til að minnast með nokkrum orðum hennar tengda- móður minnar sem lést 28. nóvem- ber síðastliðinn. Eg kynntist Ágústu, eða Gústu eins og hún var oftast kölluð, fyrir um það bil 30 árum þegar ég, feim- inn stráklingur, fór að venja kom- ur mínar á heimili þeirra Gústu og Dedda. Fljótlega urðu kynnin meiri og eftir að ég varð einn af fjölskyldunni sá ég hvern mann tengdamóðir mín hafði að geyma. Hún var manneskja sem alltaf var tilbúin að aðstoða ef á þurfti að halda og bak við rólegheitin bjó hress og lífsglöð kona, þar sem stutt var í léttleika og kátínu. Snemma varð mér ljóst hversu samheldin þau hjón voru, allt sem gert var gerðu þau saman og gjaman voru börn, tengdabörn og síðar barnabörn höfð með í ráðum. Var þá sama hvort um var að ræða að hittast kvöldstund heima við eða ferðalög út á land. Tengdamamma var mjög iðin og þurfti helst alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni, ef ekki var verið að sinna húsverkum þá var gjarnan setið við eitthvert handverk og bera ótal fallegir munir því vitni. Um miðjan níunda áratuginn reistu þau hjón ásamt tveimur dætrum sínum sumarhús í Borgar- fírði og má segja að þá hafí hafist nýr kafli því að í Borgarfjörðinn var farið eins oft og kostur var og er mér það til efs að tengdamóðir minni hafi nokkurs staðar liðið betur. Þegar ég lít til baka er margs að minnast, en mér er þó efst í huga þakklæti fyrir allar ánægjustun- dirnar sem við áttum saman. Kæri Deddi, ég votta þér mína dýpstu samúð en við vitum báðir að minningin um góða konu mun lifa um ókomin ár. Garðar. Elsku amma. Nú ert þú horfin okkur á braut, svo miklu fyrr en við áttum von á. Margs er að minnast og margar góðar stundir koma upp í hugann á stund sem þessari. Oll eigum við okkar einstöku minningar um þig elsku amma, það sem upp úr stendur eru þær sameiginlegu ánægjustundir sem við áttum öll saman með ykkur afa. Jólaveislurnar þar sem við belgdum okkur út af hangikjöti og slógumst um möndlugjöfina. Og nú í seinni tíð var tilhlökkunin ekki minni á aðfangadagskvöld þegar von var á ykkur eftir matinn til að óska okkur gleðilegra jóla. Amma, við þökkum þér fyrir og munum alltaf minnast þess hlýhugs, ástar og þeirra opnu arma sem þú veittir okkur í gleði og sorg. Það er ekki að ástæðu- lausu að við krýndum þig með bik- ar á sjötugsafmæli þínu „Bestu ömmu í heimi.“ Og munum við minnast þín um ókomna tíð með þeim orðum sem á bikarinn voru rituð. Elsku amma yndislegt að vita af kærleika á borð við haf sem þú gefur okkur af og elskar okkur öll í kaf. (Iris Kristinsdóttir.) Amma þú ert best. Hvíl í friði. Ommubörn og langömmubörn. í dag fylgjum við^ til grafar kærri vinkonu okkar Ágústu Þor- steinsdóttur. Ágústa var ein úr kvennahópi sem kallar sig Urtur. Þessi félagsskapur var stofnaður í Kópavogi fyrir 32 árum af mæðr- um skátabarna til styrktar félags- starfsemi skátafélagsins Kópa. Allt tíð síðan höfum við haldið hópinn. Það er sennilega sjaldgæft að sami kjarninn haldist í svo litlu félagi í áratugi og jafnmikill einhugur sé milli félagsmanna. En þar var Ágústa dyggur liðsmaður, hún lagði skátahreyfingunni hvort tveggja til, mannvænleg börn og ómælda vinnu. Oft var glatt á hjalla þegar unnið var að undir- búningi kaffisölu eða basara, þar lét Ágústa sinn hlut ekki eftir liggja. Hún var harðdugleg og velvirk með afbrigðum. Við minn-. umst glaðlyndis hennar, hressi- legra hlátra og kímni. Hún var for- maður Urtnanna um árabil og skilaði því starfi jafnvel og öllu öðru sem hún gerði. Það er því skarð fyrir skildi þegar hún er horfin. Þegar veikindi herjuðu á þau hjónin, Jón og Ágústu, stóð hún eins og klettur og lét engan bilbug á sér finna. Við sem höfum fylgst með baráttu hennar við hinn ill- víga sjúkdóm síðustu mánuðina, höfum dáðst að kjarki hennar og æðruleysi. Að koma þangað í heim- sókn var hrein sálubót. Þó að þau vissu bæði að hverju stefndi, var ekkert víl heldur hlegið og gert að gamni sínu. Oft veltir maður fyrir sér skilgreiningu á orðinu hetja. Hvað er hetja? Er það einhver sem lifir ævintýralífi, gerir óvana- lega hluti, klífur fjöll, gengur lengra, stekkur hærra en allir aðr- ir? Eða er það manneskja sem annast aðra alla tíð með fórnfýsi og hjartagæsku, lætur gott af sér leiða og gengur að lokum síðustu sporin með reisn og án allrar æðru, þetta sem við köllum hetju hversdagslífsins og heimurinn metur ekki stórt? En eru þessar hetjur ekki þær einu sönnu, þær sem ekki vinna tilfallandi afrek, heldur er allt líf þeirra samfelld saga hinna smáu afreka? Við kveðjum nú Ágústu og þökk- um fyrir áratugasamfylgd, vináttu, hlýju og tryggð. Við sendum eftir- lifandi eiginmanni hennar, börnum þeirra og fjölskyldum okkar inni- legustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þau. Urturnar Þegar lífsins leiðir skilja læðist sorg að hugum manna. En þá sálir alltaf fmna yl frá geislum minninganna. í dag er kvödd hinstu kveðju Ágústa Þorsteinsdóttir, en hún lést eftir þungbær veikindi 28. nóvem- ber sl. Ég kynntist Ágústu er hún hóf störf á Fjölritunarstofu Daníels Halldórssonar, en þar unnum við saman um tíu ára skeið. Hún vann þar við ýmsan frágang bóka og var hún ótrúlega handfljót og vann sín verk af mikilli snyrtimennsku. Jón og Ágústa byggðu sér fal- legt hús við Álfhólsveg í Kópavogi, og þar var sama snyrtimennskan bæði innan og utan dyra. Þau hlúðu vel að börnunum sínum fimm, sem þau launuðu síðar for- eldrunum, þegar þau voru orðin heilsuvel og þurftu aðstoðar þeirra við. Ágústa talaði oft um það hversu ómetanlegt það væri hversu góð börnin þeirra og fjöl- skyldur þeirra væru þeim. Ágústa var mikil hannyrðakona og kom ótrúlega miklu í verk. Hún saumaði mestallan fatnað á fjöl- skylduna, prjónaði og heklaði. Stórt bútasaumsrúmteppi lauk hún við fársjúk. Jóla- og afmælisgjafir handa börnum og barnabörnum var hún alltaf tilbúin með löngu áður, var til dæmis búin að pakka öllum jólagjöfum í nóvember og sögðum við þá við hana í gríni að líklega væri hún búin að öllu fyrir jólin nema að kveikja á kertunum. - Jón er einnig mikill snillingur í höndum og eru ófáar flugurnar sem hann hefur hnýtt. Þau hjón byggðu sér sumarbú- stað í Borgarfirði, þar sem þau nutu þess að dvelja í kyrrðinni og njóta samvista við fjölskyldu og vini. Við „stelpurnar" á Fjölritunar- stofunni komum saman af og til og það var alltaf eins og við hefðum hist í gær, skemmtilegar umræður yfir kaffibolla og kræsingum til að treysta vináttuböndin. Þegar ég lít til baka er ég þakk- lát fyrir áratuga góða viðkynningu við Ágústu og fjölskyldu hennar. Á þessari stundu er hugurinn hjá Jóni og fjölskyldunni, því þau hafa mest misst. Eg tel mig ríkari að hafa kynnst Ágústu, hún var mikil- hæf kona sem stóð eins lengi og stætt var að umvefja fjölskyldu sína. Góð kona er gengin. Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. M vaktir yfir velferð barna þinna, þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa og eykur þeirra afl og trú. En það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum eins og þú. Ég bið þann sem öllu ræður að veita ástvinum hennar huggun og styrk í sorginni. Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á net- fang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.