Morgunblaðið - 05.12.2000, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 59
UMRÆÐAN
Ætla Islendingar að
glutra sjálfstæðinu?
MINNISSTÆÐ er
grein eftir dr. Magna
Guðmundsson hag-
fræðing, sem birtist í
Morgunblaðinu
snemma árs 1998 og
bar yfirskriftina „Sjálf-
stæði Islands er mál
málanna“. Undir orð
þessa virta hagfræð-
ings ættu allir Islend-
ingar að geta tekið
heilshugar. Sú dapur-
lega staðreynd blasir
hins vegar við, að nokk-
ur hópur landa okkar
hefur glatað tnínni á að
við séum lengur fær um
að búa frjáls og óháð í
landi okkar. Þetta fólk, svokallaðir
Evrópusinnar, tilheyrði flest dauð-
um AJþýðuflokki, sem nú er genginn
aftur og kallast Samfylking. Vonandi
sjá flestir íslendingar í gegnum
óþjóðleg áform þessa sundurleita
hóps áður en í óefni er komið, en
fleiri blikur eni á lofti.
Framsóknarflokkurinn á
óheillaspori
Samfylkingin hefur nú fengið lið-
sinni frá fylgisrýrum Framsóknar-
flokki undir stjórn Halldórs Ás-
grímssonar. Sá flokkur virðist
raunar í upplausn og fylgi hans
rambar milli 11 og 18 af hundraði.
Kemur þar vafalaust einnig til
hrokafull afstaða flokksins til við-
kvæmrar náttúru lands okkar. Fyr-
irhuguð umturnun náttúrunnar
norðan Vatnajökuls og víðar á há-
lendinu, þar sem meðal annars er
ráðgert að breyta rennsli jökulánna
með ófyrirsjáanlegum afleiðingum,
verður ævarandi minnisvarði um lít-
ilsvirðingu fyrir þeim þjóðararfi sem
okkur var trúað fyrir. Framsóknar-
flokkurinn hefur nú þegar reist sér
minnisvarða í Hvalfirði. Þegar horft
er til norðurstrandar hans blasa við
augum draumsýnir flokksins, risa-
braggar og grábláar verksmiðju-
ófreskjur, að mestu í eigu erlendra
auðfélaga. Orkuna til starfsemi sinn-
ar fá þau á verði sem er bæði feimn-
ismál og leyndarmál, en íslendingar
fóma í auðmýkt náttúru og ásýnd
landsins. Þegar ég nýlega ók um
þennan fallega fjörð kom Múrmansk
ósjálfrátt upp í hugann.
Forsætisráðherra
sem klettur í hafí
Tiltölulega fámennum hópi fólks
má hvorki takast að eyðileggja um
ókomin ár og aldir náttúruperlur á
öræfum íslands né að færa Island
undir vestur-evrópska stjórn. Hvort-
tveggja væri óafsakanlegt skemmd-
arverk. Fjöreggi þjóðarinnar væri
illa komið í höndum Framsóknar-
flokksins eins og hann er nú á sig
kominn og hins aftur-
gengna Alþýðuflokks.
Forsætisráðherrann,
Davíð Oddsson, hefur
undanfarin tvö kjör-
tímabil staðið líkt og
klettur í hafinu gegn
hugmyndum þessara
flokka að innlima fs-
land í Evrópusamband-
ið og komið í veg fyrir
að stigin væru skref
sem bundið gætu enda
á sjálfstæði íslensku
þjóðarinnar. Árvekni
og framsýni forsætis-
ráðherrans hefur þjóð-
in vissulega kunnað að
meta eins og yfirburða-
fylgi sýnir. Svipaða sögu segir vax-
andi stuðningur við vinstrigræna,
sem sett hafa fram skýra stefnu
gegn innlimun íslands í Evrópusam-
bandið.
Lærum af sögunni
íslendingar bjuggu við erlend yfir-
ráð í sex og háifa öld, þ.e. frá Gamla
sáttmála til gildistöku sambandslag-
anna 1918. Samþykkt þeirra í þjóð-
aratkvæðagreiðslu þá um haustið og
gildistaka 1. desember fól í sér loka-
sigur í frelsisbaráttu Jóns Sigurðs-
sonar forseta. Stofnun lýðveldis
sumaiið 1944 á Þingvöllum við Öxará
var síðan rökrétt framhald af stefnu
merkisbera sjálfstæðisbaráttunnar.
Það má ekki líða framagjömum
stjómmála- og embættismönnum
líðandi stundar að gera að engu störf
forfeðra okkar og þann árangur sem
þeir að lokum náðu í frelsisbaráttu
þjóðarinnar. Það skýtur sannarlega
skökku við að rúmlejga hálfri öld eftir
stofnun lýðveldis á lslandi skuli finn-
ast hér fólk sem vill afsala til verð-
andi stórríkis í Evrópu nánast öllu
því sem ávannst á fyrrihluta 20. ald-
ar. í þokkabót á síðan að fórna ávinn-
ingum áratuga baráttu fyrir útfærslu
fiskveiðilögsögunnar að 200 mílna
markinu. Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra spurði réttilega í viðtali
nýlega, til hvers við hefðum háð
mörg þorskastríð ef nú ætti að af-
henda til Brussel stjórn veiða og úr-
slitavald um nýtingu fiskveiðilög-
sögu okkar íslendinga.
Aðvaranir úr mörgum áttum
í fyrmefndri grein dr. Magna
Guðmundssonar varaði hann íslend-
inga við því að fórna krónunni okkar
og fá í staðinn svokallaða evm. Hann
sagði þar að bæði fallandi afurðaverð
og/eða hmn fiskistofna gæti þá leitt
til mikils vanda. „Óbreytanlegt gengi
getur þá skapað óviðráðanlega erfið-
leika.“ Nýlega höfnuðu Danir í þjóð-
aratkvæðagreiðslu að taka upp Evr-
una í stað krónunnar. Fyrir þá var
þetta ekki síður pólitísk spurning en
ESB
Frelsi og fullveldi, segir
Jóhannes R. Snorrason,
hefur gert okkur að því
sem við erum.
efnahagsleg. Utanríkisráðherra
Þýskalands sagði nýlega að mynt-
breytingin væri pólitísk gmndvalla-
raðgerð („a profoundly political
act“).
Fyrrum frambjóðandi til forseta-
kjörs í Finnlandi, Illka Hakaletho,
sem kennir stjórnmálafræði við há-
skólann í Helsinki og er jafnframt
þekktur rithöfundur, sagði nýlega í
blaðaviðtali, að miðað við þær raunir
sem Finnar hafi þurft að ganga í
gegnum til að öðlast og viðhalda
sjálfstæði sínu í gegnum tíðina, væri
það ótrúlegt að þjóðin hafi ótilneydd
„gefið frá sér sjálfstæði sitt til Bmss-
el“. Hann segir í raun sama hvar sé
borið niður, aðildin að Evrópusam-
bandinu gangi þvert gegn hagsmun-
um lands og þjóðar á öllum sviðum.
Hann ásamt samstarfsmönnum sín-
um muni ekki láta staðar numið „fyrr
en Finnland sé frjálst á ný“.
Þá má minnast þess að Gerhard
Schröder, sem hér var í heimsókn
stuttu áður en hann tók við kanslara-
embætti í Þýskalandi, sagði í viðtali
að sér fyndist skynsamlegt af Islend-
ingum að standa utan Evrópusam-
bandsins. EES-samningurinn ætti
að duga okkur. Svokallaðir Evrópu-
sinnar hér em því í raun kaþólskari
en páfinn.
Frelsi og fullveldi lykilatriði
Glýjan í augum sumra stjórnmála-
manna þegar Evrópusambandið er
annars vegar svo og persónulegt
framapot og athyglisárátta á er-
lendri gmnd vekur ugg og andúð í
bijóstum þorra íslendinga sem unna
landi sínu, tungu og sögu. Við eigum
þess kost að lifa hér góðu lífi í okkar
góða landi, frjáls og óháð, við gnótt
gjöfulla auðlinda til lands og sjávar.
Undirlægjuháttur undir erlent vald,
svo ekki sé talað um að ísland gerist
fylki í fjölþjóðaríki á meginlandi
Evrópu, er af því tagi að „orðin vant-
ar í málið“ til þess að gera þeim
óhugnaði verðug skil.
Sex og hálf öld undir erlendri
stjóm ætti að nægja til þess að sýna
okkur íslendingum að frelsi og full-
veldi hefur gert okkur að því sem við
emm í dag og getum verið stolt af.
Undir erlendri stjórn væmm við enn
máttvana nýlenduþjóð, arðrænd og
undirgefin vegna fátæktar.
Höfundur er fv. yfirflugsijóri.
Jóhannes R.
Snorrason
/FO nix
www.wornlwwniz.coiii
HEIMSMYNDIR
BBBIflBiHBnMHBBHBEM AGFA ^
Heimsmyndir Lækjargötu, 5691550» Heimsmyndir Mjódd, 5691570
, f Sænskar
^pvottavélar mM.
tauþurrkarar
uppþvottavélar
m ASKO
Tandurhreinn þvottur,
þurr og þægilegur
Skínandi uppþvottur
Einnig
ASKO Professional
fyrir fjölbýlishús
HATUNI 6A RcYKJAVIK SIMI 552 4420
Jólakjötið heim
Hangilæri úrbeinað 1.450 kr/kg.
Hangiframpartur úrbeinaður 1.150 kr/kg.
1/4 svín=hamb.hr./2 bayon/hnakki/bógur/
beikon ca 15 kg 650 kr/kg.
1/8 naut ca 20 kg 750 kr/kg.
Kjötpartasalan
símar 555 2454 og 694 2525
■v
DABO ISI
ISLAND
ÞAÐ ER ALLT ORÐIÐ HVÍTT!
Nú er vetur gengin í garð og tími til komin að setja ekki í sama farinu! Pantaðu tíma í síma 557 9110
í_-
vetrardekkin undir bílinn. Hjá Bílkó færðu úrvals eða komdu við á smiðjuvegi 34-36 og þú færð
vetrardekk af öllum stærðum og gerðum. Spóiaðu toppþjónustu á hreint ótrúlegu verði.
BÍLKÓ EHF.- Bifreiðaþjónusta - Dekkjaverkstæði - Bíiaþvottur Smiðjuvegur 34-36 ■ Kðpavogi ■ Sfmi 557 9110 • Rauð gata OPIÐ 08-18 MÁN-FÖS. OPIÐ 10-16 LAU. NEYÐARÞJÓNUSTAN ALLTAF OPIN SÍMI800 4949.-ý