Morgunblaðið - 05.12.2000, Page 65
MORGUNB LAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 65
Öldrun kemur öllum við
ÞEIR SEM komnir
eru á ellilífeyrisaldur
hafa orðið vitni að
miklum og stórstígum
breytingum á högum
aldraðra síðustu 26 ár.
Á þessum tíma hafa
miklar breytingar átt
sér stað, bæði hvað
varðar þjónustu og
húsnæði. I dag eru í
boði fleiri möguleikar
fyrir aldraða, fjöl-
breytt val tómstunda-
starfa, ferðalaga, mörg
stig þjónustu, eftir
þörfum hvers og eins,
jafnframt því sem ýms-
ir kostir bjóðast í hús-
næðismálum. Allt er þetta hluti af
breyttu þjóðfélagi, sem þeir, sem eru
aldraðir í dag, hafa sjálfir átt þátt í að
skapa á undanfómum árum. Þær
breytingar hafa líka léð hugtakinu
aldraður aðra merkingu í huga
margra í dag en það hafði fyrir al-
darfjórðungi. Það viðhorf sem al-
menningur hefur til öldrunar og sú
mynd sem aldraðir hafa af sjálfum
sér hefur einnig breyst á þessum ár-
um.
Þá sem veltu öldrunarmálum fyrir
sér fyrir 25 árum óraði vart fyrir öll-
um þeim breytingum sem átt hafa sér
stað á þessum tíma og ekki eru þeir
margir í dag sem þora að spá til fram-
tíðar um hvernig þessum málum
verður háttað næsta aldarfjórðung-
inn. Með stöðugri fjölgun aldraðra
hefur þjónusta við þá verið ört vax-
andi atvinnugrein, sem er í sífelldri
mótun og aðlögun að þörfum aldr-
aðra. Hluti þessarar þjónustu er fé-
lagslegs eðlis, en stór hluti hennar er
umönnun við þá sem lifa við heilsu-
brest og búa enn heima eða eru á
stofnunum. Um framtíðina í öldrun-
armálum verður fjallað á ráðstefnu
sem haldin verður á Hótel Loftleiðum
fimmtudaginn 30. nóvember nk.
Flestir þeir sem láta sig öldrunarmál
varða standa að þessari ráðstefnu,
sem ber yfirskriftina „Verðmæti um-
önnunar fyrir íslenskt samfélag".
Það er athyglisvert, þegar þessi
málaflokkur er skoðaður, hve gríðar-
lega mikil uppbygging hefur verið í
þjónustu við aldraða og hversu mikið
hefur verið byggt af húsnæði sem
sérstaklega er ætlað öldruðum, á
þessum tiltölulega stutta tíma í ævi
þjóðarinnar. Þar ber
fyrst að nefna íbúðar-
húsnæði, bæði í íjölbýli
og raðhúsum, sem risið
hafa víða um land. Hús
þessi hafa verið reist af
einkaaðilum, félagasam-
tökum og sveitarfélög-
um og er eignarhald og
eignarfyrirkomulag á
þeim með ýmsu móti,
þar sem ýmsar nýjungar
hafa verið teknar upp. í
tengslum við þessi hús
eða í nágrenni þeirra
hafa síðan af miklum
myndarskap risið þjón-
ustu- og félagsmiðstöðv-
ar, sem í ílestum tilvik-
um hafa verið byggðar af viðkomandi
sveitarfélögum, en einnig af félaga-
samtökum. Á sama tíma hafa einnig
risið stofnanir fyrir aldraða, dvalar-
og hjúkrunarheimili, sem félagasam-
tök, sveitarfélög og einkaaðilar hafa
staðið fyrir að byggja. Framkvæmda-
sjóður aldraðra hefur frá því lög um
málefni aldraðra voru fyrst samþykkt
árið 1982 styrkt byggingu þjónust-
umiðstöðva og stofnana fyrir aldraða.
Flestir þeirra sem ná ellilífeyris-
aldri lifa við góða heilsu, sem betur
fer, en í dag þurfa aðeins um 9% aldr-
aðra á stofnanavist að halda vegna
heilsubrests. Mikil uppbygging hefur
orðið á stofnunum fyrir þá sem vegna
lélegrar heilsu geta ekki lengur búið
heima, sérstaklega á landsbyggðinni.
Á áttunda og níunda áratugnum var
markvisst unnið að því að reisa þjón-
usturými (dvalai'heimili) á lands-
byggðinni og hefur þörfinni þar fyrir
stofnanavistun víðast hvar verið hægt
að fullnægja. Höfuðborgarsvæðið
hefur hins vegar setið eftir í þessari
uppbyggingu og að jafnaði hefur
vantað um 200 hjúkrunarrými í
Reykjavík. Þrátt fyrir að nokkur ný
hjúkrunarheimili hafi tekið til starfa á
undanfömum árum hafa þau ekki náð
að lækka þessa tölu og annað þörfinni
fyrir vistun aldraðra sjúka. Vilji
flestra aldraðra til að búa heima svo
lengi sem þess er kostur, breytt
eignastaða og aukin heimaþjónusta
hafa leitt tii þess að þörfin fyrir þjón-
usturými hefur farið minnkandi, en
þörfin fyrir hjúkmnarrými aukist að
sama skapi. Einstaklingar sem leggj-
ast inn á öldrunarstofnun í dag era
eldri og veikari og þurfa mikla hjúkr-
Aldraðir
Um 9% aldraðra, segir
Jóhann Árnason, þurfa
á stofnanavist að halda
vegna heilsubrests.
un. Því hefur þjónusturýmum verið
breytt í hjúkranarrými, en þó ekki
með þeim hraða sem nauðsynlegur er
til að anna þörfinni.
Á næsta ári verða tekin yfír 100 ný
hjúkranarrými í notkun á höfuðborg-
arsvæðinu, en áríðandi er að stöðug
uppbygging verði á hjúkranarrýmum
þar næstu ár. Nýjar kröfur og hug-
myndir era sífelit að koma fram auk
þess sem þarfir hinna öldraðu breyt-
ast. Þetta mun kalla á nýtt húsnæði
og auk þess lagfæringar á eldri stofn-
unum, sem þurfa að hafa tækifæri til
að laga sig að breyttum kröfum um
aðbúnað íbúa og starfsfólks. Elli-
lifeyrisþegar hafa tekið þátt í að
byggja upp góða öldranarþjónustu á
undanfömum áram, sem margir
þeirra munu njóta, en það er nauð-
synlegt fyrir þær kynslóðir sem á eft-
ir koma að halda þeirri uppbyggingu
áfram til að búa í haginn fyrir sjálfa
sig.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Sunnuhlíðar, hjúkrunarheimilis
uldraðra íKópavogi.
Jóhann
Árnason
ÞAÐ STENST HONUM
ENGINN SNÚNING
Rekstrarleigusamningur
Engin útborgun
23.264 kr. ámánuði
Fjármögnunarleiga
Útborgun 245.984 kr.
15.534 kr. á mánuði
Fjármögnunarlelgan er miöuB viB 25% útborgun og aB IdnlB sé teklB f
erlendri myntkörfu til 60 mdn. Rekstrarieigan er tll 24 mdnaBa í eriendri
myntkörfu og miBaB vlB 20.000 km akstur d dri.
ATVINNUBÍLAR
FYRIRTÆKJ AÞJÓNUSTA
Grjóthálsi 1
Sfmi 575 1200
Söludeild 575 1225 / 26
RENAULT
Stöð 2 býður upp á
fjölbreytta og skemmtilega
dagskrá fyrir börnin
f desember.
Helstu kvikmyndir eru:
Tólf dagar jóla, Aleinn helma III
og hin bráðskemmtilega mynd
Snjókariinn.
Teiknimyndirnar eru heldur ekki V
af verri endanum; 1
Mánudagar: Svalur og Vatur,
Trillumar og Strumpamir.
Þriðjudagar: Batman, Kalli kanfna
og Strumparnir.
y Miðvikudagar: Brakúla og
^ Strumparnir.
Fimmtudagar: Real Monsters og
\ Strumparnir
Afi er á sfnum stað um hverja
helgi og jölaþátturínn hans
verður á annan f jðlum.
Á næstu dögum mun
- bömum á aldrinum 3-8 ára
berast jðlakveðja frá Afa!
Góða skemmtun!
Askriftarsími: 515 6100
www.ys.is
z