Morgunblaðið - 05.12.2000, Síða 74

Morgunblaðið - 05.12.2000, Síða 74
74 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens ...PER TTL UPPLVSINGAR, ÞA ER HEIFTIN BARA í RÖNDUNUM 02000 Tribune Media Services, Inc. / |/>avi/ All Rlghts Reserved. Grettir HMM...PU ATT BRÁÖUM AFMÆLI ALDURINN RÆÐST A OKKUR EINS OG HUNSRAÖUR ÚFLUR, EINS OG BRJÁLUÖ SÓRILLA, EINS OS .TRYLLTUR TRÚÖUR, |Á TRAMPÓLÍNI... i : O l 1 o Ljóska Smáfólk IF H'OU HATE RIPIN6 ON THE 5CH00L BU5 SO MUCH, UUHV PON'T VOU HIRE VOUR OWN PRIVATE LIMOUSINE? I*P RANK IT RI6HT AL0N6SIPE 5TAVIN6 IN 3EP ALL PAV! Úr því að þér finnst svona ömurlegt Þetta er besta Þakka þér fyrir Ég gæfi henni svipaða einkunn og aðfarameðskólabílnumafhverju hugmynd sem ég hef að liggja í rúminu allan daginn! leigir þú þér þá ekki glæsivagn? nokkru sinni heyrt. BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Eru gyðingar arabar? Frá Kristni Snæland: ÞESSARI spurningu má auðvitað snúa við og spyrja eru arabar gyð- ingar. Það sem er að vefjast fyrir mér er frásagnarmáti fjölmiðla þeg- ar greint er frá málum í Israel og Palestínu. Nýlega var fjallað um Vesturbakkann og sagt að þar byggju tvær milljonir manna, músl- imar, kristnir arabar og 170 þús. gyð- ingar, með þessum frásagnarmáta er sú villa að gera ráð fyrir því að gyð- ingar séu ekki arabar. Litið er hjá því að upprunalega voru gyðingar arabískur sértrúarhópur sem síðan hraktist úr landi og dreifðist um heiminn. Þessi arabíski sértrúar- söfnuður hélt vel saman og blandað- ist takmarkað. Meðal þess sem ein- kenndi hópinn og nasistar notuðu til að þekkja gyðinga á á götu var hið svokallaða gyðinganef. Þetta sér- kennilega nef er einkennandi á teiknimyndum þegar menn vilja kalla fram gyðinglegan svip. Það ber einnig svo við að nákvæmlega sama nef er látið einkenna araba þegar teiknimyndir eiga að sýna araba. Auðvitað hafa gyðingar blandast fólki af öðrum trúarbrögðum og þessvegna er rétt að einhver hluti þess sértrúarsafnaðar sem Bretar og Sameinuðu þjóðimar þrýstu með ofbeldi inn í Palestínu er ekki arab- ar. Það sem best tókst hjá gyðingum var að villa þannig á sér heimildir að flestir sem ekki gá að sér trúa því að gyðingar séu þjóð. Það er alrangt. Israelsmenn eru vissulega þjóð sem og Palestínumenn. Meðal ísraels- manna er fólk af hinum margvísleg- ustu trúarbrögðum, kristnir, músl- imar, gyðingar, hindúar, trúlausir og svo framvegis. í Palestínu er sama uppi á teningnum. Eg vil því setja fram þá kröfu til fjölmiðlafólks að það tali ekki um gyðinga og Palest- ínumenn eða Israelsmenn og músl- ima, heldur þá Palestínumenn og ísraelsmenn og svo þá t.d. gyðinga og múslima og kristna. Rétt er að ráð sé gert fyrir því að greina í milli ríkisfangs og trúarbragða en ekki að bulla þessu öllu saman eins og svo al- gengt er í fjölmiðlum. Fjölmiðlavaðall Með fjölgun fjölmiðla á ljósvakan- um, aukinni enskuþekkingu og mikl- um hraða veður stundum svo á fólki að hreint ótrúlegt er. Má ég til með að nefna nokkur dæmi, sum brosleg, önnm- heldur ömurleg. í frétt af óhappalendingu flugvél- ar á Vestfjörðum var sagt að til þess að koma vélinni á brott hefðu væng- imir verið limaðir af vélinni (ekki teknir af). í sorglegri frétt var talað um vitlaust boðtæki, (ekki rangt boð- tæki). í fréttum er allt stærst. Talað um stærsta mál ASI þingsins, stærstu útisamkomuna sl. sumar, stærstu kaupendur saltsíldar, stærstu flugeldasýninguna o.s.frv. Stærsta útisamkoman var sögð í Herjólfsdal. Miðað við stærð dalsins var það útilokað. Þótt ekki hefðu mætt nema svona 10 manns í Galta- læk hefði sú samkoma auðvitað verið miklu stærri en sú í Herjólfsdal. Jap- anir voru sagðir stærstu síldai-kaup- endurnir en ekki hefði þurft nema einn Norðmann til að kaupa eina síld, þá hefði hann geta talist stærsti síldarkaupandinn þetta árið. Flug- eldasýningin gat vissulega verið sú mesta eða stórfenglegasta en ef sam- tök hefðu verið með fjórum mönnum um að senda saman upp fjóra flug- elda hver, einn þeirra á Akranesi, annar í Sandgerði og hinir þar í milli hefði sú sýning geta kallast hin stærsta á f slandi til þessa. Allt er tekið yfir nú orðið, enginn tekur við þessu eða hinu. Allt gerist í dag en ekkert núna eða um þessar mundir. T.d. Staðan er þessi að við. Heldur er staglað staðan er þessi í dag að við. Og núna er allt að verða heitt og kórónað með bullinu sjóð- heitt. ARI SJÓÐHEITUR stundi DV á forsíðu í gær. Á enskri tungu munu notuð orð svo sem biggest, hottest, today og take over. Svo virð- ist sem þessi orð syngi í höfði fjöl- miðlafólks. Mætti ugglaust nefna fjölmörg önnur dæmi um orðafátækt þessa fólks. Annað fjölmiðlafólk ofbýður hlust- endum. Á rás 2 ræddi útvarpsmaður við viðmælanda í Ástralíu. Kona sú greindi frá óhugnanlegri frétt. Þegar fiskikar var tæmt þar niður í vinnslu- sal hraut mannshöfuð út á gólfið að starfsfólkinu sem varð felmtri slegið. Höfðu konan og fréttamaðurinn um þetta mörg orð og hlógu og skríktu yfir skemmtiatriðinu. Konan sagði reyndar svo frá því að höfuðið hefði þekkst, enda verið af sjómanni sem rétt nýlega hafði horfið fyrir borð. Lauk þessu skemmtispjalli með þeirri athugasemd að líklega væru sjómennirnir horfnir til hafs á hausa- veiðar. Gæti svona fólk skemmt sér vegna slyss á Miklubrautinni ef höf- uð manns skoppaði þar um ? Á útvarpsstöðinni Sögu 94,3 sem öllu jöfnu útvarpar aðeins íslenskri tónlist og stórkostlega þægilegum þætti Sigurðar Péturs, gerðist það kl. eitt aðfaranótt sunnudagsins 30. okt. sl. að tveir menn tóku tal saman. Blöðruðu þessir vesalings menn stanslaust í langan tíma um niður- gang, viðrekstra, vélindabakflæði og bakflæði. Blönduðu inn í þetta and- lega fóður sitt tekönnutali og meira prump- og niðurgangstali. Ef ein- hverjir hlustenda njóta svona and- legs sora þá er vissulega illt í efni. Ég verð æ þakklátari fyrir geisladiskana og slökkvarann á út- varpinu mínu. KRISTINN SNÆLAND, leigubílstjóri. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.