Morgunblaðið - 05.12.2000, Side 77
MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 77
BRIDS
Um.sjún Uuðmiiiiilur I'áil
Arnarson
EFTIR nokkuð brattar
sagnir verður suður sagn-
hafi í sex spöðum. Lítum
fyrst á tvær hendur og
metum möguleika sagn-
hafa með tíguldrottningu
út:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
* G53
» -
* AK63
* 986542
Suður
* ÁKD76
» K76
* 82
+ ÁK7
Vestur Norður Austur Suður
- Pass Pass 1 spaði
Pass 2 lauf* Pass 3 grönd
Pass 4 tíglar Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
* Drury, spaðastuðn-
ingur og 8-11 HP.
** Fyrirstaða
Ef laufið er 2-2 ætti
slemman að vinnast fyrir-
hafnarlaust bara með því
að taka trompin og leggja
niður ÁK í laufi. En 2-2-
legan er aðeins 40% og
því er sjálfsagt að leita
fleiri úrræða. Kemur til
greina að trompa þrjú
hjörtu í blindum? Sjáum
til: Drepið á tígulás, lauf
á ás og hjarta trompað.
Síðan tígulkóngur og tíg-
ull stunginn. Hjarta
trompað og, ...nei, það
vantar innkomur og hætt-
an á yfírtrompun er enn-
fremur allt of mikil. Er
eitthvað annað sem kem-
ur til greina?
Norður
* G53
r -
♦ ÁK63
+ AK63
Vestur Austur
* 84 * 1092
r ÁG942 v D10853
* DG10 ♦ 9754
* D103 * G
Suður
* ÁKD106
» K76
♦ 82
* ÁK7
Prófum þetta: Eftir
tígulásinn í fyrsta slag
tekur sagnhafi spaðaás
og laufás. Spilar svo
spaða á gosa blinds og
laufi úr borði. Austur get-
ur ekki hagnast á því að
trompa, því þá fer lauf-
slagur varnarinnar. Svo
hann hendir hjarta. Suð-
ur fær þá slaginn á lauf-
kóng og gefur vestri á
laufdrottningu. Vestur
gerir best í því að spila
tígli og taka þannig inn-
komuna af blindum. En
það er allt í lagi, svo
framarlega sem austur á
þriðja trompið. Sagnhafi
spilar frílaufi og ef austur
stingur í með tíunni yfir-
trompar suður, trompar
hjarta og hendir tveimur
hjörtum niður í frílauf.
Tólf slagir.
Arnað heilla
/?/\ ÁRA afmæli. í dag,
OU þriðjudaginn 5. des-
ember, verður sextugur Sig-
urður Sigurbergsson,
Malmö, Svíþjóð, áður Litlu-
Strönd, Rangárvöllum.
Hann er starfsmaður ríkis-
skjalasfnsins þar í borg.
Hann dvelur á Fuertevent-
ura, Kanaríeyjum, um þess-
ar mundir ásamt konu sinni,
Soffíu Árnadóttur.
r /\ ára afmæli. í dag,
OU þriðjudaginn 5. des-
jmber, er fimmtugur Júlíus
lónsson, forstjóri Hitaveitu
Suðurnesja. Júlíus er á af-
mælisdaginn staddur í Flór-
ida ásamt eiginkonu sinni,
Ingibjörgu Magnúsdóttur.
r /\ ÁRA afmæli. í dag,
Öv/ þriðjudaginn 5. des-
ember, verður fimmtugur
Sigurður Ársælsson raf-
verktaki, Skildinganesi 16,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Anna Dóra Guðmunds-
dóttir. Þau taka á móti vin-
um og velunnurum laugar-
daginn 9. desember kl.
18-21 í sal Flugvirkjafélags-
ins í Borgartúni 22.
r7f\ ÁRA afmæli. í gær,
I Vf mánudaginn 4. des-
ember, varð sjötugur Sig-
urður Indriðason, Víðilundi
4f, Akureyri.
SKAK
Umsjún llelgi Vss
Grétarsson
OKKAR maður, Hannes
Hlífar Stefánsson (2557), á
heimsmeistaramóti FIDE í
Nýju-Delhí á Indlandi, féll
úr leik í fyrstu umferð eftir
slysalegt tap í seinni skák
einvígisins gegn stór-
meistaranum Viktori Bol-
ogan (2641) frá Moldavíu.
Staðan kom upp í téðri
skák og hafði Hannes hvítt.
36. Hxf7! Eins og hefur
verið bent hefði 36. b7 b2
37. Bxf7+!
einnig dugað
til vinnings.
36.
Ha7+??
Grátleg yfir-
sjón. Fyrst
til að nefna
hefði 37.
Hxf8+ KxfB
38. Ba2 Be4
39. f3 Bd5
40. Bbl Ke7
41. Kf2 Kd6
a.m.k. verið
jafntefli.
Hins vegar
hefði 37.
Hc7+! Kh8
38. Ba2 bl=D+ 39. Bxbl
Bxbl 40. b7 Bf5 41. g4!
Be6 42. Hc6! leitt til sigurs
þar sem svartur getur ekki
svarað með viðunandi
hætti þeim hótunum hvíts
að leika 43. Hc6-xe6 og 43.
Hc6-a6-a8. 37. ...Kh8 38.
Ba2 Hb8! Vinningsleikur-
inn. Eftir aðra leiki hefði
hvítur getað veitt harðvít-
uga vörn. 39. b7 Kg7 40.
Hxa5 Hxb7 41. h4 Hb3 42.
ffl>5 bl=D+ 43. Bxbl
Hxbl+ 44. Hxbl Bxbl 45.
f3 Kf6 46. Kf2 Ke5 47. Ke3
Bf5 48. a5 Bc8 49. g3 Bb7
og svartur gafst upp.
LJOÐABROT
ÍÞRÓTTAVÍSA
Til hef eg tafl með spilum,
tölur, sem leggi og völur,
skák með sköfnum hrókum
skjótt og kotru hornótta,
hörpu heldur snarpa
hreysta með girnis neistum,
fón með fógrum sóni
fengið til lykla með strengjum.
Jón Arason.
STJÖRNUSPA
eftir Frances Urake
BOGAMAÐUR
Afmælisbarn dagsins: Pú ert
opinn og ævintýragjam og
nýtur þess að hafa vini þína
íkringum þig þegar ævin-
týrin eiga sér stað.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þér er nauðugur einn kostur
að grípa til einhverra ferskra
úrræða svo þú skalt leggja
höfuðið í bleyti áður en það
verður um seinan.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Láttu það ekki í ljósi þótt þú
vitir um fyrirætlanir sam-
starfsmanns þíns. Það er
betra að geyma það spil upp í
erminni til seinni tíma.
Tvíburar . ^
(21. maí - 20. júní) "A A
Vilji er allt sem þarf svo þú
skalt setjast niður og gera
upp hug þinn til þess hvaða
úrræði þú ætlar að nota til að
leysa verkefni dagsins.
Krabbi
(21. júnf-22. júlí)
Þótt þér fínnist að þér sótt
skaltu hvergi hörfa heldur
standa af þér storminn því
þegar honum linnir sjá allir
að þú hefur hreinan skjöld.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) m
Það er hreint með ólíkindum
hverju þú getur komið í verk
ef þú bara lætur eigið
hyggjuvit ráða ferðinni og
lítur framhjá athugasemdum
öfundarmanna þinna.
Meyja **
(23. ágúst - 22. sept.) (filL
Það er hægt að teygja sig of
langt til samkomulags og
þess vegna þarftu að íhuga
alla málavexti áður en þú
ákveður hvort þú vilt ganga
til samninga eða ekki.
(23. sept. - 22. okt.) m
Betri er krókur en kelda og
þess vegna skaltu taka þér
allan þann tíma sem þú þarft
til þess að ganga frá hlutun-
um. Taktu eitt verk fyrir í
einu.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það hefur auðvitað sitt að
segja hvort þú gefur þér
tíma til þess að sinna vinum
þínum eða ekki. Gerir þú
ekkert skaltu ekki reikna
með því að fá neitt frá öðrum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Oll él birtir upp um síðir og
þess vegna skalt þú sýna þol-
inmæði þótt erfitt sé en ekki
grípa í fljótfærni til ein-
hverra óyndisúrræða.
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar) míí
Það þarf kjark til þess að
grípa til sterkra aðgerða en
þú mátt ekki hika því allt
hálfkák leiðir bara til ófarn-
aðar.
Vatnsberi f .
(20. jan. - 18. febr.) CJ®
Þú mátt alveg reikna með því
að stíga ofan á tærnar á ein-
hverjum þegar þú berst fyrir
framgangi máls þíns. Láttu
mótstöðuna samt ekki hrekja
þig af leið.
Fiskar m
(19. feb. - 20. mars) >%■*>
Hlustaðu ekki á þá sem segja
að þér sé fyrir bestu að sitja
með hendur í skauti. Hver er
sinnar gæfu smiður og því
skalt þú grípa til þinna ráða.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is
Mikið úrval af fallegum
jóla- og
samkvæmisfatnaði
Opið laugardag
frá kl. 10-16
Hverfisgötu 78, sími 552 8980.
Opið mán.-laugard.
frá kl. 10-18.
Kvenfataverslun, Garðatorgi 7, Garðabæ, sími 565 9996.
Nægur svefn og hvíld eru undirstaða góðrar
heilsu og vellíðunar. Því er mikilvægt að
virða svefnþörfina aila ævi. Einnig að gefa
sér tíma til að slaka á í dagsins önn.
Svefnþörf er einstaklingsbundin en til eru ákveðin viðmið
tengd aldri. Ung- og smábörn 12-18 tíma; forskólabörn
10-12 tíma; skólabörn um 10 tíma; ungmenni 8-10 tíma;
fullorðnir 6-8 tíma.
Syfja að degi er merki um ófullnægjandi svefn hver sem
orsökin er. Ef eftirfarandi ráð duga ekki leitaðu aðstoðar.
Góð ráð til að sofa og hvílast:
• Reglulegur fótaferðartími og svefnvenjur bæta svefn.
• Dagleg hreyfing er góð en ekki rétt fyrir svefn.
• Vera hvorki svangur né of saddur.
• Forðast kaffi, te, kóla- og orkudrykki að kveldi.
• Áfengi og tóbak trufla svefn.
• Ró í umhverfi og huga áður en lagst er til svefns.
• Dempuð lýsing, heitur drykkur eða bað fyrir svefn.
• Gott rúm, hæfilegur hiti og kyrrð í svefnherbergi.
• Ekki liggja andvaka, farðu fram í smástund og reyndu
svo aftur að sofna.
• Svefnlyf geta hjálpað en alls ekki lausn til langframa.
Gefum okkur tíma til að njóta kyrrðar og hvíldar á
aðventunni í einrúmi eða með fjölskyldu og vinum
Nýkomið
mikið úrval
Jakkar • buxur • blússur
• mussur • úlpur
Hiá Svönu
Landlæknisembættið
Góða nótt
VELKOMIN UM BORÐ
■ '
RED//GREEN
C Mtl> C,/iniN I si ahnQ
Laugavegur \ • Sími 561 7760