Morgunblaðið - 05.12.2000, Síða 84
84 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
r
HASKOLABIO
HASKOLABIO
Hagatorgi
www.haskolabio.is
sími 530 1919
IMAN
SVARAMAÐURINN
Synd kl. S.45, 8 oq 10.15. B.i. I6ára.
ÖSK4»ÍUL Né«*»MHl44
★★★ ÚHT Rás 2
EDDIE MURPHY *f KLUMPARNIR
★★★ _
Kvikmyndlr.ls r'y
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16ára.
Sýndkl. 8 og 10.15.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 4. Isl tal. -
Vi,nr13’ \ftt
Kaupið miða í gegnum VITið. Nánari upplýsingar á vit.is 'y__________________________________________J
GRINLIST
Geisladiskur
SLEIKIR HAMSTUR
Sleikir hamstur, geisladiskur Tví-
höfða. Allt efni samið og flutt af
Tvíhöfða sem eru þeir Jón Gnarr og
Sigurjón Kjartansson. Lagið
„Conditionador“ er eftir þá Sigur-
jón Kjartansson, Jón Gnarr, Guðna
Finnsson, Pétur Hallgrímsson, Arn-
ar G. Ómarsson og Barða Jó-
hannsson. Textinn er eftir Jón
Gnarr og Sigurjón Kjartansson.
Lögin „Ú kæra vina“, og „My
Bitch“ eru eftir þá Sigurjón, Jón
: og Barða, sömuleiðis textar. Bak-
raddir í „U kæra vina“ eiga þeir
Pétur Guðmundsson og Pétur Hall-
grímsson en bakrödd í „My Bitch“ á
Védís Hervör Ámadóttir. Hljóð-
færaleikur var í höndum þeirra
Siguijóns Kjartanssonar (gítar),
Péturs Hallgrímssonar (gítar),
Guðna Finnssonar (bassi), Amars
G. Ómarssonar (trommur) og Barða
Jóhannssonar (hljómborð). Barði
Jóhannsson sá um upptökustjórn
og forritun tónlistar en upp-
tökumenn vom þeir ívar Ragnars-
son og Hafþór Guðmundsson. Upp-
taka skopskissa var í höndum
Jóhannesar Kristjánssonar. 45.36
mín. Dennis/Skífan gefur út.
Þad sem fyndið er að segja
Tvíhöfði hefur verið sem ferskur
gustur í menningar-/grínlífi landsins
undanfarin ár og er sprækur sem
aldrei fyrr um þessar mundir. Ekki
er tóm til að rekja for-
sögu og
v
SLEIKIR hamstur er þriðja
plata Tvíhöfða en áður hafa komið
út plötumar Til hamingju (1998) og
Kondí Fílíng (1999).
Það má segja að útgáfa á grín-
plötum sem þessum hafi verið í al-
gerum lamasessi lengi vel - helst að
Laddi og Spaugstofan hafi verið að
garfa eitthvað í þessu fyrir um
fimmtán árum.
feril
Tvíhöfðans hér en
eins og alkunna er stjóma þeir
félagar sem hann skipa, þeir Sigur-
jón Kjartansson og Jón Gnarr,
samnefndum morgunþætti á Rad-
io-X sem nýtur talsverðra vinsælda
sem og nokkurrar hópdýrkunar (e.
cult). Þar spinna þeir félagar og
sprella í fjóra klukkutíma, á milli kl.
7 og 11 alla virka morgna, og halda,
merkilegt nokk, dampi allan tímann.
Þessir gríngeisladiskar Tvíhöfða
innihalda í bland efni úr þessum
þáttum svo og efni sérstaklega sam-
ið fyrir útgáfumar.
Skoplegt innsæi þeirra félaga er
með ólíkindum. Ég hlusta oft á þá
MorgunblaðiJ/PorkelI
„Tvíhöfði hefur verið sem ferskur gustur í menningar-/grínlífi lands-
ins undanfarin ár og er sprækur sem aldrei fyrr um þessar rnundir."
félaga þegar ég hjóla til vinnu á
morgnana og hlæ þá eins og rotta
framan í samborgara mína.
Kímnigáfa Tvíhöfða er skiiyrt af-
kvæmi kaldhæðnu kynslóðarinnar,
ieitast er við að ganga eins langt og
hægt er með skopið og Tvíhöfðinn
dansar oft á tíðum trylltan dans á
hengiflugi þess sem telst smekklegt.
Kiúrleika er blandað við súrreal-
isma og oft á tíðum mætti kalla at-
hafnir þeirra félaga „óskiljanlegt
mgl“. Og sitt sýnist hverjum. Sumir
segja kímni Tvíhöfðans snilld, aðrir
kalla hana ómarktæka vitleysu og
bull.
Meginstyrkur Tvíhöfðans felst í
því hversu blátt áfram hann er og
falslaus í allri grínnálgun - það er
stíll yfir Höfðanum og hann gefur
ekki tommu eftir. Þessi eiginleiki
kemur kýrskýrt fram í útvarpinu en
er því miður ekki að skila sér nægi-
iega oft inn á diskana.
Á Sleikir hamstur er t.d. afar
margt sem er alveg drepfyndið. En
einnig bregður fyrir atriðum sem
em það alls ekki. Dæmi um slíka
brokkgengni era skissur eins og
„Skólafanturinn", „Yfir mynd“ og
„Fjárhagnum er reddað" þar sem
uppbygging er ágæt en niðurlag
dræmt. Það er eins og niðurlag (e.
punchline) brandara vefjist oft fyrir
Tvíhöfðabræðranum.
Tvíhöfðinn er hins vegar í topp-
formi í skissuröðinni „Táninga-
fræðarinn". Þegar hann er í slíku
stuði er hann einfaldlega óstöðvandi
og blessunarlega er slíkt efni í
meirihluta hér. I þessum afbragðs
góðu skissum setur Jón sig í hlut-
verk uppfræðara og maður minnist
ósjálfrátt fræðslumyndbandanna
sem manni var gert að horfa á í
grunnskóla. Dæmi um aðrar viðlíka
skissur er t.d. „Lasinn", „Hnerri“
og „Runkarinn" - óborganlega
fyndin atriði sem eru prýðisgóður
vitnisburður gríngáfu þeirrar sem
Tvíhöfðinn býr yfir.
Tvíhöfðinn er þó bestur er hann
tekur til við hljómlist. Vinsælar
hljómsveitir og tónlistarstefnur fá
makalausa yfirhalningu í lögum eins
og „Conditionator" (Korn), „My
Bitch“ (R’n’B) og „Ú Kæra vina“
(Skítamórall og ball/poppgeirinn ís-
lenski). Önnur tónlistaratriði eins og
„Skrifstofutrúbador“ og inngangs-
stefið að „Kindin Einar“ era og al-
veg sprenghlægileg. Hrein snilld.
Að lokum tvær vinsamlegar
ábendingar.
Af hverju ekki að gefa í meiri
mæli út efni sem spunmð hefur
verið í útvarpsþáttunum? Ég efast
ekki um að margir myndu fagna
innilega ef þeir kæmu höndum yfir
hina óborganlegu Grillþætti hvar
snillingar eins og Grill-Guðjón,
Kótilettu-Kjartan og Salsa-Svenni
fóra á kostum. Að ég tali nú ekki
um Smásálina?
Diskarnir mættu og vera lengri.
Því ekki að hlaða bara eins miklu
efni og hægt er inn á diskana?
Fyrsti, og vel að merkja besti, disk-
urinn til þessa var til dæmis rúmar
73 mínútur á meðan þessi er ekki
nema 45.
En sem slíkur nuddar diskurinn
svo sannarlega ýsu. Annað tottar
fisk.
Arnar Eggert Thoroddsen
ÁBURÐUR MEÐ DJÚPVIRKUM ENSÍMUM
Minni verkir og
aukinn hreyfanleiki
„Slitgígt hefur hrjáð mig í hnjám og
fingrum í rúman áratug, með sárum
verkjum og slirðleika. Síðustu þrjú
reglulega. Árangur kom í ljós strax á
læpri viku með mun minní verkjum
og auknum hreyfanleika, sem gerði
mér fært að stunda æfingar mér til
styrktar. Síðan hef ég notað áburðinn
reglulega / þrjú ár til að halda
árangrinum við.“
PENZIM er húðáburður sem inniheldur djúpvirk, hreinsuð ensím.
Vegna eiginleika ensímanna hefur PENZIM reynst vel fólki með
ýmis húð- og liðvandamál, bólgur, vöðvaverki o.fl.