Morgunblaðið - 15.12.2000, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2000
FJOLMIÐLUN
MORGUNBLAÐIÐ
Fjölmiðlar í Bandaríkjunum 1 naflaskoðun um frammistöðu sína í kosningadeilunni í Fldrída
Yfírborðsskrif eða
ítarleg umfjöllun?
Bandarískir fjölmiðlar hafa ijallað mikið um
forsetakosningarnar þar í landi og eftirleik-
inn í Flórída. Ragnhildur Sverrisdóttir seg-
ir skiptar skoðanir um framgöngu fjölmiðla,
sumir telji þá hafa staðið sig með ágætum
en aðrir segi þá aðeins hafa lapið upp um-
mæli úr herbúðum frambjóðenda.
FJÖLMIÐLAR voru svo sannarlega
ekki viðbúnir atburðarásinni eftir
kjördag, 7. nóvember, og ekki hægt
að ætlast til að þeir gætu séð ótrú-
legar lagaflækjur í Flórída fyrir.
Daglega eru nýjustu fréttir frá Flór-
ída á forsíðum allra dagblaða og á
helstu sjónvarpsfréttastöðvum hefur
auðvitað fátt annað komist að. Al-
menningur er farinn að lýjast á allri
umfjölluninni og biðja sér griða. En
stríðsástand ríkir enn í Flórída og
margir telja að langur tími líði þar til
öll kurl verða komin til grafar.
Fjölmiðlar velta því sjálfir fyrir
sér hvernig þeir hafi staðið sig hing-
að til, bera saman bækur sínar og
reyna að átta sig á hvert skuli haldið
næst. Bandaríska tímaritið Editor &
Publisher, sem hefúr fjallað um
blaðaheiminn þar í Iandi undanfarin
116 ár, gerir fréttaflutning frá Flór-
ída að umfjöllunarefni í nýjasta tölu-
blaði sínu nú í vikunni. Blaðið byrjar
á að vísa til þess, að þremur vikum
eftir kjördag hafi hátt í 30 frétta-
stjórar ýmissa bandarískra stór-
blaða, sem allir starfa í höfuðborg-
inni Washington, hist á fundi til að
ræða stöðuna. Blaðið segir að á þess-
um fundi hafi menn lýst því yfir að
þeir færu varlega. Fyrir kosningam-
ar hefðu blaðamenn notað orð, blæ-
brigði og kaldhæðni til að koma áliti
sínu á mönnum og málefnum til
skila, en nú forðuðust þeir allt slíkt.
Editor & Publisher veltir því fyrir
sér hvort bandarísk dagblöð hafi
kannski verið of varfærin, hvort þau
hafi ekki séð Flórídaskóginn fýrir
trjánum og hafi fallið í þá gryfju að
láta herbúðir frambjóðendanna ráða
í hvaða farveg fréttaskrifin fóru.
Blaðið hefur eftir Ronald E. Yates,
fyrrverandi ritstjóra hjá Chicago
Tribune og núverandi forstöðu-
manni blaðamannadeildar Illinois-
háskóla, að ekkert af allri fréttaum-
fjölluninni í Flórída muni skila
nokkrum blaðamanni Pulitzer-verð-
launum. Engu óvæntu hafi verið velt
upp.
Svipað hljóð er í Tom Wicker,
pistlahöfundi og stjómmálaskríbenti
New York Times. Hann segir að frá
upphafi Flórídamálsins hafi sér þótt
augljóst að þar réði köld valdabar-
átta ferðinni og allt tal um annað
væri bull. Dagblöðin hafi hins vegar
ekki lagt áherslu á þá hlið mála,
heldur leyft aðilum málsins að koma
fram með fullyrðingar um hve göf-
ugur málstaður þeirra væri.
Hvað með
sjálf atkvæðin?
Alex S. Jones, yftrmaður Shoren-
stein-miðstöðvarinnar um fjölmiðla,
stjómmál og stjómsýslu segir að
dagblöðin hafi staðið sig ágætlega,
svo langt sem það nái. Lykillinn að
fréttum frá Flórída hafi hins vegar
verið atkvæðaseðlarnir sjálfir og
hvað raunvemlega gerðist með gild
Bygginga- og
tækjasjóður RANNÍS
Umsóknarfrestur til 15. janúar 2001
Bygginga- og tækjasjóður RANNÍS hefur það hlutverk að
styrkja tækjakaup og uppbyggingu á aðstöðu
til rannsókna í vísindum og tækni. Árlega eru veittir styrkir
úr sjóðnum til opinberra vísinda- og rannsóknastofnana.
Við mat á umsóknum er tekið mið af stefnu
Rannsóknarráðs (slands um eflingu samstarfs milli háskóla,
rannsóknastofnana og atvinnulífs.
Helstu kröfur sjóðsins eru:
• að samstarf verði um nýtingu aðstöðu og/eða tækja
milli stofnana og atvinnulífs með fyrirsjáanlegum hætti,
• að fjárfestingin skapi nýja möguieika sem ekki voru
áður fyrir hendi,
• að möguleiki sé á samfjármögnun þannig að framlag
Bygginga- og tækjasjóðs greiði aðeins hluta kostnaðar
við fjárfestinguna.
Upplýsingar um Bygginga- og tækjasjóð og eyðublöð
sjóðsins eru á heimasíðu RANNÍS www.rannis.is
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2001.
RAIIinilS
atkvæði jafnt sem ógild. Par hafi
fjölmiðlar ekki staðið sig sem skyldi.
Oll áhersla hafi verið lögð á stjóm-
málin og lagaleg álitamál og hin
raunverulega frétt hafi legið í lág-
inni.
Editor & Publisher tímaritið vísar
m.a. til þess að nokkrar vikur liðu frá
kosningum þar til dagblöðum loks
hugkvæmdist að gera próf á at-
kvæðaseðlunum sjálfum, þrátt fyrir
að ljóst væri að úrslit kosninganna
réðust af því hvort flipar á kosninga-
seðlum, sem ekki hefðu losnað alveg
af eða aðeins gatast eða dældast,
teldust greidd atkvæði eða ekki.
Stórblaðið Wall Street Journal tók
loks af skarið og komst að þeirri nið-
urstöðu að pappírinn í atkvæðaseðl-
unum væri furðu sterkur.
Tímaritið leitaði álits um tveggja
tylfta ritstjóra, stjórnmálaskýrenda
og kennara í blaðamennskufræðum.
Mikill meirihluti þeirra taldi fjöl-
miðla hafa staðið sig vel í fréttum af
ótrúlega flóknu máli, sem enginn
hafði fengist við áður. Margir höfðu
hins vegar orð á því að þeim mislík-
aði að dagblöðin hefðu ekki náð að
færa fréttaflutning sinn undan
áróðri herbúða frambjóðendanna.
I grein tímaritsins kemur fram að
margir ritstjóranna töldu enga
ástæðu til að gagnrýna umfjöllun
dagblaðanna. Leonard Downey, rit-
stjóri Washington Post, er einn rit-
stjóranna sem sagði blað sitt hafa
lagt ómælda vinnu í nákvæman
fréttaflutning. Hann nefndi eitt
dæmi, grein þar sem rakið var
hvemig atkvæðaseðlar, sem kjós-
endur gata, hafa reynst í fyrri kosn-
ingum. Aðspurður hvers vegna blað
hans hefði ekki orðið sér úti um at-
kvæðaseðla, þar til gerðar atkvæða-
greiðsluvélar til að gata þá og prófað
þetta fyrir lesendur svaraði ritstjór-
inn því til að hann hefði ekki séð
ástæðu til að gera neytendakönnun.
Ritstjóri Miami Herald í Flórída,
Martin Bacon, er ekki sammála því
að dagblöðin hafi ekki lagt vinnu í að
grafa upp fróðleg atriði til að varpa
skýrara jjósi á málið. Hann vfsar til
þess að blað hans hafi greint ná-
kvæmlega hvemig atkvæði hafa fall-
ið í sýslum Flórída í fyrri kosningum
og komist að þeirri niðurstöðu að
Gore hafi átt að vinna með 23 þúsund
atkvæða mun, ef ekki hefðu komið til
ógild atkvæði og óregla í kosninga-
framkvæmd. Blaðið hefúr einnig
höfðað mál til að fá að skoða hina al-
ræmdu 10 þúsund atkvæðaseðla í
Miami-Dade sýslu, sem fóru í gegn-
um talningarvélar án þess að vélarn-
ar greindu á þeim greidd atkvæði.
Reuters
Blaðamenn á tröppum byggingarinnar, sem hýsir Hæstarétt Bandaríkj-
anna, bera saman bækur sínar um niðurstöður réttarins varðandi end-
urtalningu atkvæða i Flórída.
Ritstjóri Boston Globe, Matthew
Storin, segir að enn sem komið er
hafi enginn fjölmiðill öðrum fremur
náð að slá í gegn. Ann Marie Lip-
inski ritstjóri Chicago Tribune er
þessu sammála og nefnir, eins og
Storin, að upplýsingar um það sem
fram fari á bak við tjöldin vanti til-
finnanlega í fréttaflutninginn.
Aðrir ritstjórar eru þeim sammála
að hluta, en benda m.a. á að atburða-
rásin i Flórída hafi breyst daglega og
fjölmiðlar hafi mátt hafa sig alla við
að greina frá nýjustu fréttunum og
ekki haft tíma til að greina þær nán-
ar eða leita annars efnis. John Carr-
oll, ritstjóri Los Angeles Times, seg-
ir einstaka stórfrétt ekki hafa skotið
upp kollinum, en vísar þó til frétta-
flutnings eigin blaðs um að 16 af 67
sýslum Flórída hafi ekki endurtalið á
réttan hátt í fyrstu endurtalningunni
sem náði til alls ríkisins, heldur látið
sér nægja að fara aftur yfir lokatölur
talningarvélanna.
Hæstiréttur Flórída
á villigötum
Blaðamaður Chicago Tribune í
Washington, Jan Crawford Green-
burg, sýndi og sannaði að sá getur
fundið merkar fréttir sem hikar ekki
við að leggja á sig þá vinnu sem þarf.
Hún ákvað að taka ekki trúanlegar
fullyrðingar um tíu ára fordæmi frá
Illinois, heldur kíkja nánar á það
sjálf. í því dómsmáli var fjallað um
hvort leyfa ætti talningu á atkvæð-
um, þar sem atkvæðaseðlamir væm
ekki gataðir á réttan hátt. Lögmaður
Gore og Hæstiréttur Flórída full-
yrtu að dómstóllinn í Illinois hefði
komist að þeirri niðurstöðu að taka
ætti slíka seðla gilda, en Greenburg
varð sér úti um málsskjöl, las sig í
gegnum bunkana og uppgötvaði að
dómstóllinn hafði komist að þver-
öfugri niðurstöðu. Frétt hennar
vakti hins vegar takmarkaða athygli
ogvar ekki tekin upp af stórblöðum.
í grein Editor & Publisher er ekki
loku fyrir það skotið að enn eigi
miklar fréttir eftir að berast frá
Flórída, þegar fjölmiðlar hafa tíma
til að skoða allar hliðar málsins ofan í
kjölinn. Atburðarásin sé svo sér-
stæð, að hún hljóti að kalla á mikla
krufningu.
Greininni lýkur á þeim orðum, að
fréttastjóramir sem hittust í Wash-
ington í lok nóvember hafi verið
sammála um að þeir hafi látið sitja á
hakanum að fjalla um það sem raun-
veralega fór úrskeiðis í Flórída, en
þar ætli þeir að bæta úr. Editor &
Publisher tímaritið segir að eftir sitji
sú spuming hvers vegna það hafi
tekið þá svo langan tíma.
Bandaríkjamaður forstjóri Reuters
London. Reutcrs.
FRÉTTA- og upplýsinga-
samsteypan Reuters skýrði frá því
sl. þriðjudag, að Bandaríkjamað-
urinn Tom Glocer, aðalfram-
kvæmdastjóri upplýsingadeildar
fyrirtækisins, hefði orðið fyrir val-
inu sem nýr forstjóri. Mun hann
taka við af Peter Job þegar hann
lætur af störfum í júlí næstkom-
andi.
Glocer, sem er liðlega fertugur,
er fyrsti Bandaríkjamaðurinn til
að veita Reuters forstöðu í 150
ára sögu fyrirtækisins en það er
meðal þeirra elstu og stærstu á
Bretlandi. Þykir það engin til-
viljun, að hann skuli koma til
skjalanna nú en Reuters tilkynnti
fyrr á árinu, að ýmsir meginþættir
starfseminnar yrðu færðir yfir á
Netið. Er Glocer sagður kunna
góð skil á þeirri tækni enda er
hann nú þegar einn af yfirmönn-
um upplýsingastarfseminnar og
stendur óbein skil á rúmlega
Reuters
Peter Job, fráfarandi forstjóri
Reuters, og Tom Glocer, eftir-
maður hans. Með skipan hans
hefur verið brotin sú hefð að
blaðamaður sé við stjórnvölinn.
helmingi allra tekna fyrirtækisins.
Á fjármálamarkaði voru aug-
ljóslega bundnar vonir við, að
Glocer yrði fyrir valinu enda
hækkaði gengi hlutabréfa í Reut-
ers um 6% á Nasdaq á þriðjudag.
Með skipan hans hefur verið brot-
in sú gamla hefð, að blaðamenn
séu í forsvari fyrir Reuters en
Glocer er lögfræðingur að mennt.
Kom hann til starfa fyrir fyr-
irtækið fyrir sjö árum og hefur
frami hans innan þess verið skjót-
ur.
Breyttar
aðstæður
Reuters og önnur fyrirtæki hafa
notið uppgangsins, sem verið hef-
ur á fjármálamörkuðum og i
bandfirísku efnahagslífi næstum í
áratug, en fréttaskýrendur segja,
að nú muni reyna á Glocer við
nokkuð nýjar aðstæður. Gengi
tæknifyrirtækja hefur lækkað
mikið og þær vonir, sem menn
gerðu sér um mikinn hagnað af
netviðskiptum, hafa brugðist.
Flestir eru þó sammála um, að
Reuters hafi gert rétt er það
ákvað að færa starfsemina sína að
stórum hluta inn á Netið. Ilefur
fyrirtækið raunar verið gagnrýnt
fyrir seinagang í því efni.