Morgunblaðið - 15.12.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAMÐ
UMRÆÐAN
FÖSTUDAGUR 15. DE'sFMBRR 20Ö0
Kennarar og hátækni
SEM tölvunarfræðingur sem hef-
ur dvalist erlendis er ég stundum
spurður hvort mér finnist ekki
aðdáunarvert hversu framarlega ís-
lendingar standa í hugbúnaðarþró-
un og annarri hátækni.
Oft telja viðmælendur mínir að
hæfni íslenskra forritara sé nýjasta
dæmið um meðfæddar náðargáfur
þjóðarinnar, sem m.a. hafa áður
gefið okkur skákmeistara og annað
afreksfólk, og spurningar þeirra lítt
dulin tilraun til staðfestingar á
þessari sannfæringu.
Reyndin er hinsvegar sú, að ís-
lendingar hafa engar sérstakar náð-
argáfur þegar kemur að hugbún-
og þróa, faglegar nýjungar. Það er
Ijóst að í raungreinum, helstu und-
irstöðu hátækni, eru framhaldsskól-
ar landsins orðnir, eða að verða,
ófærir um að veita nemendum
þennan nauðsynlega grundvallar-
skilning.
Ógerlegt er að fá nýja raun-
greinakennara til starfa í fram-
haldsskólum vegna þeirra hlægi-
legu launa og aðstöðu sem þeim er
þar boðin. Þeir fáu raungreinakenn-
arar sem enn eru starfandi verða að
berjast við mikla kennsluskyldu til
að halda uppi metnaðarfullri
kennslu, án þess að þeim sé umbun-
að með mannsæmandi launum.
Ríkisstjórn íslands fer oft mikl-
um lofsorðum um getu íslensks há-
tækniiðnaðar, og virðist stundum
deila sannfæringu viðmælenda
minna úr upphafi greinarinnar. Því
miður getur ríkisstjómin ekki reitt
sig á meðfædda hæfileika þegna
sinna til að tryggja framtíðarhag-
vöxt. í íslenskri hugbúnaðargerð
era flestir frumkvöðlarnir um þrí-
tugsaldurinn og var því kennd
grundvallaratriði tölvutækni, s.s.
forritun, strax á fyrstu árum fram-
haldsskólanáms. Sú kennsla hefur
fyrir löngu lagst af og þeir sem nú
eru að hefja háskólanám þekkja
tölvur yfirleitt aðeins sem leik- og
ritvinnslutæki. í dag er forritun
ekki kennd við framhaldsskóla, ein-
faldlega vegna þess að hæfur um-
sækjandi getur þénað þreföld (eða
fjórföld) laun við að forrita sjálfur.
Lausn vandans liggur auðvitað
ekki í að færa alla raungreina-
kennslu upp á háskólastig, og mikil
skammsýni væri að hækka laun
raungreinakennara í framhalds-
skólum sérstaklega. En, eins og Ari
Edwald benti á í Morgunblaðinu 3.
des. sl., og hefur úr vikuritinu
Economist, þá er líklegt að vandinn
leysist ekki heldur við flatar launa-
hækkanir fyrir alla framhaldsskóla-
kennara (og það jafnvel þótt grunn-
laun þeirra yrðu tvöfölduð). Til að
trj'ggja að hæfir kennarar fáist til
starfa í framhaldsskólum, og hverfr''
ekki fljótlega á brott, verður að
gefa stjóra skólanna leyfi til að
umbuna sérstaklega þeim kennur-
um sem sýna mikinn metnað og
hæfni í starfi, annaðhvort með
launahækkunum eða minnkaðri
kennsluskyldu. Kennarinn á skilin
laun erfiðis síns.
Höfundur er tölvunarfræðingur.
Minningarkort Styrktarfélags 11
krabbameinssjúkra barna f |
www.skb.is/framlog/minningarkort.html sími 588 7555
Úlfar
Erlingsson
Tækni
Gefa verður stjórn
skólanna leyfí til að
umbuna sérstaklega
þeim kennurum, segir
Úlfar Erlingsson, sem
sýna mikinn metnað
og hæfni í starfí.
aðargerð eða öðrum hátæknistörf-
um. Þar gildir, eins og í skák, að æf-
ingin skapar meistarann.
En hvernig er æft fyrir nám og
störf (sér í lagi frumkvöðlastörf) í
hátækniiðnaði? í grein sinni í
Morgunblaðinu 7. des. sl., bendir
Sven Þ. Sigurðsson réttilega á að
mikilvægast er að fólk læri ákveðna
tegund rökhugsunar og öðlist skiln-
ing á þeim aðferðum sem liggja að
baki þekkingarsköpun í fræðunum.
Þessi skilningur, auk fræðilegs
áhuga, er mun mikilvægari en
kunnátta á einstökum þekkingarat-
riðum, því skilningurinn leyfir fólki
að starfa sjálfstætt og takast á við,
Umboðsmenn um olil lond
■ Fósf í helstu úlivislorverslunum
hp OmniÐook 6000
Ný hönnun. Fyrir þá sem þurfa
mikil afköst. Tilvalin fyrir
viðskiptaumhverfiö. MikiS úrval
fylgihluta.
hp OmniBook XE3
Hentug fartölva fyrir InternetiS og
margmiðlun. Innbyggðir flýtihnappar
tryggja skjóta og einfalda leið að
aðgerðum. Kemur með því sem þarf
til viðskipta og skemmtunar.
h p B r i O
Infel Plll 800 MHz, Micro turn
256 Mb minni, 20 Gb diskur,
nVIDIA GeForce2 GTS 32 Mb
TVout AGP skjákort, DVD 8x/40x
drif, CDT?W 4x4x24 skrifari, 20 bita
PCI hljóðkort, 3 PCI,1 ISA og
2 USB tengí. Windows 98,
Word 2000 og Virus Scan vírusvörn.
HP 17" skjár.
Verð 199.000 kr.
h p e-PC
e-PC - forskot á framtíðina.
Hljóðlát og stöðug.
Minni kostnaður.
h p Vectra
Hágæða tölvur fyrir viðskipta-
umhverfið. Fáanleg i þremur
mismunandi útfærslum (MT,DT,SFF).
i n v e n t
www.hp.is
Isyfcjwfci
Gagnabanki íslonds • Griffill • Lausn • Penninn-Skrifslofulaoki • Trislan ehf.
LandsbyggAint
EG Jónasson ehf. ■ Elemenl hf. • Kaupfébg Skagfir&inga • Samhæfni ehf.
Snerpa ehf. • Tölvu- og rafeindaþjónusta Su&urlands • Tölvun ehf.
Tölvuþjónusta Auslurlands • Tölvuþjónustan Akranesi
•f
A-
*