Morgunblaðið - 15.12.2000, Síða 65

Morgunblaðið - 15.12.2000, Síða 65
öítiA.ltivítíWílðly! MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2000 63^ UMRÆÐAN náttúruverndar og enn síður skil ég af hvaða ástæðum nefndin ákveður að veita yður tvær millj- ónir af almannafé út á þessi býtti, nema þá kannski vegna þess að þér eruð framsóknarmaður eins og formaður fjárlaganefndar, Jón Kristjánsson, sem og reyndar for- maður Landverndar, eins og áður er getið. En það er algjör tilviljun. Reyndar held ég að það sé algjör tilviljun að menn velji sér það hlutskipti að vera framsóknar- menn, því að ef stefnuyfirlýsing þeirra er af einhverri svipaðri hlaupvídd og stefnuyfirlýsing Um- hverfisverndarsamtakanna fjallar hún ekki um neitt og hending ein hvort menn velji sér hana að pólí- tískri hugsjón. Steingrímur, þér teljið afar mik- ilvægt að gera úttekt á „gróður- húsaáhrifum“ (!?) okkar íslendinga og að gera tillögur um hvernig draga megi úr þeim. Og að það sé að mati Umhverfisverndarsamtaka íslands sérstaklega mikilvægt, ekki síst með það í huga hvernig við íslendingar getum staðið við alþjóðlegar skuldbindingar um minni losun gróðurhúsaloftteg- unda. í þessu sambandi vil ég benda yður á að Islendingar eru ekki bundnir neinum alþjóðlegum samþykktum hvað varðar losun gróðurhúsalofttegunda. Þér ættuð að vita manna best að flokkssystk- ini yðar hafa verið vakin og sofin í að sníkja undanþágur frá þessum samþykktum og hafa lagt út í betlihernað á heimsvísu til að gera Islendingum kleift að byggja upp mengandi þungaiðnað, en það er náttúrulega hrein tilviljun. Einhvern tíma munu svona meldingar, eins og þær sem þér kollegarnir viðhöfðuð við af- greiðslu þessarar fjárveitingar, verða kallaðar spilling og fé það sem þér höfðuð úr almannasjóðum, illa fengið. En það er langt í það, íslenska þjóðin er rækilega bólusett fyrir svona götustrákshætti. Því vil ég segja þetta: Umhverf- isverndarsamtök íslands finnst mér vera lítið annað en Trójuhest- ur inn í umræðuna um náttúru- verndarmál en öfugt við hinn há- timbraða jó fornbókmenntanna, sem geymdi í kviði sínum flugu- menn Grikkja, eru þar fáir aðrir en Steingrímur sjálfur, Júlíus Sól- nes og þessir kandídatar sem venju fremur prýða forsíðu Séð og heyrt. Og orð yðar sem þér viðhöfðuð við stofnun UVÍ þess efnis að þér vilduð stofna umhverfisverndar- samtök til að stemma stigu við öfgasamtökum í náttúruverndar- málum, þá vil ég segja: Að við hlið- ina á Umhverfisverndarsamtökum íslands virðast öll félagasamtök verða að öfgasamtökum. Jafnvel orlofsnefnd húsmæðra hefur til- burði til þess, samanborið við aðgerðarleysi samtaka yðar í umræðunni um náttúruverndarmál. Steingrímur Hermannsson, ég skora á yður að skila aftur hinu illa fengna fé og sjá til þess að þeir sem sannarlega hafa staðið vörð um verndun náttúru íslands fái notið þess, og þar á ég við Nátt- úruverndarsamtök íslands. Höfundur er myndlistarmaður og félagi í Náttúruvemdarsamtökum íslands. BARNAFATHAÐUR í úrvali, skoðaðu verðið. Þumalína, s. 551 2136. Hnattbar Góð tækifærtsgjöf húsgögn Ármúla 44 sími 553 2035 * fftt 4i Aftír ftft Un « fttrft Ö HUSFREYJAN tmtKit tnttmumáummoui itmttut Eftirminnilegasta jólagjöfin Jól i öðrum löndum Jólabrauð og kökur Jóla- maturinn Jólaföridur brír með '*■ • _ • ^ m ■ a| V I li I • • d ótrúlegu jólatilboði Motorola P250 Tilboðsverð 28.980,- WttP Laugavegi 15, Ármúla 27 og Kringlunni í Reykjavík, Kefiavik, Selfossi, Egilsstöðum, Akureyri, Sauðárkróki, Isafirði og Akranesi. Síminn InternetÁrmúla 25. Þjónustuver Símans 800 7000
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.