Skírnir - 01.01.1844, Blaðsíða 133
135
Boð'sbrjef
tim minnisvarða eptir síra Tómas Sæmundsson.
Pað er hvers góðs manns aðal og einhenni, að vera
þakklátur við þá, sem gjört hafa vel til hans eða að
minnsta kosti viljað honum vel. Svo er það og ekki
síður fagurt og viðurkvæmiiegt, að fjeiög manna láti
Jiakkir í tje við þá sem til þess hafa unnið. J>ó eru
aldrei fegri þakkír goldnar, enn þegar heil J»jóð, hvort
sem hún er stór eða smá, færir af heilum hug þekkar
þakklætisfórnir yfir moldum framliðins manns.
A Islandi munu trautt finnast dæmi til, að neinn
maður liafi viljað betur fósturlandi sínu, enn sjera Tómas
Sæmundsson. Frá því hann var barnnngur að aldri,
og þar til er hann leið úr lífl í blóma aldurs síns, var
hugur hans sifeldlega á kjörum og ástandi ættjarðar
sinnar, og þegar hann var fullkominn að aldri og þroska,
varði hann til fje og fjörvi, að vinna það, sem þarfast
er landi og lýðum ; en það er, að koma oss í skilning
tnn, hversu þjóð vor sje á vegi stödd i raun og veru og
hversu mjög henni sje ábótavant — því hver getur bætt
úr þeim hlutum, er hann hyggur ekki þurfa umbótar
við? Ymsir af vinttm sjera Tótnasar, bæði hjer og á ls-
landi, hafa því haft i huga og rætt um sin á milli,
bæðí munnlega og brjeflega, hverstt það væri tilhlýðilegt
og æskilegt i alla staði, að honum yrði reist eitthvert
tninningarmark af sameiginlegum kostnaði allra vina
hans og ættjarðar sinnar.
Við þetta stóð, þegar vjer urðum þess visir, að ekkjan
var i undirbúnlngi nieð að fá legstein yfir hann. En
þar eð menn sátt, að þetta mundi svipta burt tækifær-
inu til að sætna minningu hanns á þann hátt, sem
heizt hafði verið ætlað og beinast liggur við, þá urðu
nokkrir til, að beitast fyrir málið og bera það upp víð
landa vora hjer i borginni og i grennd við hana, en
allir hafa gjört að því bezta róm, sem von var að, og
heitið fúslega tillögum. Síðan vorum vjer fimm kosnir
í nefnd, til að sjá um, að fyrirætlun þeyú verði fram-
kvæmd. Sendum vjer nú brjef þetta til Islands, svo að
öllum, er vilja, veitist kostur á, að eiga þátt í með oss,
að reisa minnisvarða eptir sjera Tótnas heitinn. En
þvi að vjer kttnnum veglyndi landsmanna, og oss uggir,
að mörgum inuni þykja ekkert framlag betra, enu litið
citt, þá veröum vjer að biðja tnenn gæta hjer að mála-