Skírnir - 01.01.1895, Qupperneq 9
Þingmál, löggjöf og stjórnarfar.
9
Thoroddsen voru veittar 1,000 kr. hv. á. til jarðfræðisrannsóknar og
jarðfræðislýsingar íslands; til Náttórufræðisfjelagsins voru veittar 500
kr. hv. á.; til skáldsins Þorsteins Erlingssonar 600 kr. hv. á.; til stór-
stúku Goodtemplara 800 kr. hv. á.; Þórarni B. Þorlákssyni voru veitt-
ar 500 kr. hv. á., til að stunda erlendis málaraíþrótt og jafn styrk-
ur þeim Einari Jónssyni og Skúla Skúlasyni til að læra þar mynda-
smíði; rektor Jóni Þorkelssyni voru veittar 300 kr. hv. á., til útgáfu
orðasafns; eand. mag. Bjarna Sæmundssyni 800 kr. hv. á., til fiskiveiða-
rannsókna; Magnúsi Þórarinssyni var veittur 1,200 kr. styrkur til að
setja á stofn í Húsavík endurbættar tóvinnuvjelar; 600 kr. voru og
veittar til að rannsaka hafnir og þrautalendingar með fram suðurströnd
landsins.
í fjárlögunum var enn fremur ákveðið, að veita mætti af viðlagasjóði
ýmsum stofnunum lán til þarflegra fyrirtækja; sýslufjelögum 40,000
kr. til að koma á fót tóvinnuvjelum, einstökum mönnum 40,000 kr.
til þilskipakaupa — mest 4,000 kr. til hvers skips; sýslunefndunum
í Vesturamtinu 60,000 kr. til gufubátskanpa; ísgeymslufjelögum
eða einstökum mönnnm 30,000 kr. til íshúsa — eigi meira en 8,000
kr. i hvern stað; Reykjavíkur-kaupstað 90,000 kr. til skipabryggju.
17. Fjáraukaklög fyrir árin 1892—1893. Veittar voru 5,974 kr. 49 au. til
viðbótar við gjöldin í fjárlögum þeirra ára.
18. Lög um aamþykkt á landsreikningnum fyrir árin 1892—1893. Tekj-
ur höfðu verið áætlaðar 1,069,800 kr. en urðu 1,211,078 kr. 27 au.,
tekjuafgangur, er ráðgjörður hafði verið 15,066 kr. 20 au. varð
216,189 kr. 05 au. 1 árslok 1893 voru eignir viðlagasjóðs 920,354
kr. 20 au., tekjueptirstöðvar landsjóðs 43,747 kr. 04 au. og peninga-
forði hans 235,948 kr. 27 au.
19. Lög um breyting á gjöldum þeim, er hvíla á jafnaðarsjöðunum. Úr
landsjóði ber framvegis að greiða kostnað við kennslu heyrnar- og
málleysingja, bólusetningakostnað, sáttamálakostnað og kostnað allan
við notkun fangelsa.
20. Lög um hagfrœðisskýrslur. Árlega skal semja og gefn út á kostnað
landsjóðs hagfræðisskýrslur um atvinnuvegi landsins, búnað, fiskiveið-
ar og verzlun, er atvinnurekendur skulu skyldir að láta í tje hlutað-
eigandi stjórnarvöldum. Landshöfðingi ákveður fyrirkomulag á skýrsl-
unum og uudírbúning þeirra.
13. desember;