Skírnir - 01.01.1898, Blaðsíða 1
1.
Fréttir frá íslandi 1898.
Lög-g-jöf og landsstjörn. Á árinu 1898 hafa engin stórtíðindi orðið
í löggjöf, því að nti var ekkert þing háð. Þð hefur stjðrnin samþikt
nokkur lög frá alþingi 1897. Þessi eru hin helstu :
1. Lög wm samgöngur og vegi. Hinn 4. febrúar 1898 samþikti konung-
ur lög um að síslunefndinni í Árnessislu veitist heimild til að verja
alt að 12000 kr. úr síslusjðði til flutningsbrauta. Hinn 26. samþikti
hann lög um sérstakt síslugjald til brúargjörða, er heimila að leggja
sérstakt gjald á síslubúa til að gera brír, þar sem nauðsin þikir til
bera, og má þó ekki vera hærra en 6 aurar af hverju lausafjárhundr-
aði.
2. Lög wm siglingar. Konungur staðfesti 6. apríl lög um bann gegn
botnvörpuveiðum. Bru þau nokkru mildari en lögin frá 1889 og
1894, því að bér eru numin burt þau atriði, er Englastjórn þiktist
við og krafðist að breitt væri. Hinn 14. mars auglísir stjórnin ákvæði,
er stjórnir Danmerkur og Portúgals hafa komið sjer saman um að
standa skuli flrst um sinn um verslunar- og siglingamál milli land-
anna, og síðar birtir hún skrá ifir þær vörur af dönskum uppruDa og
íslenskum, sem njóta jafnréttis við vörur þeirra þjóða, er bestum kjör-
um eiga að sæta í Portúgal, og eru þar taldar flestar aðalverslunar-
vörur héðan af landi. Bnn er auglístur ítarlegur samningur um versl-
un og siglingar milli konungsríkisins Danmerkur og konungsríkisins
Belgíu (2ð/io) og samingur milli Danmerkur og Rússlands um mæling-
ar skipa og samningur milli Danmerkur og Ítalíu um viðurkenningu
á skipamælingarskjölum þeirra.
3. Lög um búnaöarmál. Hinn 26. febrúar staðfesti konungur lög um
horfelli á skepnum. Br þar ákveðið, að hrepstjóri kveði til með sér
einn eða tvo menn og skoði tvisvar 4 vetri skepnur og fóðurbirðir
Sktrnir 1898.
1