Skírnir - 01.01.1905, Blaðsíða 71
WilLard Fiske.
71
Við kvonfang sitt varð Fiske stórauðugur maður og
gat þá gert það, er honum mun hafa leikið mestur hugur
á, en það var að safna svo islenzkum bókum, að hann
ætti stærst og fullkomnast íslenzkt bókasafn í heimi. Endai
mun engin sú útgáfa til vera af íslenzkri bók, er menn
hafa sögur af og föl var fyrir peninga, að eigi eignaðist
hann hana. Var hann og ekki sýtinn um verð, og bauð
svo hátt t. d. í gott eintak af Odds Oottskálkssonar Ný.ja
Testamenti fyrir fám árum, að British Museum varð að
ganga frá. Hann fékk það fyrir eitthvað á 12. hundrað
krónur.
Próf. Fiske var ekki heilsuhraustur maður in síðari
ár og 17. Sept. í haust, er leið, andaðist liann.
Hann hafði gert erfðaskrá sína áður en hann dó, og
eru þessi helztu atriði hennar:
1. ánafnar hann Cornell-háskóla alt sitt íslenzka bókasafn,
svo og allar þær bækur, er snerta ítalska skáldið Pe-
trarca; en allar aðrar bækur sinar gefur hann
Landsbókasafninu í Reykjavík, og skal senda þær
safninu því að kostnaðarlausu.
2. a. Doll. 30 000 (= kr. 112 000) ánafnar hann Cornell-
háskóla sem sérstakan sjóð. Af vöxtum þess höfuð-
stóls skal launa íslenzkum bókaverði, er hafi
umsjón með ísl. bókasafninu.
b. Doll. 8 000 (= kr. 30 000) sama háskóla sem sér-
stakan sjóð. Af vöxtunum skal auka ís-
lenzka bókasafnið.
c. Doll. 5 000 (= kr. 18 750) sama háskóla sem sér-
stakan sjóð. Skal fyrir vöxtuna gefa út ár-
lega bók um ísland og íslenzka bókasafnið.
3. Doll. 12000 (= kr. 45000) ánafnar hann íslandi,
og á að verja vöxtunum til að bæta kjör Gríms-
e y i n g a.
4. 12 beztu málverk sín ánafnar hann málverkasafn-
inu í Reykjavík, og auk þess alla forna dýrgripi