Skírnir - 01.01.1905, Blaðsíða 68
€8
Willard Fiskv;
og það endurtók hann oft í hré'uni síðan. Vöniskifta-
verzlunin, bankaleysið og firðritaleysið þóttu hQiium þá
verstu þjóðarmein vor, og benti hann á, hversu ástandið
á Hjaitlandi hefði í þessu efni fyrir ekki all-löngu verið
nær alveg eins og hjá oss, og hversu landið hefði bló ngast
stórkpstlegai síðan bætur vóru þar ráðaar á þeini meinurn.
Fiske hafði inikla trú á a.uðsuppsprettum ísla-nds og
að það ætti mikla efnalega framför í vændum, hreina
endurfæðing, og það bráðlega. Því þykir mér óliklegt, að
»B. jVL« hafi rétt eftir honum í »Þjóðólfi«, ,er hann lætur
liann segja: »Þá er England hefir eytt öllum kolum sin-
um, taka fossarnir á Islandi að vinna«. Nei, hann bjóst
við, eins og allir heilyita menn, að fossarnir á Islandi
tækju til að vinna :.ú þegar, en ekki þá fvrst, er kol vært
þrotin á Englandi eftir þúsundir eða tugaþúsundir ára.
Þá er Fiske fór til íslands vorið 1879, hafði hann
fengið langt orlof frá háskólanum, því að hann fór héðan
suður urn lönd og ætlaði að koma heim liaustið 1880.
Veturinn 1880—81 var ég í Kaupmannahöfn og fékk
ég þá bréf frá honum frá Berlín, þar sem hann segir mér
frá að hann sé trúlofaður og, býður mpr í brúðkaup sitt,
er átti að standa þar eftir fáa daga hjá sendiherra Banda-
ríkjanna, Andrew I). White; hann hafði áður verið for-
stjóri Cornell-háskóla og var aldavinur Fiske’s. Ég hafði,
því miður, ekki tök á að þiggja boðið.
En nú skal ég geta lítið eitt um ástar-ævintýr hans
*og hjúskap.
EzraCornell, amerískur milíónari, hafði stofnað Cornell-
-háskólann í íþaka 1868 og gefið nokkrar milíónir dollara
til þess, Cornell átti frændkonu (systurdóttur ?), er hét
Jennie M’Graw. Hvort hún var fósturdóttir hans eða ekkj,,
veit égiekki með vissu; en Cornell hafði arfleitt hana að
miklu ,að eignunt sínum eftir sinn dag. LTm 1869 tók Fiske
að fella ástarhug til hennar, og, varð sú ástríða brátt að
þeim eldi, er aldrei sloknaði i hjarta hans síðan til dauða-