Skírnir - 01.01.1905, Blaðsíða 33
Um liíimavistarskólahús handa hörnum.
33
vandaður og hólfaður sundur. Þeir álíta, að í þannig
löguðu skólahúsi mundi hver rúmalin hér naumast fara
fram úr 3 kr. 50 aur., af því að húsið er útskotalaust og
stoíurnar stórar, og yrði þá húsverðið 20,790 kr. Þeir
segja ennfremur, að sveitatnenn geti ef til vill komið hús-
inu upp fyrir 18 þúsund kr., af því að vinnulaun við
húsagerð eru oft talsvert lægri til sveita en hér gerist.
Heimildarmenn mínir eru vanir og reyndir menn, trésmið-
irnir Erlendur Arnason og Sigvaldi Bjarnason; þeim ber
að öllu leyti saman um verðið; Sigvaldi er vanur virð-
ingamaður — kosinn af bæjarstjórn til að virða öll ný hús
í bænum til brunabóta. Nú vilja menn spara og t. d. gera
húsið 1 alin lægra undir loít, 5 í stað 6, og er það þá
orðið öldungis óhæfilega lítið, en þó ekki nema 16—18
hundruð kr. ódýrara eða rúffl 16,000 kr.
En láti nokkrir velferð barnanna ganga fyrir öllu
öðru, gera þeir húsið 2 álnum breiðara og herbergin öll
að því skapi stærri þvers um, og verður húsið þá að miklum
mun betra, en þó ekki nema 20—22 hundruð kr. dýrara.
Vœntanlegcir Menn munu segja: Kröfur lækna um loft-
mótbárur. rými í skólum eru of harðar, óþarfar, og
þó að aðrar þjóðir haíi tekið þær til greina
og fari eftir þeim, þá er öðru máli að gegna hér á landi;
vér höfum ekki efni á því, að koma upp barnaskólum, ef
þeir eiga að vera þetta stórir og þetta dýrir. Börnin þríí-
ast vel í þeim skólum, sem nú eru til, flestir miklu þrengri
en hér er heimtað, og hvað er börnunum vandara um í
skólanum en í heimahúsum, hvers vegna þarf að vera
rýmra um þau í skólanum en í baðstofunni heima?
Móthárunum A yngri árum mundi eg hafa fallist á þessar
svarað. mótbárur eða ekki kunnað svör við þeim.
En nú hefl eg í tíu ár verið læknir í stærsta
héraði landsins; leið mín heflr legið inn á fjöldamörg heimili
í sveit og við sjó frá einum sjúkling til annars — það er
lífsstarf mitt — og mér hefir orðið æ því ljósara, sem árin
3