Skírnir - 01.01.1910, Blaðsíða 5
TJm silfurverð og vaðmálsverð.
o
IJndir þetta mál renna nú fleiri stoðir, enn áður enn
vjer greinum þær, skulum vjer flrst skíra frá því, sem
menn hingað til hafa vitað um dirleikshlutfall silfurs og
Ya&inála. Það er vanalega greint með því að segja hve
margir 6 álna aurar eða lögaurar fáist firir eyri silfrs.
Um 1280. þegar Jónsbók var samin, jafngilti 1 eirir
af brendu, o: skíru, silfri 6 lögaurum (36 álnum), og var
þá dírleikshlutfall brends silfurs og vaðmála I : 6 (Jónsb.
Kaupab. 5. k.).
Enn ef vjer förum lengra aftur í tímann, þá sjáum
vjer, að dírleikshlutfallið var enn þá hærra á ofanverðri
11. öld. alla 12. öldina og framan af 13. öldinni, eða sem
1 : 71/*, þ. e. 7!/2 lögaurar eða 45.álnir vaðmála fengust > $
flrir 1 eiri af brendu silfri1). Og ef vjer förum enn lengra
aftur í tímann, verður dírleikshlutfallið um 1000 og fram
iflr miðja 11. öld enn þá hærra, eða sem 1:8, þ. e. 8 lög-
aurar eða 48 álnir vaðmála jafngilda 1 eiri af brendu
silfri2) Um sama leiti, þ. e. a. s. um árið 1000, var dir-
leikshlutfall »lögsilfurs hins forna« við vaðmál sem 1 : 4,
þ. e.: firir 1 eiri lögsilfurs fengust 4 lögaurar eða 24 álnir
vaðmála3). Þessi dírleiksmunur á brendu silfri og lögsilfri
stafar auðvitað af því, sem líka sjest á Grágás, að lög-
1) Grág. Kb. II 193. bls. Sthb. 61. bls. ísl. P.ornbrs. I 97.-98.
og 165. bls.
2) Grág. Kb. I. 241. bls. II. 141. bls. Sthb. 88., 91. og 214. bls.
3) Þetta sjest á mjög merkilegri grein í Grág. Kb. II 192. bls.
Dr. Valtýr Guðmundsson hefur viljað vefengja þetta. Enn hið elsta
fornskjal, sem til er á íslensku, skráin um rjett íslendinga í Noregi, sem
Ólafr helgi gaf þeim, stiður frásögn Konungsbókar, og er sú skrá vottuð
og svarin first af ísleifi biskupi og helstu mönnum honum samtíða, og
síðan af Gizuri biskupi, Teiti hróður hans, Markúsi lögsögumanni o. El.
merkum möunum á oianverðri 11. öld. Þar stendur, að landaurarnir,
sem Islendingar guldu í Noregi, skildu vera „6 feldir og 6 álnir vað-
máls eða '/s mörk silfurs“. Hver algengur feldur (vararfeldr) jafngilti
2 aurum eða 12 álnum vaðtnála (Grág. Kb. II. 192). Verða þá land-
aurarnir = 12 —(— 1 == 13 aurar vaðmála, og það jafngildir */* mörk
silfurs == 4 aurum silfurs. Verður þá dírleikshlutfallið 4 : 13 = 1 : 3'/4,
og er það lægra enn i Kb.