Skírnir - 01.01.1910, Síða 82
82
Hugsjónir Edisons
konar breytingar á mótunum. 0g hver maður getur valið1
um litinn. Efnið er litað, áður en það er látið í mótið,-
og liturinn verður þannig varanlegri en nokkur málning.
Steinlím frýs á vetrum, en Edison heflr séð við þvi
líka, svo að hann getur steypt hús jafnt vetur og sumar.
Hann fer þannig að því, að hann býr út hitaleiðsluna,
sem á að ganga gegnum veggi og gólf, áður en farið er
að steypa, svo að húsið þorni nær því samstundis, þótt
vetur sé, og fljótara en þá er steypt er um sumartíma.
Kostir Edisons-húsanna,
eftir því, sem hann sjálfur skýrir frá, eru þessir:
»Þau geta ekki eyðilagst af eldi. Vátrygging verður
óþörf.«
»í heilbrigðislegu tilliti verða þau fullkomin. Hrein-
hald verður einkar-auðvelt. Eigi þarf annað en að flytja
húsgögnin úr einu herbergi í annað og láta svo vatnsbunu.
leika um herbergið, það er alt og sumt.«
»Húsin verða heit á vetrum, en svöl á sumrum. Þau
verða betri en nokkur hús, sem verkameDn hafa nú til
íbúðar — og í rauninni fullgóð hverjum manni. Og þrátt
fyrir þessa yfirburði er verðið á þeim stórum minna en
á jafnstórum húsum nú«.
»Þetta mun gjörbreyta lifskjörum fátæklinganna.
Hvernig lifa þeir núna? Hugsum okkur mann, sem hefir 9
dollara laun á viku (kr. 33,75). Fjórðungur þessafjárfer
í húsaleigu, og maðurinn lifir aumara lifi en flestar skyn-
lausar skepnur. Eg hefi séð margt af lifi fátækra verk-
manna í austurhluta New-York og víðar. Mér er kunn-
ugt um að kjör fátæklinganna bæði þar og annarsstaðar
eru nær því aumari en menn geta ímyndað sér. Margir
þessara manna elska hreinlæti; en eins og ástatt er fyrir
þeim geta þeir ekki viðhaft það. Því hvað stoðar hrein-
læti í því óþverra-kafi, sem þeir eiga við að búa? Hús-
in mín munu ráða bót á þessu. Út frá öllum stórborgum
liggja járnbrautir til sveitanna, þar sem land er ódýrt.
Fjórðung eða jafnvel helming ekru er hægt að fá fyrir