Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1913, Side 1

Skírnir - 01.04.1913, Side 1
Um jarðarfarir, bálfarir og trúna á annað líf. Eftir G. Björnsson. (Alþýðufyrirlestur i Reykjayik 15. desember 1912). Alexander died, Alexander was buried, Alexander retnrneth in to dnst; tke dnst is earth; of eartk we make loam: And why of that loam, whereto he was oonverted, might they not stop a beer-barrel ? H a m 1 e t. Ýmsir góðir menn hafa þrásinnis mælst til þess, að eg gengist fyrir líkbrenslu hér á landi. Og ýmsir beztu prestarnir hafa margbeðið mig að reyna til að ráða hót á því, sem þeir telja heimskulegt og óholt í útfararsiðum okkar. I Þorlákssögu helga segir svo, að »guð hefir til- sett lækna, at þeir skulu stundum mega at Drottins vilja með skömmum sárleikum stöðva löng óhegindi*. En eg hefi lengi hikað mér við þessu læknisverki. Þetta er afarerfitt mál, eitt allra-erfiðasta viðfangsefni holl- ustufræðinnar. Hollustufræðin segir: Lík eru hættuleg, þau eru óhrein; oft eru þau sóttmenguð, og öll rotna þau von bráðar. Þessvegna á ekki að handfjatla þau að óþörfu; það á að flytja þau tafarlaust burt af heimilinu í lokaðri trékistu, og það á að jarða þau strax, fjarri mannabú- stöðum; enhollaster þó að brenna þau, því að þá er girt fyrir alla hættu af sóttkveikjum og rotnunareitrum. En meðferðin er, eins og þið vitið, alt önnur. Líkin 7

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.