Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.04.1913, Síða 14

Skírnir - 01.04.1913, Síða 14
110 Umi jarðarfarir, bálfarir og trúna á annað líf. kistulaust; þetta var oft gert samdægurs, ella næsta dag, sjaldan dregið lengur, ef kostur var. Ef lík stóð uppi næturlangt, var vakað yfir því, við ljós á vetrum; er það siður enn í dag víða hér á landi, og þá oftast þar til er líkið er komið í kistu. Kistur voru að vísu hafðar stöku sinnura, einkum ef langt skildi flytja líkið, eða höfðingsmaður var látinn. En það var fágætt. Bezt þótti fara um þá dauðu, ef þeir fengu að sofa inni, voru lagðir til hvíldar inni í kirkjunni, undir kirkjugólfi, í kirkjuvegg eða útskoti, en aldrei varð sá siður eins rik- ur hér og i öðrum löndum. Minni háttar menn urðu að sofa frammi, í garðinum. En óbótamenn og óskírð börn fengu það þó ekki, þeim var úthýst, út í óvígða mold. Það var gamall kristinn siður, að láta einn silfur- skilding í hverja gröf, handa Lykla-Pétri. Stundum var letrað á þessa peninga: »Tributum Petri« (Péturstollur). Þessi siður hélzt víða langt fram yfir siðabót. Það er órannsakað mál hvort hann hefir tíðkast hér á landi. Annars var þetta áframhald af forngrískum sið (ferjutoll Karons). Löngun manna til að »hafa með sér í gröfina« þá hluti, sem þeim hefir þótt vænst um, hefir haldist um all- ar aldir og er ekki útkulnuð enn í dag. í kristinna laga þætti í Grágás, elzta íslenzkum kirkju- rétti (1123), segir svo: »Lík hvert skal til kirkju færa, þat er at kirkju á lægt, svá sem menn verða fyrst búnir til«. »Lík skal eigi bera í kirkju bert eða blóðugt«. »Lík skal eigi grafa áðr kólnat er«. Eftir kristnirétti Árna biskups (1275) skyldi lík jarð- að innan 5 sólarhringa eftir andlátið, en þó ekki fyr en kólnað væri. Væri ekki unt að grafa líkið að kirkju á 5 nátta fresti, þá skyldi staursetja það. Þessi lofsverði áhugi kaþólskra raanna, að koma lík- unum sem fyrst í jörðina, er fyrir löngu fallinn í dá; því olli siðabótin; þá varð allmikil breyting á trúnni, og af því hlutust miklar breytingar á útfararsiðunum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.