Skírnir - 01.04.1913, Qupperneq 19
Um jarðarfarir, bálfarir og trúna á annað lif. llt>
öldinni, en hélzt miklu lengur. Hér á landi var siðasti
brennudómurinn kveðinn upp 1690, en galdramenn voru
húðstrýktir hér miklu lengur.
I þjóðsögunum okkar eigum við nú lifandi mynd af
trú þjóðarinnar, eins og hún var eftir siðabótina og fram
á 19. öld. Og aldrei hefir tvílífistrúin verið greinilegri.
Eg skal nú í fám orðum lýsa trúnni á annað líf, eins
og hún varð hér á landi eftir siðabótina. En þjóðsögurn-
ar eru trúarjátning þjóðarinnar: A dauðastundinni leið
sál þess lúterska manns upp af vitum hans, eins og móðu-
hnoðri, sjaldnar eins og ljós; skjárinn var tekinn úr gömlu
íslenzku sveitabaðstofunni, svo að sálin kæmist út, og lát-
inn í öfugur aftur, svo að hún stælist ekki aftur inn. Nú
fór sálin hans Jóns til himnaríkis — eða helvítis, því að
hreinsunareldurinn var útbrunninn. En hinn Jóninn var
eftir. Honum voru nú veittar nábjargir, þveginn vand-
lega, ef til vill í fyrsta sinni síðan hann kom úr laugar-
troginu, búið um hann í kistu í hreinni skyrtu, með kodda
undir höfði og línvoðum, stundum í skrautklæðum; hann
átti að vera almennilega til fara á dómsdegi. Svo var
hann látinn í þessu síðasta hvílurúmi sínu niður í gröfina
og beðinn að sofa í friði. En það fekst nú ekki af þeim
eftir siðabótina. Þeir gengu aftur, hver um annan þveran,
einkum vondu mennirnir. Sumir fóru strax að rumskast
meðan þeir lágu á börunum, eins og einn galdramaður,
sem stúlka vakti yfir, og var að sauma utan um hann.
»Þú átt eftir að bíta úr nálinni«, sagði hann og reigði sig
upp. »Eg ætlaði ekki að bíta, eg ætlaði að slíta, bölvað-
ur«, sagði stúlkan, braut nálina og rak brotin í iljar hon-
um; það dugði. Margir þurftu draugarnir að éta, »en
dauðir þurfa ekki hníf, þeir standa á og rífa«, sögðu þeir.
Sumum grafarbúunum þótti líka gott í staupinu. Einn til-
vonandi brúðguma dreymdi dauðan vin sinn; hann kvað:
Heltu út úr einum kút
ofan i gröf mér búna;
beinin mín i brennivin
bráðlega langar núna.
Stundum áttu þeir í ástabralli; öllum er kunn sagan um