Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1913, Page 24

Skírnir - 01.04.1913, Page 24
120 Um jarðarfarir, bálfarir og tróna á annað líf. sínu, þar sem þeim þykir fegurst umhorfs, rétt eins og í heiðnum sið, að dæmi Tungu-Odds. Nú fer eg að gera enda á máli mínu. Eg er ekki að finna að guðs trúnni — það sé fjarri mér. En er það ekki raunalegt, að menn skuli enn vera að syngja um þá himnesku Jerú- salem, að þetta skuli vera uppáhaldssöngur í dómkirkj- unni i Reykjavík: „Þar sé eg sólu fegri á súlum standa höll, með dýrð svo dásamlegri, hún drifin gulli’ er öll“. Er það ekki raunalegt, segi eg, að menn skuli enn ímynda sér, að g u ð hokri í gullidrifnum súlnakumbalda einhvers- staðar úti í ómælisgeimnum, að menn skuli ekki enn, 3 öldum eftir bálför Giordano Bruno, geta aðhyist þá há- leitu og fögru hugsun, að guð sé »alt og i öllu«. Og þið megið ekki halda, að eg sé að amast við trúnni á tilveru sálarinnar eftir dauðann. Andi inannsins, sálin, verður ekki mældur með neinum mælikvarða likamans; en heimskur er sá maður, sem heldur að sálarkraftarnir verði að engu eftir dauðann, því öll okkar þekking á heiminum segir ótvírætt, að enginn hlutur, hvorki efni né orka, verður nokkurn tíma að engu. En þ a ð verður hver og einn að gera upp við sjálfan sig, hverju hann.vill trúa um tilveru sálarkraftanna eftir dauðann. Öm líkamann er öðru máli að gegna. Hann verður heldur ekki að engu, það er satt. En verum ekki þau börn, að halda, að h a n n eigi nokkra fraintíð fyrir hönd- um, aðra en þá, að grotna sundur og verða að moldu; og reyndar eru nú nærri tveir þiiðjungar líkamans bara vatn og verða ekki að moldu, og þið ættuð þó að geta skilið, að þetta meginefni liksins, vatnið, muni verða kom- ið viða á dreif, um það er lýkur öllu lífi á jörðu. Hætt- um því í öllum bænum þessu barnalega dekri við sálar-

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.