Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1913, Page 25

Skírnir - 01.04.1913, Page 25
Um jarðarfarir, bálfarir og trúna 4 annað lif. 121 lausa, hálfúldna líkamana. Hættum þeirri fádæma heimsku að kalla þá m e n n og segja, að þeir s o f i — hálfrotn- uð líkin. Vitið fyrir víst, að hversu vand- lega sem þið búið um búkana, þá verða þeir grotnaðir sundur eftir eitt eilífðar- innar augnablik, ögn fyrir ögn, og safn- ast aldrei saman, allar þær sömu agnir, í sams konar lifandi líkama. Heiðrið látinn ástvin ykkar, en heiðrið »hann sjálf- a n «, heiðrið a n d a hans, sem horfinn er, haldið á lofti fegurstu hugsjónum hans og minningunni um afrek hans og mannkosti. Gerið erfi eftir hann, ef ykkur sýnist, það er forn og fagur siður, og látið prestinn ykkar þ a r hughreysta ykkur, ef vill, og glæða og fegra trú ykkar á guð og eilíft líf. En hættið í guðs bænum þessu dekri við sálarlaust líkið, hálfúldnað og rotið; verið ekki þau börn, að kalla þ a ð ástvin og fara með það eins og sofandi manneskju. Gerum okkur ljóst, að útfararsiðir okkar, alt þetta dekur við 1 í k i n er helber heimska og hégómi. Gerum okkur ljóst, að það erekki til nema ein sómasamleg, heiðarleg og vitiborin meðferð á andvana líkamsleifum látins ástvinar, og hún er sú að verja þær, verja líkið viðbjóði ýldu og rotnunar með því að brenna það sem allra fljótast eftir andlátið. Hvað eigum við þá að gera hér í höfuðstaðnum ? Við eigum að reisa veglegt líkhús, þar sem kumbald- inn okkar stendur með skítuga kaðaldordingulinn framan á sér niður úr klukkunni, og þar eigum við að hafa lík- ofn. Við eigum að hætta því að handfjatla likin, láta lækni skoða þau og skrifa dánarvottorð, leggja þau síðan s t r a x í skra utlausa kistu, dekurslaust, flytja þau óðar í nýja líkhúsið, húskveðjulaust, síðan b r e n n a þau þar, líkræðulaust, og f ela e i n k i s - verða öskuna i jörðinni, »hvar hún áður var«, við -

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.