Skírnir - 01.04.1913, Side 34
130 Ýms atriði úr lifinu í Reykjavík fyrir 40 árum.
húsbóndi minn afhenti honum 20 kr. pening. Maðurinn
starði fyrst alveg forviða á peninginn, sem átti að gilda
svo stóra upphæð. Því næst horfði hann á húsbónda
minn, til þess að vita, hvort honum væri blá alvara
með að ota þessum smápening að sér, og þegar hann sá
að svo var, neitaði hann algeriega að taka við honum.
Þá voru engir ofnar i búðum, og var því oft kalt,
einkum fyrri part dagsins, því þá var aldrei eins mann-
margt í búðinni, eins og þegar á daginn leið. Fyrsti vet-
urinn minn í búð 1873—74 var mjög kaldur, og var mér
þá oft sárkalt, og hendur bláar og bólgnar. Það kemur
hrollur í mig æfinlega, þegar eg hugsa til þess vetrar.
Hræddur er eg um, að nútíðarbúðarfólki þætti hart að
búa við það, sem búðarþjónum þá var boðið.
Eg mintist á lestirnar áðan. Já, þá var nú fjör og
líf í bænum. Omögulegt að þverfóta fyrir þröng í búð-
unum, bæði fyrir innan borðið og utan, illmögulegt að
komast áfram í Hafnarstræti fyrir hestaþvögu, og krökt
af tjöldum á Austurvelli. A kvöldin var þar oft gleði og
háreysti mikil. Við strákarnir héldum okkur helzt þar,
bæði til að horfa á það, sem kynni til að bera, og svo
var það líka tilgangurinn hjá mörgum að sníkja matar-
bita, sem sveitamenn voru ósparir á. Þar á Austurvelli
hef eg oft borðað »kjúku< með nýju smjöri ofan á, hjá
einum frænda mínum að austan og þótti mér það dýrðleg
fæða. Vegna þess að Austurvöllur rúmaði ekki öll tjöld
lestamanna, var það mjög alment að tjalda í Fossvogi,
enda voru þeir þar nær hestum sínum. Reykjavíkurdrengir
gættu hestanna fyrir þá, og fengu ákveðna borgun fyrir
hvern hest um sólarhringinn, og höfðu margir drjúgan
skilding upp úr því. Stundum var líka tjaldað á Lækjar-
torgi, en það var fremur sjaldgæft.
Austurvöllur var þá dældóttur, með smáhólum á milli.
Hann var eitthvað lagaður þjóðhátíðarsumarið, en aðal-
lega þó sumarið eftir, 1875, því þá um haustið var stytta
Thorvaldsens sett þar. Til þess að fylla hann upp, voru
tekDÍr tveir gríðarstórir öskuhólar, annar við útnorður-