Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1913, Side 37

Skírnir - 01.04.1913, Side 37
Ýms atriði úr lifinu i Reykjavík fyrir 40 árum. 133 kassi í trogformi negldur utan á gluggana til þess að eigi væri hægt að horfa ofan á götuna. Aldrei var drukk- inn maður fiuttur svo í svartholið, að eigi fylgdi hópur af fólki, mestmegnis strákum á eftir, og stóðu þeir lengi á götunni, eftir að búið var að »setja« fylliraftinn »inn«, því venjulega heyrðist fljótt til hans niður á götuna, fyrst blót og formælingar yfir réttvísinni og hennar þjónum, en síðan tók hann að kveða, eða syngja sálma, alt eftir því, hvernig á honum lá, og hvað fullur hann var. Ekki var þó betur um svartholið búið en svo, að þegar Steenberg, fangavörðurinn, sem var »afdankaður skerskant« frá Sauct Kreus, eins og hann sjálfur sagði, og leikfimiskennari í latínu- skóianum, kom einn morgun inn til eins »gestsins« í svart- holinu, sem hafði látið óvanalega illa kveldið áður og fram eftir nóttunni, þá var hann allur á burt, hafði brotið gluggann og trogið, og rent sér niður, og var kominn langt í burtu, þegar átti að flytja hann á »kantorinn« til þess þar að láta hann bæta fyrir óspektirnar kvöidið áður. Þá voru ýmsir skrítnir náungar uppi, sem Reykjavik- urdrengir hentu mikið gaman að, þegar þeir komu í bæinn, svo sem Árni »biblía« faðir Þórðar »malakofs«, Þorgerður »postilla«, Jón gamli í bakaríinu, alment kallaður »kis kis«; þegar hann sýndi sig á götunum, mjálmuðu allir á eftir honum, og tók hann það mjög óstint upp; ekki veit eg, hvers vegna hann fekk þetta nafn. Ofeigur hét einn, hann át lýs og brenda korktappa. Þá var Sæfinnur gamli uppi og þá á bezta aldri. Einn mánudag í föstuinngang gekk Sæfinnur prúðbúinn um göturnar, eins og drengir þeir, sem allajafna »marcheruðu« þann dag; hann hafði heljarmikinn trékorða reiddan um öxl og var hinn vígmannlegasti, hann sneri baki að hverjum manni sem hann mætti á götu, og gekk aftur á bak inn í húsin. Þetta gerði hann af því, að hann haf'ði heljarmikla auglýsingu á bakinu, sem á stóð letrað með stórum stöfum: »Eg geri grín fyrir fjóra, en enginn má gefa mér í staupinu*. Það er víst, að margan fírskildinginn fekk hann þann dag, en hvort hann hefir alveg sloppið við staupin læt eg ósagt. — Ymsa fleiri ná-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.