Skírnir - 01.04.1913, Blaðsíða 56
152
Nútíina hugmyndir um harnseðlið.
um að kenna óþægð eða viljaleysi, heldur þröngum kosti
heima fyrir, ónógu fæði, lélegum húsakynnum, maga Sem
meltir illa, þunnu, efnasnauðu blóði, taugakerfi, sem er í
ólagi, andþrengslum og fleirá af því tægi. Það sem þá
þarf við, er betri aðbúnaður og læknishjálp, áður en saún-'
gjarnt er að búast við eðlilegum námsframförum.
Allir vita, að þegar Svo míkil brögð éru að veiklun
líkamans, hefir það veruleg áhrif á sálarkraftana. öðru
máli er að gegna um það, hvort hreysti sálar og líkáma
fer nákvæmlega saman. Dagleg reynala ber vitni um,
að afburða orkumenn eru mjög sjaldan að sama skaþi
vitrir, og hins vegar, að margir andans snillingar hafa
verið veikbygðir líkamlega. Þetta hefir komið mörgum
fræðimönnum til að ímynda sér að um ekkert þvílikt
samræmi væri að ræða. En auðvitað varð ekkert um
málið sagt á hvorugan veginn, nema með því að rann-
saka mikinn fjölda einstaklinga og dæma eftir meirihluta.
Hér er komið að atriði, sem þarfnast sérstakrar út-
skýringar. öll vísindi leitast við að finna 1 ö g, föst lög,
hvert á sínu sviði. Séu þessi lög óbreytanleg og án und-
antekninga, má, er menn þekkja þau, spá hvers konar
mynd þetta eða hitt náttúruafl muni taka á þeim eða
hinum stað. A þann hátt vita farmenn nú nákvæmlega
um flóð, fjöru, strauma o. þ. 1. í fjörðum og sundum, og
geta hagað sér eftir því, beðið meðan straumurinn er á
móti þeim, látið hann bera sig, er hann verður þeim hag-
stæður. Þetta er að eins eitt dæmi um óbreytanleg, fyrir-
sjáanleg lög, en þau mætti telja í tugum úr veldi hinnar
dauðu náttúru. I sálarlegum og félagslegum efnum er varla
um nein slík lög að gera, sem undantekningarlaus séu. Þar
verður að láta sér nægja að dæma eftir meiri
hluta, þó margar verði undantekningar. A þann hátt
má segja t. d. að Frakkar séu smekkvísir, Þjóðverjar
lærdómsmenn og Islendingar stjórnmálahneigðir. Raunar
eru þetta sannindi yfirleitt, en hvergi nærri undantekn-
ingailaus. Þau ná raunar ekki lengra en það, að meiri
hluti inanna i þessum löndum hafi þá eiginleika: sem