Skírnir - 01.04.1913, Síða 63
Nútima hugmyndir um barnseðlið.
fyrir augun ber, og gleymir ekki ósjaldan upphaflega er-
indinu í brimsjó nýjunganna.
Skilningur barnsins er grunnfær. Það skynjar að
vísu ytra útlit hlutanna, stærð, lögun, fjarlægð, lit o. þ. 1.
engu miður en fullorðnir. En það sér ekki inn úr yfir-
b o r ð i n u, ekki heildarsamband hlutanna, greinir ekki
aðalatriði frá aukaatriðum. Þegar börn segja frá ein-
hverjum atburði, sem þau þó hafa séð, kemur þessi grunn-
færni glögglega fram. Alt verður jafnstórt, jafnmerkilegt.
Og ionra sambandið er þeim venjulega hulið. Að sama
gkapi ber málkunnátta barna merki um þennan skort á
innra skilningi. Langmest nota þau sagnir, nafnorð tals-
vert minna, þá lýsingarorð, en næstum aldrei útskýrandi
samtengingar eins og af því að, þess vegna, ef, o.
s. frv., af því að þau orð eru bandliðir, sem tengja sam-
an hinar dýpri hugmyndir, hugmyndir þroskaðra manna.
A sama hátt er h u g v i t barnsins takmarkað. Menn
spyrja það um daglega hluti, sem það þekkir vel, til hvers
þeir séu. Hnífur — til að skera með Hestur — til að
ríða á Borð — til að eta við. Mamma — til að sjóða
matinn. Alt af einhver e i n útskýring, sú sem liggur
hendi næst. Sex ára barni er sýnd mynd af förumanns-
fjölskyldu, sem hímir hálfdauð úr sulti og kulda undir
tré. »Þetta er maður — — þetta er kona, þarna er tré.«
Átta ára barn leitast við að útskýra nákvæmar: »maðurinn
situr á bekk; kona er hjá honum«, segir það. Til að sjá
gegnum myndina, skilja hana, sjá að þar eru sýudir alls-
lausir, sárþjáðir aumingjar, þarf hyggju fullorðins manns.
Lýsing barnsins verður svo að segja í lausu lofti, almenn,
ónákvæm, getur átt við alt og ekki neitt. Fyrst þegar
maðurinn vex í skilningi sér hann og greinir margbreytni
hlutanna og ræður af hugviti sínu um samband þeirra.
Trúgirni barna er viðbrugðið; þau finna óglögt mun
á réttu og röngu, í orðum og verkum. Af því spretta
mest þau ósannindi, sem börnum eru svo töm. I hugum
þeirra renna saman veruleikur og ímyndanir, óskir og
draumar. Þau hafa ófullkomna dómgreind, taka