Skírnir - 01.04.1913, Síða 64
160 Nútíma hugmyndir um barnseðlið.
hiklaust á móti fjarstæðustu staðhæíingum og útskýring-
um, sem spretta í huga þeirra, eða koma utan að frá
öðrum mönnura.
Barnið er þannig sálarlega svo ólíkt fullorðnum manni,
að sinni aðferðinni verður að beita til að skilja hvort stig-
ið, æsku og fullorðinsár. A. Binet vildi íinna þ r o s k a -
s t i g a æskuáranna, hvernig háttað væri viti og skiln-
ingi barna. Hann bjó til mikinn fjölda spurninga, sem
honum þótti liklegt að börn gætu svarað, sumar léttar,
aðrar þyngri. Síðan reyndi hann þetta kerfi við mörg
þúsund börn í París, og fékk aðstoðarmenn sína til að
gera sams konar tilraunir víðsvegar i landinu. Eftir nokk-
ur ár var fengin reynsla fyrir, hve þungum spurningum
meðalbörn gátu svarað; spurningakerfið varð að sama
skapi erfiðara, sem barnið var eldra og búast mátti við
meiri þroska. Það reyndi bæði á meðfædda greind og
þekkingu, reyndi á vaknandi festu, hugvit og dómgreind.
Nokkur dæmi nægja til að sýna aðferðina:
3 ára. Gletur bent á munn sér, nefið og augun.
Endurtekið tvær tölur. Talið upp fólkið á mynd, sem
sýnd er. Sagt föðurnafn sitt. Endurtekið 6 atkvæði.
4 á r a. Þekkir og getur nefnt hníf, lykil og fimm-
eyring. Getur borið saman tvær línur og sagt, hver er
lengri. Telur þrjá eirskildinga. Þekkir og nefnir rétt
fjórar algengustu peningategundir.
5 á r a. Ber saman tvo stokka og segir hvor er
þyngri. Teiknar ferhyrning eftir mynd. Endurtekur tiu
atkvæðasetning. Telur fjóra eirskildinga.
6 á r a. Þekkir og nefnir rétt hægri hönd og vinstra
eyra. Endurtekur seytján atkvæða setningu. Ber saman
fegurð tveggja hluta. Segir til hvers menn nota nokkra
algengustu húsmuni. Fer þrjár smá sendiferðir. Segir
aldur sinn.
7 á r a. Sýnir hvað vantar í hálfdregnar flatarmyndir.
Segir hve inargir eru fingur á báðum höndum. Skrifar
rétt setningu eftir forskrift. Teiknar tígul eftir fyrirmynd.
Endurtekur fimm tölur.