Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1913, Page 71

Skírnir - 01.04.1913, Page 71
Jan Mayen. 167 •var farið að hl/na í veðri. Dagbókin endar 30 apríl. Þegar leið á veturinn sýktust þeir fólagar af skyrbjúg, enda vantaði þá alt nýmeti og höfðu ekki aunað en gamlan mat sór til viðurværis. Þegar dagbókin endar, var einn þeirra dauður, en allir hinir fárveikir. Jan Mayen er lýst í bók, sem út kom í Amsterdam árið 16621). Þar er uppdráttur af henni, er síðan var lengi fram eftir lagður til grundvallar fyrir þeim uppdráttum, er síðar voru gerðir. G. G. Zorgdrayer lýsir eynni í bók, er kom út í Leipzig 1723. Virðist sú lýsing vera tekin upp úr fyrnefndri bók. Reyndar kom hann sjálfur til eyjarinnar árið 1699, 4. ágúst. Vóru þar þá uppi á ströndinni 20 bátar, sem hollenzkir hvalveiðamenn áttu og höfðu geymda þar yfir veturinn. Mikið var þar og af tunnum og köðl- um, en alt var það meira og minna skemt. Þar sáust hlóðirnar undan bræðslupottunum, og enn voru þar skrifli af geymsluskúrum. Enskur maður, W. Scoresby að nafni, kom með hvalveiðamönn- um til eyjarinnar sumarið 1817. Hann kannaði hana og gerði þar ýmsar athuganir. Lýsir hann eynni all-ýtarlega í An Account of the Arctic Regions, sem kom út í Edinborg 1820. Dufferin lávarður kom þar 1856 (í sömu ferðinni sem hann kom hór við land). Hann náði til eyjarinnar gegnum ís og þoku og komst þar á land, en varð jafnskjótt að hverfa aftur út á skip sitt, sökum ísreks, sem hann óttaðist að mundi hamla því að hann næði til skipsins. Lítið er því að græða á frásögn hans um Jan Mayen2). Arið 1861 kom dr. C. Vogt og félagar hans til eyjarinnar. Þeir dvöldu þar frá 20.—24. ágúst, gengu nokkrurn sinnum á land og könnuðu hana. Hann lýsir henni í ferðasögu sinni3) og er þar uppdráttur af henni. A heimleiðinni kom hann við i Reykjavík og ferðaðist þaðan til Þingvalla og Geysis. »Den Norske Nordhavs Ekspedition«, er var við rannsóknir í Norðuríshafinu 1876—78 undir forustu dr. H. Mo'nn’s prófessors í Kristjaníu. kom til Jan Mayen 28. júlí og fór þaðan 3. ágúst. ‘) De Nieuwe Groote Zee-spiegel, inhoudeude Eene Beschryvinghe der Zee-Kusten van de oosterche en noordsche Schip-vaert. 2) Hann segir frá þessari ferð í Letters from High Latitudes heing some account of a voyage 1856 — — to lceland, Jan Mayen & Spitz- hergen. By Lord Dufferin. Fourth Edition. London 1858. s) Nord-Fahrt entlaug der Norwegischen Kiiste nach dem Nordkap, den Inseln Jan Mayen und Island . . . Erzáhlt von Carl Vogt. Frank- furt am Main 1863.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.