Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1914, Page 43

Skírnir - 01.01.1914, Page 43
Hvað er dauðinn ? 43 loks æðri heimum og hætti þá að endurfæðast, og geti úr því eigi komist í neitt samband við okkur framar. En þó höf. bendi á þennan möguleika, er hann sem sagt ekki trúaður á sálnaflakk eða yfir höfuð á framhald lífs eftir dauðann með sömu einstaklingsvitund og vér höfum hér á jarðríki. Þá bendir höf. og á hve einkennilegt það er, að önd- ungar, sem tíðum þykjast sannfærðir um að hafa náð tali af framliðnum, aldrei fá neinar óvæntar fregnir um ástand þeirra í öðru lífi. Venjulegast lítur svo út, sem öll við- leitni hinna látnu, andanna, stefni að því einu markmiði að ættfæra sjálfa sig og minna á ótal smáatriði úr jarð- lífi sinu. Höf. skýrir nákvæmlega frá öllum helztu rannsóknum um andatrúna, og dregur af þeim þær ályktanir, að kalla megi sannað, að svo miklu leyti sem unt sé að færa sönn- ur á nokkurn atburð, að vera, andleg eða líkamleg, eins konar svípur eða endurskin þess er deyr, geti dvalist hér eftir, og haldið sér um hríð, geti aðskilið sig frá líkaman- um og lifað þótt hann deyi, geti farið óravegu á einu vet- fangi, geti komið lifandi mönnum fyrir sjónir og jafnvel haft tal af þeim. Þó eru þessir svipir mjög skammæir. Ekki sjást þeir nema rétt í andlátsaugnablikinu eða rétt þar á eftir, og ekki Tirðast þeir hafa neina hugmynd um andlegt líf, eða um neins konar líf, annað en líkamslíf það, er þeir hafa nýslitið sig frá. Ekki virðast þeir vita neitt, er þeir ekki vissu i lifanda lifi, og aldrei liafa þeir sagt neinar nýung- ar úr heiminum handan við gröf og dauða. Og brátt verða þeir að reyk og hverfa að fullu og öllu. Eru svipir þessir fyrsti bjarmi annars lífs, eða síðasti geisli jarðlífsins? Er þetta síðasti möguleiki hinna látnu til að gera oss vart við sig? Halda þeir samt sem áður áfram að lifa í kringum okkur, án þess þeim sé framar unt, þó fengir vildu, að gera okkur vart við sig, af því okkur vanti skynfæri til að skynja þá með, á sama hátt og þann, er blindur er fæddur, vantar skynfæri til að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.