Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1914, Page 82

Skírnir - 01.01.1914, Page 82
82 Utsýn. hangandi heild, óð eða sögu og fá oss í hendur. Og nú sjáum vér og skiljum þetta alt út í yztu æsar á auga- bragði og oss finst jafnvel að vér hafa skilið það og séð fyrir lifandi löngu. En svo er þó ekki. Eftirtekt skáld- anna er skarpari, skilningur þeirra dýpri og tök þeirra á hugsununum fastari en vor. Þess vegna sjáum vér alt gleggra í sjónargleri þeirra en í veruleikanum. En skáldin hafa meira fram yfir oss en þetta. Þau hafa skapandi kraft, sem vér eigum ekki til. Þau sjá ekki að eins heiminn eins og hann er, betur en vér, held- ur líka eins og hann á að vera og gæti orðið. Vér köllum það sem fyrir augu skáldanna ber hug- sjónir, og þegar þau greipa þær í orð bundins eða óbund- ins máls og bregða þeim upp fyrir augu vor, köllum vér þær hugmyndir. Hér er eg komínn að því, sem eg vildi í stuttu máli um skáldin segja, en það er þetta: Hugsjónir skáldanna eru töfrasproti. Þær vekja til ljósrar meðvitundar þau öfl, er i sálum vorum leynast, knýja oss til fylgdar sér eða andróðurs, eftir því hvernig oss gezt að þeim. Gera oss það, sem vér um fram alt þurfum að verða, hugsandi menn. Ef vér höfum notið þess útsýnis úr hliðskjálf bók- menta vorra, að oss hafi skilist gildi þeirra fjársjóða, er feðurnir fengu oss til varðveizlu; ef vér höfum heillast af framtíðardraumum skálda vorra að fornu og nýju, þá er aldrei svo lítið í oss spunnið, að vér getum orðið ávaxta- laus fúasprek á þjóðlífsmeiðnum. Líf vort fær þá ekki orðið neitt ráðlaust fálm. Vér eigum þá sjálf draum, sem vér berjumst fyrir að rætist. Draumaland, sem vér kepp- um eftir að ná. Það land verður samruni úr sýn vin- anna, sem eg mintist á. En — oss má um fram alt ekki fara eins og þeim, ekki greina á um útlit þess, svo að missætti verði. Fyrir oss öllum verður það að birtast, vafið laufþöktum skógi, prýtt ökrum og engjum undir bergkrýndum, gnæfandi tindum, með útsýni miklu og fríðu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.