Skírnir - 01.01.1914, Side 105
ísland 1913.
10í>
urðu mjög góðar hvervetna um land og eins meðal íslendinga
vestan hafs, svo að í árslokin höfðu menn skrifað sig fyrir yfir
400 þús. kr. hlutatöku < fyrirtækinu, beggja megin hafs, 320 þús.
kr. hór heima og um 100 þús. kr. vestan hafs. Alþing heimilaði
400 þús. kr. fjárupphæð úr landsjóði til hlutakaupa 1 félaginu með
því skilyrði, að það tæki að sér strandferðirnar, með tveimur eða
fleiri skipum, svo fljótt sem því yrði við komið, og eigi síðar en í
apríl 1916. Er það ætlun manua, að félagið gangi að þeim skil-
yrðum, en ekkert fullráðið um það enn. En leitað hefir verið til-
boða erlendis í byggingu þeirra tveggja skipa, sem eiga að verða
í ferðum milli landa.
í »Skírnis«-fróttum 1912 er sagt frá því, að Thorefélagið fekk
eftirgjöf á 10 ára samningi um strandferðirnar, og tók Samein.
gufuskipafólagið þær að sér 1913 með samningi til aðeins eins árs.
En nú hefir verið samið við Bergensfólagið norska, sem á undan-
förnum árum hefir haft hór skip í förum eftir fastri áætlun, um-
aukning á ferðum þess og fjölgun viðkomustaða kringum land frá
ársbyrjun 1914. Einnig hefir verið samið um strandferðir
næstu tvö árin við félag í Khöfn, sem Thor E. Tulinius er fyrir,
og á það að hafa eitt skip í þeim ferðum, sem ýmist fer frá
Reykjav/k austur eða vestur um land. Thorefólagiuu hefir verið
haldið áfram og hefir það á þessu ári haft skip í förum hingað til
lands, og eins mun verða framvegis. Samein. gufuskipafólagið
heldur uppi sömu ferðum og áður milli landa, samkvæmt 10 ára
samningnum frá 1909.
Fyrir utan eimskipamálið hefir annað stórmál verið mikið rætt
á þessu ári, en það er járnbrautarlagning frá Reykjavík austur í
Raugárvallasýslu. Mælingar á veginum höfðu farið fram og lands-
verkfræðingurinn gefið stjórninni skýrslu um þær og lagt fram
áætlanir um, hvað verkið mundi kosta og hvers árangurs mætti
vænta af fyrirtækinu, og stjórnin hafði fyrir þing útvegað tilboð
frá peningamönnum erlendis um fjárframlag til þess gegn trygg-
ingum, er landið skyldi setja. Málið kom svo þannig fyrir þingið,
að fólag innlendra manna sótti um einkaleyfi til járnbrautarreksturs
á þessu svæði um tiltekið árabil og um landssjóðsábyrgð á vænt-
anlegu lántökufó. En málið varð eigi útrætt á þiuginu og bíður
því siðari tíma.
Flaggmálið hefir einnig verið mikið frammi á þessu ári, og
hefir því lokið svo, að íslendingar hafa nú fengið konungsloforð
um sérstakt flagg til notkunar á landi og í landhelgi. Haustið*