Skírnir - 01.01.1914, Side 106
106
ísland 1913.
1906 kom hér fyrst upp veruleg breyting í þá átt, að ísland
skyldi fá sórstakt flagg, og í sambandslagafrumvarpi millilanda-
nefndarinnar frá 1908 var gert ráð fyrir, að svo yrði. Þó skyldi
verzlunarflaggið eftir því vera sameiginlegt þann 25 ára tíma, sem
8amningurinn átti að ná yfir, en að horium liðnum átti Island að
geta tekið upp sérstakt verzlunarffagg, Haustið 1906 hafði verið
samþykt í stúdentafélaginu i Reykjavík, að gerðin á hinu væntan-
lega íslenzka flaggi skyldi vera hvítur kross í bláum feldi. Tóku
ymsir þá þetta. flagg upp og fóru að nota það, einkum þó ung-
mennafélögin. En eftir að sambandslagafrumvarpinu var hafnað,
var þó litið um flaggið rætt, þangað til í ár. Þá bar svo við 12.
júní, að foringi danska varðskipsins, »Fálkans«, lét taka á Reykja-
víkurhöfn kappróðrabát lítinn, sem hafði þetta flagg á afturstafni,
sagði eigandanum, sem í bátnum var, að flagg þetta væri ólöglegt
og það væri skylda sín, að taka það af honum, og sendi síðan
flaggið til bæjarfógeta. Út af þessu varð töluverð hreyfing í
Reykjavík til andmæla, og varð það svo til þess, að borið var
fram á þingi frumvarp um lögleiðing íslenzks heimaflaggs. Frum-
varpið var þó ekki samþykt, en ráðherra falið með þingsályktun-
artillögu frá efri deild, að flytja málið fyrir konunginum og vinna
að framgangi þess. Afleiðingin varð sú, að gefinn var út konungs-
úrskurður 22. nóv. um það, í.ð ísland skyldi fá sérstakan fána, er
nota nffietti hvervetna á íslandi og sigla uudir honum í landhelgi
íslands, en um gerð fánans skyldi ákveðið í nýjum konungsúrkurði,
þegar ráðherra íslands hefði haft tök á að kynna sér óskir manna
á Islandi um það atriði. Um bláa flaggið með hvíta krossinum,
sem ýmsir höfðu notað hér áður ólöggilt, var það upplýst, að það
væii eign Grikkja, svo að ekki gæti komið til mála að löggilda það
hér á landi. Hefir svo ráðherra nú í árslokin skipað 5 manna
nefnd til þess að koma fram með tillögur um gerð flaggsins, og
eiga þær síðan að leggjast fyrir alþingi næsta sumar.
Símar voru lagðir á þessu ári frá Reykjavík til Þingvalla, út
Snæfellsnes til Olafsvíkur, út í Hrísey í Eyjafirði, frá stöðinni í
Fagraskógi, og svo byrjað á línu um Hellisheiði, milli Fljótsdals-
hóraðs og Vopnafjarðar, og á aðallínan að flytjast þangað frá
Smjörvatnsheiði. Einnig undirbúin símalagning austur til Víkur í
Mýrdal. Samkvæmt ákvörðun alþingis hefir stjórnin í árslokin
tekið 500 þús. kr. lán hjá »Stóra norræna ritsímafélaginu« til síma-
lagninga, og til þess að byggja loftskeytastóð í nánd við Reykja-