Skírnir - 01.01.1914, Page 111
ísland 1913.
111
Bjarnason prófessor »StjórnlagafræðiC Fræðafélagið í Khöfn hefir
gefið út »Bróf Páls Melsteðs til Jóns Sigurðssonar« og byrjað á
jarðabók Páls Vídalíns og Árna Magnússonar. Sögufélagið hefir,
auk framhaldandi rita, »Alþingisbóka Islands« og »Biskupasagna«
Jóns Halldórssonar, byrjað á »Æfisögu Jóns prófasts Steingrímsson-
ar«. — Á blaðamenskunni hefir orðið sú breyting, að nú koma
tvö dagblöð út í Reykjavík. Hefir annað þeirra, »Vísir«, komið
út f 3 ár, en hitt, »Morgunblaðið«, byrjaði í haust.
Um kirkjumál hafa verið nokkrar deilur milli nýguðfræðing-
anna og hinna, sem eldri stefnunni fylerja. Nýr fríkirkjusöfnuður
var á árinu myndaður í Hafnarfirði, út af ágreiningi um prests-
kosningu, og hefir söfnuðurinn þegar komið sór upp kirkju þar f
kaupstaðnum.
Geta má þess, að íslenzkur maður í Kanada, Vilhjálmur Stef-
ánsson, er verið hafði áður við nám á Harward haskólanum og lagt
fyrir sig mannfræði, hefir unnið sér frægð fyrir rannsóknir í heim
skautslöndunum norður af Ameríku. Hafði hann dvalið þar nyrðra
nokkur missiri meðal skrælingja og gert þar ýmsar athuganir og
mælingar,. sem eftirtekt vöktu, þar á meðal fundið flokk manna
þar nyrðra, sem er að útliti ólíkur öðrum skrælingjum, hefir annað
höfuðlag og er ljós á hár og með blá augu. Af þeirri lýsingu hafa
spunnist þær tilgátur, að þarna gætu verið leifar þeirra manna frá
íslandi og Noregi, er áður bygðu Grænland. Vilhjálmur er nú
foringi í nýjum landkönnunarleiðangri þar nyrðra, sem gerður hefir
verið út af Kanadastjórn og er vel út búinn. Lagði hann f sumar
á stað í þann leiðangur á 3 skipum norður með vesturströnd Ame-
ríku og um Behringsundið norður í heimskautslöndin.
Annar íslendingur, Vigfús Sigurðsson, kom í haust heim úr
leiðangri um Grænlandsjökla með dönskum herkafteini, sem Koch
heitir. Lögðu þeir á stað í fyrra og fóru fjórir saman vestur yfir
þvert Grænland norðarlega; þykir för þeirra merkileg, og gat Vig-
fús sór góðan orðstír f henni.
Fólag var stofnað á þessu ári í Þýzkalandi, sem kallar sig
»Die Islandsfreunde« (Islandsvinirnir), og á það að vera sambands-
liður milli þeirra manna erlendis, sem íslenzk fræði stunda, eða láta
sig Island skifta að einhverju leyti, en Þjóðverjar eru þar fremstir.
Er nú að koma út þýðing á þýzku af öllum helztu fornritunum
íslenzku í heildarverki, sem heitir »Thule. Altnordische Dichtung
und Prosa«. Útgefandinn er Eugen Diedrichs í Jena og er útgáf-
an mjög vel vönduð. I*. G.