Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1916, Síða 11

Skírnir - 01.01.1916, Síða 11
rSkirnir. Matthias átttræðnr. 11 mannvinarins og prestsins. Það er eðlilegt, að hann kveði um merkismenn samtíðar sinnar, úr því að honum lætur svo vel að yrkja um mæringa fortíðarinnar. í erfiljóðun- um gaf og færi á því i senn, að líta yflr liðna æfi og lofa guð í hæðum. Það er íslenzku kirkjunni til lítillar virðingar, að hún hefir ekki sýnt síra Matthíasi meiri sóma en hún hefir gert. Og það gegnir furðu, að enginn íslenzkra kenni- manna hefir gerst til að rita um sálma hans, finna fyrir- myndir hans þar og meta gildi þeirra. Ekki þarf lengi að blaða í ljóðmælum hans til að kom- ast að raun um, hve brennheitur trúmaður hann er. Eng- ir vantrúarstormar hafa brotið trúarstofn hans, þótt þeir kunni að hafa sveigt lauf hans og limar. Þorsteinn Gísla- son segir, að skáldið hafi kynst rammasta trúleysingja, er hann var á fermingaraldri, og hafi honum staðið stugg- ur af skoðunum hans. Mér segja og merkar frændkonur skáldsins hér i Reykjavík, að móðurætt hans sé mjög trú- hneigð. Eg held, að mönnum sé ekki ljóst, hve geysi- mikið ber á trúmanninum í ljóðum hans, og truflar það stundum listina, sem Poestion bendir á. Lesi menn erfi- ljóð hans og taki eftir, hve guðs nafn er þar oft nefnt, og Matthías leggur það ekki við hégóma. í þessu efni er fróðlegt að lesa vísurnar »Stjórnarmálið«, ortar 1869, er fyrri stjórnarbaráttan við Dani stóð sem hæst. Hann veit eitt ráð, er dugir í stjórnmálastríðinu: að horfa »upp tíl himins, unz heilög sólin skín«. Margir kannast við, að hann endar kvæðið um Skagafjörð á trúaráminning til héraðsmanna. Eg held, að það lýsi vel, hve trúin er rik i hug honum, er hann lætur slíkan veraldarmann sem Snorra Sturluson óska þess í skriftamálum sínum, að guð leyfði honum að ganga í klaustur. Án trúar finst skáld- inu hann alls ekki geta lifað: „Eg trúi, þvi að alt er annars farið, og ekkert, sem er mitt, er lengur til“. Einkennileg er sú trú hans, að einhverir huldir vernd- arvættir sveimi umhverfis oss og með oss:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.