Skírnir - 01.01.1916, Page 21
SUíniir.
21
Lesturiun og sálarfræöiu.
Tilraunir hafa sýnt, að fái augað 30—60 raismunandi
áverkanir á sekúndunni, getur það ekki greint þær að,
iieldur renna þær sarnan fyrir skynjanimii. Sé t. d.
kringlu mcð hvítum og svörtum geirum til skiftis snúið
hratt, þá sér augað ekki livítu og svörtu geirana, heldur
sýnist kringlan grá. Nú eru rykkir augans svo snöggir,
að það l’;er fleiri en 60 áverkanir á vixl af svörtum stöfum
og livitum bilum á sekúndunni. Mætti því búast við að
leturlínan yrði að g áu bandi fyrir auganu, en svo er ekki.
Hvernig á þe&su stendur er óvíst enn þá. Þó hefir verið
bent á þaö, að hver rykkur augans varir oftast ekki meira
on fjórðapart af þeim tíma sem hvíldin á undan tekur.
Minningin um það sem augað sér á hvíldinni varir, og
getur þvi ef til vill bægt frá meðvitundinni áhrifunum.
sem augað fær á hreyfingunni, og næsta hvíld máð þau út.
Hins vegar kæmi oss það að engu gagni, að sjá linuna
sem grátt band, og vér gefum löngum engan gaum að þeim
áhrifum sem ekkert stoða oss.
En hve mikið grípur nú augað yfir í hverri hvíld?
Ef vér litum á prentaða blaðsíðu, finst oss vér 'sjá yfir
talsvei t svaði nógu vel til að lesa það, en þetta er ímyndun,
sem ef til vill keinur af því, að blaðsíðan er nokkurn veginn
jafnbjört íyrir sjóninni, og svo gefum vér elcki gaum að
ósjálfráðum hreyfingum augnanna. I raun og veru er það
lítið svið, sem augað getur lesið án þess að hreyfast.
Þetta má reyna með þvi að stara á tiltekinn staf í línunni
og athuga hve mikið maður getur lesið i kring, en það
er ákaflega crfitt, af því auganu hættir við að lireyfast
og þreytist fljótt, ef starað er. Hefir það reynst svo, að
raenn gátu lcsið meira af prcntuðu máli, ef þeim var sýnt
J>að Vino úr sekúndu en ef sýningin yaraði lengur.
Til slíkra rannsókna er venjulega xnarsjáin (tachisto-
skop) höfð. Það er verkfæri sem sýnir á örlitlu broti úr
sekúndu það sem athuga á. Er því stundum hagað svo,
að málmplata með þverrifu á er látin falla framan við
linuna sem lesa á. Línan sést þá aðeins meðan rifan fer