Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1916, Page 25

Skírnir - 01.01.1916, Page 25
Ökírnir. 25- Lesturiuu og sálarfræöin. stað hjá byrjcndura, og getur j tfuvel farið svo, að vér lesum staf fyrir staf. Um það, hver hluti orðsins sé mikilv.-egastur við lest- urinn, geta menn gengið úr skugga mcð þvi að lesa t. d. tólfstafaorðalistann hér að framan, þannig að festa sjónir fyrst á fyrri hluta livers orðs, eins og mönnuni er eðli- legast, og síðan lesa hann þannig, að stardepillinn verði nær cnda hvers orðs. Sama má sjá með því að lesa tvo texta, þar sem í öðrum eru feldir burt fyrri hlutar orðanna en í hinum seinni hlutarnir, og athuga hvort betur geng- ur. Reynist þá svo, að meira er komið undir fyrri hlut- anum, enda liggur í voru máli áherzlan á honum, og í fyrstu samstöfunum er venjulega aðalmerking orðsins fólg- in. Og svo raknar hér sem annarstaðar greiðar úr minn- ingunum áfram en aftur á bak. Að efri hluti orðsins má sín meira en neðri hlutinn fyrir skynjun vorri, má sjá með því að leggja t. d. rönd- ina á pappírsblaði eftir miðri línunni, svo að helmingurinn af af orðunum standi upp undan eða niður undan blaðinu, og reyna svo að lesa. Að efri hlutinn er meir varðandi, mun koma af því, að miklu fleiri staflr skera sig úr línunni að ofan en að neðan, og svo gefum vér að jafnaði meiri gaum efra parti hlutanna en neðra, og kemur það ef til vill af því, að vér stöndum ekki sjálfir á höl'ði. Þá höfum vér og mikinn stuðning við lesturinn af þvi sem vér sjáum út undan oss. Hefir það verið sýnt með því að láta menn lesa með gleraugum, sem hindruðu alla sjón til hliðar, og truflaðist lesturinn mjög við það. Margt bendir til, að mönnum megi skifta í tvo flokka, eftir því hvernig skynjan þeirra er varið við lesturinn. Sumir festa sjónina skarpt á því sem þeir lesa, þeir gripa yfir lítið í senn, en lesa nákvæmlega, vita með vissu hvað þeir sjá og geta lítið í eyðurnar. Aðrir grípa yflr stærra bil, hafa hugann aðallega á þýðingu þess sem þeir sjá, lesa orðin í heild, eða jafnvel heilar málsgrein- nr, og geta drjúgum.í eyðurnar. Þeir eru þó ekki ætíð-- fljótari að lesa en hinir. —
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.