Skírnir - 01.01.1916, Side 46
46
Röntgensgeislar.
Skirnir^
vinna það er fyrir læknana, að reita með töng eitt og eitt
hár í senn, ef til vill úr mestum hluta kollsins. Það er
óneitanlega fljótlegri aðferð, að smyrja tjöru á lepp, smella
honum ofan í geitnakollinn, lofa honum að límast vel föst-
um og rykkja svo leppnum upp með öllu sem honum
fylgir. Fleiri en þeir, sem beinlínis eru hársárir, munu
hafa kveinkað sér við þessa lækningu. — R-lækningin
leysir hér úr öllum vanda; afmældum skamti af geislun-
um er hleypt á hársvörðinn; eftir rúmar tvær vikur fara-
hárin að losna og detta út; með þeim hluta hársins, sem
falinn er í hársverðinum, fylgir sveppurinn, sem sjúkdómn-
um veldur; þar með er sjúkdómurinn læknaður; eftir
verður sköllóttur blettur, en eftir nokkrar vikur kemur
hárvöxtur á ný. A þessu sumri hefl eg haft undir hendi
á Röntgensstofnun háskólans fjóra sjúklinga með geitur; ein
stúlka var búin að hafa sjúkdóminn í tíu ár. Höfuðið var
svo útsteypt, að eg neyddist til að gera hana alsköllótta;
það er einkennilegt að sjá ungar stúlkur þannig leiknar. Nú
hafa allir þessir sjúklingar á ný góðan og þéttan hárvöxt
og hafa nú fengið bót á sínum langvinna sjúkdómi. Marga
fleiri húðsjúkdóma eru geislarnir notaðir við, en of langt
yrði að fara út í það hér.
Algengur kven-sjúkdómur eru æxli á móðurlífinu og
fylgir þeim oft mikill og langvarandi blóðmissir. Ef sjúk-
dómurinn er á háu stigi, var áður fyr ekki um annað að
tala en uppskurð; nú er fengin reynsla fyrir því, að marg-
ir af þessum sjúklingum læknast með geislum og kom-
ast þannig hjá meiri háttar uppskurði.
M e i n s e m d i r. Kærkomnastar eru R-lækningarnar
án efa sjúklingum með illkynjuð mein, þ. á. m. krabbamein,.
sem óefað er sá sjúkdómur, sem almenningur er einna
hræddastur við; það er heldur ekki að furða, því fáir
þessara sjúklinga fá aftur heilsu sína. An þess að móðga
skurðlæknana má óhætt fullyrða, að margir slikir sjúkl-
ingar eru skornir, en fáum batnar. Flestir læknar eru nú
sammála, um að R-geislar séu góð hjálp í baráttunni
við illkynjaðar meinsemdir. Skilyrðið er, að meinið sé