Skírnir - 01.01.1916, Síða 70
IJtan úr heimi.
Herbúnaður atvinnulífsins í Þýzkalandi.
I.
ÞaS tvent, sem er einna markverðast við nítjándu og tuttug-
ustu öldina, er mannfjölgunin og vöxtur framleiðsl-
u n n a r í heiminum. Arði framleiðslunnar, a u ð n u m, má annað-
hvort eyða þegar í stað til neyzlu eða verja honum til frekari
framleiðslu, vinna að því að fá meiri framtíðararð. Þessir Draupnis-
hæfileikar auðsins, að geta getið af sér aukinn arð, hafa valdið
kapphlaupum einstaklinganna um auðinn og sérstaklega sett mark
sitt á nítjándu og tuttugustu öldina, sem þess vegr.a hafa verið
nefndar auðmagnstímabilið. En því meiri sem þjóðarauðurinn er,
þess betur getur þjóðinni í heild sinni vegnað, þess hægar getur
hún staðið straum af mannfjölguninni, þess voldugra er ríkið. Af
þessu stafa veðhlaup ríkjannaum auðinn, afl þeirra
hluta sem gera skal.
Styrjaldir nítjándu aldarinnar stöfuðu flestar af pólitískum
ástæðum. Tilefni Norðurálfustyrjaldarinnar var eins og menn
minnast morðið á ríkiserfingjanum í Austurríki, aödragandinn var
Ealkanstyrjöldin, en meðal hinna mörgu dýpri orsaka má fyrst og
fremst nefna baráttuna milli Þjóðverja og Englendinga um auð-
magnið. En auður skapast ekki nema á atvinnusviðinu, og barátt-
an um auð verður því baráttan um völdináatvinnu-
sviðinu og heimsmarkaðinum.
Og eins og aöalorök ófriðarins stafar af atvinnusviðinu, svo
geisar einnig styrjöldin þar. ÞjóÖirnar berjast ekki
einungis með mönnum, heldur og með auð í ýmislegri mynd.
Báðir flokkar reyna að hnekkja atvinnulífi fjandmanna sinna eins
og þeim er unt, vegna þess að þeir vita, að þó að miljónir manna
séu drepnar, þá fæðast þó aðrir í þeirra stað, en ef möguleikum