Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1916, Page 71

Skírnir - 01.01.1916, Page 71
'Skírnir. Utan úr heimi. 71 fjandmannanna á atvinnusviðinu er hnekt, þá er þar með skorið á lífæð þjóðarinnar og bæði sigri hennar í þessari styrjöld og framtíð hennar sem heimsdrottins spilt um aldir. Hugsjón Napóleons mikla var að koma Englendingum á kné með því að loka meginlandi Evrópu fyrir verzlun þeirra. Þessa hugsjón Napóleons hafa nú Englendingar tekið upp gagnvart Þjóð- verjum. Bandamenn umlykja Þjóðverja á alla vegu, þeir hafa völdin á hafinu og hugsjón þeirra er, að beygja Þjóðverja, ef ekki með vopnum, þá með því að spilla verzlun þeirra við ■ önnur lönd. Þjóðverjar hafa á síðustu áratugum orðið að iðnaðarþjóð, og hafa þeir því stöðugt orðið að flytja meira og meira af matvælum, fóðurvörum og vöruefnum (óunnum vörum) inn í landið frá útlönd- um, en hafa goldið það með iðnaðarvörum. Nú hætti þessi verzlun alt í einu. Þyzkaland varðj eins og umsetin borg, og leit út fyrir að alt atvinnulífið mundi fara í kaldakol, en bæði herinn og aðra hluta þjóðarinnar skorta það, sem þurfti til að framfleyta lífinu og halda ófriðnum áfram. Nú varð því að grípa til einhverra ráða. Þrátt fyrir alla sína framsýni höfðu Þjóðverjar einungis búist undir ófrið á hermála- og fjármálasviðinu, en ekki á atvinnusviðinu. Það sem hér varð að gera, varð því að hugsa frá grunni og þó skjótlega, b æ ð i m e ð tilliti til þarfa hersins og atvinnulífsins. Þó að örðugt sé að afla sór vitneskju um ráðstafanir þær, sem gerðar hafa verið, skal eg reyna að skýra frá því helzta, sem gert hefir verið í tveimur aðalatvinnuvegum Þjóðverja: landbúnaði og iðnaði. II. A. Uppskeran á Þýzkalandi varð í minna lagi haustið 1914 og sýnt var, að minka varð neyzlu matvæla á einhvern hátt, ef þau áttu að endast til næstu uppskeru. Nú var um tvent að velja. Ríkið gat látið alla verzlun með matvæli afskiftalausa og búist við, að verðið mundi verða sett svo hátt af kaup- mönnum, að birgðirnar entust, en fyrirsjáanlegt var að það mundi því að eins takast, að meiri hluti þjóðarinnar, efnalausir menn, syltu. E ð a stjórnin gat tekist á hendur að koma skipulagi á neyzluna, annaðhvort með því að koma á meiri sparnaði f tilbún- ingi matvæla, ætla mönnum hluta af því, er húsdýr neyttu, setja liáverð á vörur o. s. frv., eða jafnvel skamta öllum matvæli úr hnefa.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.