Skírnir - 01.01.1916, Qupperneq 80
.,-80
TJtan úr heimi.
Skirnir.
verið gert algerlega enn þá, þó að játað só, að á þann hátt hefði
verið hægt að koma í veg fyrir margt fálm og fát.
IV.
Þó að örðugt sé að skygnast inn í framtíðina, þá mun þó
óhætt að segja, að margt af því, sem nú hefir staðist eldraunina,
mun standa eftir ófriðinn og ríkið muni framvegis skifta sór meira
af atvinnulífinu en hingað til. Liggja til þess ýms drög.
1. Fyrst og fremst til að vera viðbúið ef ófrið ber
að höndum. Þannig er haldið fram, að ríkið eigi framvegis að
sjá um, að atviunuvegirnir séu alt af færir til að leggja út í ófrið.
Ýmsir hagfræðingar Þjóðverja halda því fram, að sem stórþjóð
muni þeir að staðaldri vera neyddir til að flytja inn frá útlöndum
allmikið af efnivörum og matvælum. Til þess að tryggja sjer, að
ekki verði skortur á þessu, eigi ríkið alt af að hafa eins árs birgðir
af vörum þessum fyrirliggjandi (forðabúr).
2. Onnur ástæðan er fjárhagurinn. Fyrir ófrið-
inn voru skuldir þýzka ríkisins 5000 miljónir marka og árlegar
rentur og afborganir af þeim 240 miljónir marka. Skuld-
. irnar aukast gífurlega í ófriðnum. Þjóðverjar hafa nú tekið 25000
miljónir marka innanlandslán til hernaðarins og mun það varla
nægja. Af lánum þessum munu þeir verða að gjalda um 1500 milj.
. marka árlega í rentur og afborgun (5 + 1%). Tekjnr ríkisins
þurfa því að aukast að miklum mun. Sambandsríkin hafa ráð yfir
beinu sköttunum, svo að ekki verður hægt að nota þá. Ekki verð-
ur heldur hægt að auka tekjur af eignum ríkisins eins mikið og
við þarf hór; til þess eru ríkiseignirnar of litlar. Viðskiftaskatta
er ekki heldur hægt að auka að miklum mun, því það mundi
leggja of mikil höft á alt viðskiftalífið. Þó að hægt væri ef til
vill að hækka tollana svo mikið að fylt yrði upp í skarðið, þá
eru þeir óvinsælir af því, að þeir koma harðast niður á efna-
litlu fólki, og stjórnin mun þvi sjálfsagt varast tollhækkun í lengstu
lög, af pólitískum ástæðum. Eini vegurinn út úr þessum ógöngum
virðist því vera að r í k i ð takist á hendur einkaverzlun eða
einkaframleiðslu af fjölda af vörum.
3. Þriðja ástæðan til afskifta ríkisins af atvinnulífinu eru
viðskiftin við útlönd. Varla er reyndar hægt að búast
við, að ríkið takist sjálft á hendur verzlun og siglingar, nema ef
. til vill Hamburg-American Hnuna*) og Norddeutscher Lloyd, en
*) Geta má þess, að í Sviss hefir nú verið komið á ríkiseinkainn-