Skírnir - 01.01.1916, Page 103
Island 1915.
Árið 1915 hefir verið bezta ár hér á landi bæði til lands og
-sjávar. Veturinn góður frá nyári. Vorið kalt, og sórstaklega þur-
-viðrasamt á Suðurlandi. Eftir miðjan marz gerði hafís vart við sig
við Vesturland, en þó ekki til mikilla muna þá. En í maí kom
hann að Norðurlandi og var þar mikill ís á reki fram og aftur alt
fram í miðjau júií og truflaði mjög skipaferðir. En úr því varð ís-
laust. Grasspretta varð tæplega í meðallagi yfirleitt, og ollu því
þurviðri sunnanlands, en hafísinn norðanlands. Sumartíðin var góð
og hagstæð og varð n/ting heyja í bezta lagi, svo að þau urðu eftir
sumarið bæði mikil og góð sunnanlands og í meðallagi norðanlands.
Garðvextir yfirleitt meiri en í meðallagi. Haustið var gott og bezta
tíð fram til ársloka. Skaftafellssýslur eru þó undantekning frá þessu,
því þar var rigningasamt síðari hluta sumars og alt haustið, og á
Austfjörðum var rosatíð fyrir árslokin.
Eftirtektar verðar eru athuganir þær, sem Mýramenn segjast
liafa gert á háttsemi kríunnar þetta sumar og hið næsta á undan.
’Vorið 1914 var fádæma hart og segja þeir að kríur hafi þá alls
ekki orpið. En vorið 1915 urpu þær ekki fyr en seint í júní og
voru að því alt fram í ágúst. Þær eru vanar að fara um höfuð-
dag, en í haust fóru þær ekki fyr en um veturnætur. Sama er að
segja um fleiri fugla. Lóur fóru að minsta kosti mánuði siðar
-en venja er til. Viku af vetri sást stór lóuhópur á Mosfellsheiði.
Aflabrögð voru í bezta lagi þetta ár. Flestir botnvörpungarnir
-söltuðu afla sinn í janúar og febrúar, og gekk veiðin fremur stirð-
lega. Þeir fáu af þeim, sem fóru með fisk sinn til Englands á
þessum tíma, fengu sæmilegt verð fyrir hann. Með marzbyrjun
tóku öll botnvörpuskipin að afla í salt, og varð aflinn á vetrar-
vertíð með langbezta móti. Vorið út af fyrir BÍg var ekki venju
ibetra, og tók þá fyrir afla með fyrra móti. En að samanlögðu var
'vetrarafli og vorafli miklu meiri en í meðallagi. Þó var óvenjumikið af