Fréttir frá Íslandi - 01.01.1875, Blaðsíða 15
ELDGOSIN.
15
Múlasýslu pegar um sumariS, en í Suður-Múlasýslu um haustiS. Fyrir
samskotafje þaS, er safnazt hafSi í Englancli, rjcS samskotanefndin þar þaS
af, aB kaupa fóSurkorn hanila öskusveitunum. Um haustiS var sent gufuskip
til AustfjarBa meS 150 tons af gripafóSurkorni, nefnilega 2000 tíu fjórS-
unga sekki af mais, 500 sekki af byggi og 500 sekki af höfrum. Eiríkur
Magnússon, bókavörSur í Camhridge, er veriS hafSi öflugur hvatamaSur aS
samskotunum á Englandi, hafSi keypt korn þetta og kom nú sjálfur meS
skipinu. LagSi hann þaS til, aS fóSurkorn þetta lenti einkum í þeim ösku-
sveituuum, er eingöngu hafa viS fjcnaö aS bjargast, og svo varB. Korn-
sending þessi kom sjer einkarvel, og er svo taliS, aS fyrir hana megi halda
lífi í 6000 fjár floira en ella. SkipiS tók aptur 700 skurSarfjár, og guldu
Englcndingar 10—17 krónur fyrir kindina. — Allar þcssar gjafir hafatals-
vert rjett viS hag margra nauöstaddra í öskusveitunum, þótt langt sjo frá
aS fullbœttur sje skaSinn. En JiaS er von manna, aS þetta dugi þó til
þess aS ráSa úr neyöinni í bráSina, og gjöra þossum sveitum hœgra meS
aS rjctta viS aptur, sem menn ætla aS ekki verSi mjög langt aS bíSa, ef
þær ekki mœta neinum áföllum.
ÁSur en skilizt er viS þenna frjettaþátt, er flest sögulegt i hefur
fariö fram á fjöllum uppi, viröist eiga viS aS geta um förina yfir
Vatnajökul. Frá því er sagt í fyrra árs frjettum, aS hinn enski jökla-
fari Watts gekk á jökulinn, en varS aptur aS hverfa sökum illviSra. Nú
kom hann aptur, og vildi nú láta til skarar skríöa, og komast, ef verSa
mætti, alla leiS yfir jökulinn. 24. dag júnímánaSar lagSi hann upp frá
NúpstaS viS 10. mann. i för hans var Páll Pálsson úr Vestmannaeyjum,
sá er fylgt hafSi honum áriS áöur, og Pálsfjall var viS kennt, en hinir voru
Skaptfellingar; voru þeir allir hinir vöskustu menn. peir lögöu upp ájök-
ulinn i landnoröur frá KálfafellsstaS. Farangur sinn allan (nesti, tjald,
hvílupoka o. fl.) bundu þeir á tvo skíSasleSa, og drógu yfir jökulinn; en
hesta sína sendu þeir austur yfir sveitir allt norSur á VopnafjörS. pegar
er þeir komu upp á jökulinn, hrepptu þeir óveSur og ófœrö mikla, en
frost var litiS, og hlóöst snjór fyrir sleöana, svo aS opt varS aS bera far-
angurinn. Eptir einn dag og tvær nætur komu þeir aS Pálsfjalli. pá
sendi Watts fjóra af fjelögu© sínum aptur suSur til byggSa, og voru þeir
nú eptir sex saman. í tvo daga uröu þcir aS vera kyrrir viS Pálsfjall
sökum ófœrSar, en eptir þaö hjeldu þeir áfram noröur eptir jöklinum. En
eigi leiS á löngu, áSur en skall á þá harBasti hríSarbylur, meS gaddfrosti.
Voru þeir þá staddir 6000 feta hátt yfir sjávarflöt. pá var eigi fœrt aö
halda lengur áfram um sinn, og tjölduSu þeir þar á jökulhrygg einum, er
var 6150 feta hár. par ætlar Watts jökulinn hæstan. f tjaldinu urSu
þeir aS láta fyrirberast í þrjá sólarhringa, því aS sífellt stóS bylurinn, og
frost var jafnaSarlega 25 stig (eptir Réaumurs mæli). Áttu þeir mjög
ervitt meö, aS verja sig frosti og fönnum. Á 7. dœgri sáu þeir sjer þar
ekki lengur við vært, meS því líka aS vistir þeirra voru að þrotum komn-