Fréttir frá Íslandi - 01.01.1875, Blaðsíða 41
LANDSTJÓKN.
41
stiirnim hans við latínuskólann, með pví skilyrði, að þessum kennarastörf-
um yrði gegnt af öðrum kennara án sjerstakrar borgunar.
Um hina nýju læknaskipun hefur áður verið getið, par sem sagt
var frá aipingi. Einn nýr læknir var settur í cmbætti á árinu: kandídat
porvarður Andrjesson Kjerúlf i læknisumdœmið í Húnavatnssýslu (fyrir
vestan Blöndu).
Heiðursmerki voru færri veitt en árið áður. Einn maður var
sœmdur heiðursmerki dannebrogsmanna, Níels Sigurðsson, fyrverandi póst-
ur. Eyjóifur bóndi Sigurðsson á Horni í Austur-Skaptafellssýslu fjekk frá
Frakkasfjórn heiðurspening úr gulli fyrir að hafa tekið vel á móti frakk-
neskum skipbrotsmönnum vorið 1873.
Heiðursgjafir úr styrktarsjóði Krisfjáns konungs 9. i minningu
púsundárahátíðar ísiands, veitti landshöfðinginn 31. ágúst sýslunefndar-
manni Eggert Helgasyni á Helguhvammi i Húnavatnssýslu 200 kr., og bónd-
anum Símoni Sigurðssyni á Kvikstöðum í Borgarfjarðarsýslu 120 kr., báð-
um fyrir framúrskarandi jarðabœtur.
Af d ó m s m á 1 u m er eigi margt að segja. pess er getið £ frjcttun-
' um árið 1873, að Jón Ólafsson, pá verandi ritstjóri blaðsins Göngu-IIrólfs,
var dœmdur sekur við hjeraðsdóm í 3 meiðyrðamálum við Hilmar Fiuson
iandshöfðingja, í einu í 200 rd. sekt, í öðru í 6 mánaða fangclsi, og í hinu
þriðja í eins árs fangelsi. Jón fór pá til Ameríku, áður en dómum pess-
um var fullnœgt. Nú kom Jón aptur, og átti pá að taka til óspilltra mála
og fullnœgja dómunum, en hann fjekk leyíi til að áfrýja peim til yfirrjett-
ar. En eigi varð pó meira úr pessu að svo komnu, pví að Jón fór burt
aptur.
í landsyfirrjetti voru á árinu alls dœmd 22 mál. Af peim
voru 7einkamál, en 14 s a k a m á 1, og eitt opinbert 1 ö g r e g 1 u-
mál. Meðal einkamálanna var 2 vísað frá yfirdómi, og 2 frá undirrjetti,
en í 3 kveðinn upp fullnaðardómur. Eitt af peim var milli Miklaholts-
kirkju og Arnarstapaumboðs út af selveri, annað milli kaupmanns i Li-
verpool og Magnúsar bónda Jónssonar í Bráðræði út af saltfarmi, og hið
priðja milli Egils kaupmanns Egilssonar í Reykjavík og hinnar íslenzku
samlagsverzlunar í Björgvin út af verzlunarviðskiptum. Meðal sakamál-
anna var 2 visað frá yfirdómi, en í 12 var kveðinn upp fullnaðardómur,
Af pessum 12 málum voru 5 pjófnaðarmál, 1 nauðgunarmál, 1 út af dul-
arfœðingu og barnsmorði, 2 út af ólögmætri meðferö á fundnum fjármun-
um, 1 út af ofbeldi við hreppstjóra, 1 út af skammaryrðum við hrepp-
stjóra, og 1 út af illri meðferb á skepnum.
í hæstarjetti var nú loksins dœmt hið mikla laxveiðamál eða
Elliðaármál milli Benedikts yfirdómara Sveinssonar og Thomsens kaup-
manns. Landsyfirrjettardómsins hefur áður verið getið í fijettunum (1871),
en nú var hann staðfcstur og vann Thomsen málið.