Fréttir frá Íslandi - 01.01.1875, Síða 16

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1875, Síða 16
16 FÖRIN YFIR VATNA.IÖKUL. ar. Um morguninn, hinn 6. júlí tóku þeir sig upp, og hjeldu norður á leið, cn litið súu þeir, hvað þeir fóru, því snjóburður var og dimmviðri. Frost var þá í mesta lagi, eða frá 25 til 30 stiga. pó hjeldu þeir áfram þann dag allan, og villtust eigi, þó að bylurinn væri. Um kveldið rýmdi til í lopti, svo að sá til fjalla norðanvert við jökulinn. pau fjöll voru Dyngjuíjöll, Kistufell og Skjaldbreið. Um miðjan dag hinn 7. júlí komu þeir norður af jöklinum, austan undir Kistufelli. par skildu þeir cptir sleðana, og það af farangri sínum, er missast mátti og byrðarauki var í. paðan fóru þeir um kveldið; hjeldu þeir norður Ódáðahraun, og komu loks að Grímsstöðum á Fjöllum snemma dags 10. júlí; höfðu þeir þá ver- ið matarlausir nálega tvo sólarhringa. — pessi för var hin fyrsta, er farin hefur vcrið alla leið yfir þveran Vatnajökul, og urðu þeir Watts mjög frægir af förinni, er hæði var hættuför og þrekraun mikil. — Eigi gat Watts kannað jökulinn svo sem hann vildi, sökum illviðra þeirra, er hann hreppti. Kvaðst hann eigi geta annað um hann sagt, en að hann sje einn jökulfláki, er hvlli á cldfjallaklasa, og mœni toppar margra þeirra upp úr snjónum. Eld þann, er uppi var vorið 1872, hugði hann hafa verið I Kverkijöllum, og þar sá hann nú og rjúka, cn eigi gat hann kannað það gjör. Milli Kverkfjalla og Kistufells sagði hann að sigið hefði ofan jök- ultunga mikil, og að í tungu þeirri væru upptök Jökulsár á Fjöllum, en eigi undir Kistufelli, svo sem menn hafa áöur ætlað. Hinn 13. júli fór Watts aptur upp til fjalla, að skoða Skjaldbreið og Dyngjufjöll. Frá lýs- ing hans á eldsupptökunum í Dyngjufjöllum er áður sagt, og sömuleiðis lýsing hans á gosinu á Mývatnsörœfum, 15. dag ágústmánaðar. Landstjórn. Nú víkur sögunni aptur til almennra tiðinda; og er þá fyrst að scgja frá a 1 þ i n g i, er var hið 15. þing, en hið 1. löggjafarþing. ping- setutimi þeirra alþingismanna, er átt höfðu setu á síðustu þingum, var nú útliðinn, og ný þingskipun var komin á með stjórnarskránni, er meðal annars breytti tölu þingmanna. Kosningar til hins nýja þings fóru vfða í hjeruðum fram um haustið 1874, en sums staðar var þeim frestað til vors 1875. Áður en kosningar fóru fram, virtist vera allmikill áhugi í mönn- um, að vanda nú kosningarnar sem mest mætti verða, og var tíðrœtt um það í rœðum og ritum manna. Kjörfundir voru og víða sœmilega sóttir, einkum norðanlands, og sums staðar varð talsverð keppni um það, hverjir kosnir yrðu. Aptur á mót voru kjörfundir sums staðar linlega sóttir, og þótti það lýsa litlum áhuga, en að nokkru leyti virðist það hafa komið af því, aö kjörfundimir voru sums staðar settir á óhentugum tima, og kosn- ingar dregnar fram á vetur, svo að óveður og ófœrð meinaði mönnum að sœkja fundina. Konungur kvaddi til þingsetu þá hina sömu menn, er áður höfðu verið konungkjömir á hinum síðustu þingum, cn það voru þeir:

x

Fréttir frá Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.